Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 34
UMFJOLLUN O G GREINAR
Aldrei leitað samráðs um frumvarpið
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
A Alþingi í vetur lagði innanríkisráð-
herra fram frumvarp til nýrra hegningar-
laga sem mætt hefur mikilli gagnrýni
sérfræðinga á sviði réttargeðlækninga.
Páll Matthíasson framkvæmdastjóri
Geðsviðs Landspítalans er með (sterkan)
bakgrunn í réttargeðlækningum og er
aðalhöfundur ítarlegra og alvarlegra at-
hugascmda sem Landspítalinn gerði við
frumvarpið.
Páll segir ýmislegt í nýlega framkomnu
frumvarpi til hegningarlaga um öryggis-
ráðstafanir fanga, sem innanríkisráðherra
lagði fram og er samið af refsiréttarnefnd
innanríkisráðuneytisins, valda sér veru-
legum áhyggjum.
„Hegningarlögin eru orðin rúmlega 70
ára gömul og hafa verið í endurskoðun hjá
refsiréttarnefnd í nokkur ár. í því ferli hef-
ur aldrei verið leitað samráðs við Geðsvið
Landspítalans eða nokkra geðlækna hvað
varðar fyrirkomulag öryggisráðstafana en
þeim er einkum beitt þegar um fanga með
geðsjúkdóma er að ræða. Það er miður
að öll þessi vinna sé í rauninni til einskis
því þegar ég og kollegar mínir fá loksins
að sjá frumvarpið þá er það komið £ um-
fjöllun allsherjarnefndar Alþingis. Það
sætir reyndar furðu að allsherjarnefnd
sendi frumvarpið til umsagnar út um allar
trissur en ekki til Landspítalans, sem má
gera ráð fyrir að beri í rauninni hitann og
þungann af afleiðingum frumvarpsins. En
þar er vonandi vangá um að kenna. Spyrja
má hvers vegna refsiréttarnefnd ákveður
að vinna í algeru tómarúmi án samráðs
við sérfræðinga á sviði réttargeðlækn-
inga."
Frumvarpið tekið til endurskoðunar
Páll bætir við að hann hafi því verið til-
neyddur til að skrifa ítarlegar athuga-
semdir við frumvarpið fyrir hönd Geð-
sviðs Landspítalans og haft samráð við
ýmsa samstarfsmenn sína sem sérfróðir
eru á þessu sviði. „Þetta eru Sigurður Páll
Pálsson yfirlæknir réttargeðdeildar Land-
spítalans, Engilbert Sigurðsson prófessor
í geðlæknisfræði og Kristinn Tómasson
formaður Geðlæknafélags íslands sem
354 LÆKNAblaðið 2013/99
einnig hefur mikla reynslu sem með-
dómandi við Héraðsdóm Suðurlands. Þá
höfðum við samráð við samtök sjúklinga
eins og Hugarafl og Geðhjálp. Allir þessir
aðilar deildu áhyggjum mínum og sendu
inn athugasemdir. Það verður að segja
þáverandi innanríkisráðherra til hróss að
hann sá sóma sinn í að draga frumvarpið
til baka eftir að athugasemdir okkar höfðu
komið fram og í framhaldinu var okkur
boðið á fund með ráðuneytinu þar sem
ákveðið var að nefndin myndi skoða málið
áfram. Ég bauð fram samstarf geðlækna
við endurskoðun og lagfæringu á þeim
kafla frumvarpsins er snýr að öryggisráð-
stöfunum vegna geðsjúkra fanga. Ég tel í
rauninni ekki nægilegt að refsiréttarnefnd
fari heim og endursemji frumvarpið án
ítarlegs samráðs við sérfræðinga á sviði
réttargeðlækninga. Annmarkarnir á frum-
varpinu bera með sér slíkt þekkingarleysi
á málaflokknum að nauðsynlegt er að við
tökum virkan þátt í að semja þessi lög."
Að sögn Páls eru gildandi lög í sumu
svo úrelt og gamaldags að þeim hafi ekki
verið fylgt til hins ítrasta um langa hríð.
„Með nýja frumvarpinu er gefið í skyn að
verið sé að þrengja heimildir til frelsis-
sviptingar og öryggisvörslu geðsjúkra
fanga en þegar grannt er skoðað er í praxís
væntanlega verið að víkka heimildirnar
og með því brjóta mannréttindi á við-
komandi einstaklingum. Athugasemdir
okkar byggja á faglegum, rekstrarlegum
og mannréttindalegum rökum.
Stærsti gallinn við frumvarpið er að
þekking réttargeðlækninga styður einfald-
lega ekki nálgun frumvarpsins að mála-
flokknum. Það er til dæmis afar umdeilt
að beita langtímaþvingun til að lækna
fíknivanda enda er árangurinn af þvf
nær enginn. Frekar ætti að afnema allar
heimildir ríkisvaldsins til að svipta fíkla
frelsi til lengri tíma, líkt og gert er í Eng-
landi, en setja á sama tíma aukinn kraft í
fíknimeðferð."
Engin lækning til við barnagirnd eða siðblindu
Þá leggur Páll áherslu á að engin árang-
ursrík lækning sé til við afbrigðilegri
kynhegðan, þar með talinni barnagirnd.
„Það er afar mikilvægt að hafa í huga að
barnagirnd er í grunninn ekki heilbrigðis-
vandamál heldur löggæsluvandamál.
Geðheilbrigðisstarfsfólk getur vissulega
komið að stuðningi við einstaklinga
haldna barnagirnd eftir að þeir nást, sem
og við fórnarlömbin, en það er misráðið
og á misskilningi byggt að leggja fólk inn
á sjúkrahús til „meðhöndlunar" á barna-
girnd. Ekki verður fyrirséð hvenær slíkri
meðferð ætti að ljúka þar sem heimildir
fyrir gagnsemi meðferðar eru misvísandi
og batahorfur afar óvissar."
Til að leggja áherslu á fáránleika þess-
arar nálgunar segir Páll að meðferðarvist-
un við barnagirnd þar sem „bati" viðkom-
andi er metinn reglulega, sé ámóta gáfuleg
og að loka mann sem er 175 sentimetrar
á hæð inni á geðdeild og segja að honum
verði sleppt þegar hann verði orðinn 2
metrar. „Og hann lengist ekki frekar þótt
hann sé mældur á sex mánaða fresti."
Þá segir Páll: „Andfélagsleg persónu-
leikaröskun og siðblinda eru varanlegir
ágallar í persónuleika fólks. Meðferðarár-
angur veldur miklum vonbrigðum." Ekki
bætir úr skák að jafnvel eru „vísbendingar
um að sérhæfð meðferð gegn slíku skili
ekki árangri en auki mögulega getu sið-
blindingja til að fela áform sín."
Fólk sem haldið er alvarlegum geðsjúk-
dómum getur hins vegar framið glæpi í
sturlunarástandi og er þá metið ósakhæft.
„I slíkum tilfellum skilar geðlæknisfræði-
leg meðferð yfirleitt þeim árangri að ein-
kenni batna og hættan af einstaklingnum
minnkar eða hverfur alveg," segir Páll.
„Hins vegar hefði oft mátt hjálpa þessum
einstaklingum fyrr. A réttargeðdeild
Landspítalans eru ósakhæfir einstaklingar
sem hefðu aldrei framið þau ofbeldisverk
sem leiddu til dóms hefðu þeir fengið við-
eigandi stuðning frá upphafi.
Það er mikill munur á einstaklingum
með alvarlega, meðhöndlanlega geðsjúk-
dóma og öðrum. Geðlæknar hafa þekk-
ingu á greiningu fjölmargra vandkvæða,
en aðeins meðferðarúrræði sem gagnast
gagnvart alvarlegum geðsjúkdómum,
en í afar takmörkuðum mæli eða alls
ekki gagnvart andfélagslegri persónu-
leikaröskun, siðblindu, afbrigðilegri
kynhegðan, þroskahömlun og einhverfu.
k