Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 37

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 37
UMFJÖLLUN O G GREINAR Heilsugæslan svarar kallinu Mér var það sérstakt ánægjuefni að lesa ritsjórnargrein Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis SÁÁ í síðasta Læknablaði þar sem fram kemur að heilbrigðisstarfsfólk SÁÁ hafi nú fengið aukin tækifæri til samskipta við aðra heilbrigðisstarfsmenn auk sóknarfæra til að koma enn frekar að kennslu heilbrigðis- og velferðarstétta. Nýlegur samstarfssamningur Háskóla ís- lands, íslenskrar erfðagreiningar og SÁÁ hafi í þessu sambandi skipt sköpum. Ég hef undanfarin ár skrifað fjölda greina og haldið erindi um mikilvægi samvinnu meðferðarstarfs SÁÁ og heilsugæslunnar og því er það sérlega ánægjulegt að yfirlæknir SÁÁ (bein til- vitnun): „kalli nú á heilsugæsluna til aukinnar samvinnu í kennslu í for- vörnum og stuðningi til betri eftirfylgni með vímuefnafíklum". Nú er sem sagt staðan sú að við köllum orðið hvor á annan sem þýðir að skapast hefur grund- völlur til að leggja drög að skipulögðu samstarfi. Frá stofnun SÁÁ 1977 hafa samtökin sjálfstætt annast árangursríka meðferð og endurhæfingu vímuefnafíkla af aðdáunarverðri ósérhlífni og eljusemi og unnið ómetanlegt starf við að útrýma fordómum um áfengissýki sem í hugum íslendinga er nú sjúkdómur eins og hver annar. Þessi þróun hefur skapað góðan grundvöll til meiri samvinnu við heilsu- gæsluna þannig að hægt er að nýta betur þá möguleika sem heilbrigðiskerfið hefur upp á að bjóða án þess að það leiði til kostnaðarauka. Viðhorfskönnun var gerð meðal heimilislækna fyrir nokkrum árum og kom þá skýrt fram almenn jákvæðni stéttarinnar í garð meðferðarinnar (97%) en einnig var lögð áhersla á mikilvægi þess að læknabréf bærust heimilislækni ef skjólstæðingur hefði farið í áfengismeðferð (91%). Einnig kom fram verulegur áhugi heimilislækna á að kynnast meðferðar- starfinu betur og þá sérstaklega til að auka færni í greiningu áfengissýki. Eitt af meginverkefnum í heilbrigðis- þjónustu framtíðarinnar verður að tryggja sjúklingum með langvinna sjúkdóma, þar á meðal vímuefnasjúkdóma, samfellu í þjónustu. Fyrirkomulag í heilbrigðisþjón- ustu sem byggir á skipulegri samvinnu meðferðarinnar og heilsugæslunnar gerir samspil vímuefnasjúkdóma og algengra líkamlegra og geðrænna sjúkdóma ljósara og örvar um leið eðlilega þróun þekkingar á vímuefnasjúkdómum. Rík áhersla hefur verið lögð á lykilhlutverk heilsugæslunnar við að fyrirbyggja þann skaða sem af mis- notkun áfengis og vímuefna hlýst. Betri hlutdeild og skilningur heimilislækna á þeirri framvindu og atburðarás sem áfeng- ismeðferð er, mun stuðla að aukinni færni í íhlutun og greiningu vímuefnasjúkdóma, auk þess að skila betri stuðningi í endur- hæfingarferlinu. Sjúklingar sem áður hafa farið í áfengismeðferð eru tíðir gestir í heilsugæslunni og hefur heilsu- gæslan alla tíð verið mikilvægur hlekkur í endurhæfingu vímuefnasjúklinga. Heim- ilislæknirinn leggur á ráðin um frekari endurhæfingu, sinnir nauðsynlegum vott- orðaskrifum auk tengsla við aðra sérfræði- lækna og félagsþjónustuna. Aðstandendur leita oft til læknis með óljós einkenni streitu og líkamlegar kvartanir þar sem tengsl áfengissýki sem fjölskyldusjúkdóms eru undirliggjandi en dulin. Betri þekking á eðli áfengissýki sem fjölskyldusjúkdóms er til dæmis mjög mikilvæg sem hluti nálgunar heilsugæslunnar í mæðra- og ungbarnavernd. Ásókn vímuefnasjúklinga í ávanabind- andi lyfseðilsskyld lyf, einkum kvíðastill- andi lyf, svefnlyf og verkjalyf, er veruleg og mikilvægt að heilsugæslulæknar séu á varðbergi og upplýsi um ranga og skað- lega notkun slíkra lyfja. Notkun svefnlyfja og kvíðastillandi lyfja er of mikil á íslandi og mun meiri en á Norðurlöndunum. Vit- undarvakningar er þörf innan heilbrigðis- kerfisins til að stemma stigu við þessari óhollu og varasömu notkun. Ég legg til að gerður verði samstarfs- samningur milli SÁÁ og heilsugæslunnar og óska eftir fundi um nánari útfærslu sem fyrst. Samningurinn þarf ekki að kosta neitt en gæti hugsanlega leitt til aukinna fjárframlaga til SÁÁ í því skyni að bæta starfsaðstöðuna til að sinna læknabréfum. Vel mætti hugsa sér að sérstök fjárveiting gerði heimilislæknum kleift að taka námstímabil hjá SÁÁ (til dæmis viku eða jafnvel lengra tímabil) til að kynnast nánar meðferðarstarfinu. í áðurnefndri viðhorfskönnun kom fram að margir heimilislæknar vilja gjarnan kynna sér meðferðarstarfið af eigin raun. Idungadeild Læknafélags íslands 22.-25. ágúst. Fyrirhuguð er fjögurra daga ferð um Vestfirði 22.-25. ágúst. Gist verður á Hótel ísafirði í tvær nætur og á nýja Fosshótelinu á Patreksfirði eina nótt. Fararstjóri verður Magnús Jónsson. Nákvæm fer- ðatilhögun er í vinnslu. LÆKNAblaðið 2013/99 357

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.