Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 9
RITSTJÓRNARGREIN Bakverkir og sýklalyf Ólafur Guðlaugsson Sérfræðingur í lyflækningum og smitsjúkdómum Landspítalanum olafgudl@landspitali. is I mars síðastliðnum birtist grein í tímarit- inu European Spine Journal (ESJ) um notkun á sýklalyfjum við langvarandi bakverkjum hjá sjúklingum með sértækar breytingar (Modic gerð 1) á segulómmyndum1. Þessi grein hlaut mikla umfjöllun í fjölmiðlum. I sama tölublaði tímaritsins birtist önnur grein eftir sama hóp þar sem sagt var frá því að merki um bakteriur hefðu fundist í sýnum sem tekin voru úr sjúklingum með brjósklos og hefðu sumir sýnt sömu breyt- ingar við segulómun2. Þessar greinar voru kynntar á sérstökum blaðamannafundi í mars þar sem jafnvel var látið í veðri vaka að Nóbelsverðlaunin væru innan seilingar. Ritaðir hafa verið leiðarar í Læknablaðið af minna tilefni. Fyrri greinin1 lýsir tvíblindaðri, slemb- aðri rannsókn sem fjallar um áhrif sýkla- lyfja hjá sjúklingum með bakverki og Modic 1 breytingar við segulómskoðun. Sjúklingar voru fengnir frá tveimur sér- hæfðum bakgöngudeildum í Danmörku. Sjúklingahópnum var skipt í tvennt með slembun; meðferðarhóp og samanburðar- hóp. Meðferðarhópurinn fékk amoxicillin/ clavulanic sýru í þrjá mánuði. Engin vefj- asýni eða ræktanir voru teknar. Sjúkling- arnir voru ekki með merki um langvarandi sýkingar í blóðrannsóknum, né heldur þró- aði neinn þeirra alvarlega klíníska sýkingu við 12 mánaða eftirfylgd. Samanburðarhóp- urinn fékk lyfleysu. Hóparnir voru metnir eftir 100 daga og aftur eftir eitt ár. í heild voru bornir saman 77 sjúklingar í meðferð- arhópnum og 67 sjúklingar í samanburðar- hópnum. í meðferðarhópnum fengu 65% aukaverkanir vegna sýklalyfjanna og fjórir hættu vegna alvarlegra aukaverkana. Eftir eitt ár var segulómun endurtekin. Þá voru 92% í meðferðarhópnum og 97% í saman- burðarhópum ennþá með Modic 1 breyt- ingar. Svo virðist sem meðferðarhópurinn hafi almennt verið með umfangsminni Modic breytingar eftir meðhöndlun, en ekki voru bornar saman myndir einstakra sjúklinga fyrir og eftir meðhöndlun. Ekki reyndist marktækur munur milli fjarvista frá vinnu milli hópana. Meðferðarhópur- inn virtist vera við betri líðan samkvæmt ýmsum verkjakvörðum, þótt hann væri ennþá með umtalsverð einkenni. Áhuga- vert er hve lítinn bata samanburðarhópur- inn fékk á einu ári. I seinni greininni2, var spurt hvort sýking í liðþófum í hrygg valdi Modic breytingum. Rannsakaðir voru sjúklingar á göngudeild vegna brjóskloss, alls 61 sjúklingur. Þeir fóru allir í aðgerð vegna brjóskloss þar sem sýni náðist til ræktunar. Af þeim voru 28 með jákvæða ræktun; flestir með Propioni- bacterium acnes. Þá var metið hverjir í hópn- um voru með einhverjar Modic breytingar (óskilgreint). Reyndist það vera meirihluti hópsins með jákvæðu ræktanirnar, eða 35 á móti 26. Þrátt fyrir að höfundar tali um tölfræðilega marktækni milli hópa, var hún fengin á annan hátt en búast hefði mátt við miðað við hönnun rannsóknarinnar. Upp- setning rannsóknarinnar og niðurstöður hennar gera höfundum í raun ekki kleift að svara þeirri rannsóknarspurningu sem þeir settu fram. Svokallaðar Modic breytingar í segul- ómun eru í þessum greinum gerðar að sértækum breytingum fyrir sýkingar. Fjöldi rannsókna hefur metið þessar Modic breytingar og almennt ekki getað staðfest að þær séu sértækar fyrir bakverki, hvað þá sýkingar3, sérstaklega í ljósi þess að þær geta horfið án meðferðar4. Þegar stórum hópum af sjúklingum með slæma bakverki og staðfestar Modic breytingar hefur verið fylgt eftir í langan tíma, eru einungis örfáir sem þróa með sér hefðbundnar klínískar sýkingar5 og þá ekki með P. acnes. í umræðu um þessar greinar í British Medical Journal (BMJ)6er að auki bent á hagsmunaárekstur sem ekki er gerð grein fyrir í umræddum greinum* 1'2. Tveir höfunda sitja í stjórn fyr- irtækis (www.mastmedical.com) sem skráð var um leið og greinin birtist á heimasíðu ESJ í rafrænni útgáfu í febrúar. Þetta fyrir- tæki gerir út á það að kenna læknum að til- einka sér og verða „MAST certified doctor" gegn greiðslu. „MAST" stendur fyrir „Mo- dic Antibiotic Spine Therapy". „MAST" meðhöndlun virðist á heimasíðunni snúast um að nýta þessa nýju meðferðarnálgun - segulómun og sýklalyf - til að meðhöndla langvarandi bakverki. Þeir læknar sem fá þessa vottun eru síðan auglýstir þar sér- staklega. Sjúklingum sem skoða síðuna er hjálpað að finna „MAST certified" lækna með aðstoð „Google Maps®". Það má því segja að höfundarnir séu í besta falli á hálum ís þegar þeir setja fram og kynna með pompi og pragt nýja hug- myndafræði um eðli og orsakir mjóbaks- verkja, sem gengur gegn niðurstöðum fjölda rannsókna og viðtekinni þekkingu á sýkingum í beinum. Engar langtíma- rannsóknir styðja hugmyndir hópsins, hvorki um tilvist, tilurð, gang né árangur þeirrar meðferðar sem haldið er á lofti. Því má ekki gleyma að langtímameðferð með sýklalyfjum er ekki og verður aldrei án aukaverkana fyrir suma sjúklinga og slík meðferð eykur hættu á þróun ónæmis í bakteríum. Því er þörf á vel unnum rann- sóknum til að rannsaka betur þær hæpnu niðurstöður sem settar eru fram í þessum greinum. Ut frá þeim gögnum sem fyrir liggja er alls ekki hægt að mæla með því að sýklalyf séu notuð til að meðhöndla lang- varandi bakverki. 1. Albert HB, Sorensen JS, Christensen BS, Manniche C. Antibiotic treatment in patients with chronic low back pain and vertebral bone edema (Modic type 1 changes): a double-blind randomized clinical controlled trial of efficacy. Eur Spine J 2013;22:697-707. 2. Albert HB, Lambert P, Rollason J, et al. Does nuclear tissue infected with bacteria following disc herniations lead to Modic changes in the adjacent vertebrae? Eur Spine J 2013;22:690-6. 4. Quattrocchi CC, Alexandre AM, Della Pepa GM, Altavilla R, Zobel BB. Modic changes: anatomy, pathophysiology and clinical correlation. Acta Neurochir Suppl 2011;108:49- 53. 3. Kovacs FM, Arana E, Royuela A, et al. Vertebral Endplate Changes Are Not Associated with Chronic Low Back Pain among Southem European Subjects: A Case Control Study. Am J of Neuroradiol 2012;33:1519-24. 5. Ohtori S, Koshi T, Yamashita M, et al. Existence of pyoge- nic spondylitis in Modic type 1 change without other signs of infection: 2-year follow-up. Eur Spine J 2010;19:1200-5. 6. McCartney M. Antibiotics for back pain: hope or hype? BMJ 2013;346:f3122. Back pain and antibiotics Ólafur Guðlaugsson Consultant in internal medicine and infectious diseases at Landspitali University Hospital LÆKNAblaöið 2013/99 329

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.