Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 49
Azithromycin Actavis - 500 mg filmuhúðaðar töflur Azithromycin Actavis 500 mg filmuhúðaðar töflur. Virkt innihaldsefni: Hver tafla inniheldur 500 mg af azitrómýcíni (sem tvíhýdrat). Ábendingar: Azitrómýcín er ætlað gegn eftirtöldum bakteríusýkingum af völdum örvera sem eru næmar fyrir azitrómýcíni: Bráð skútabólga af völdum baktería (greind með viðeigandi hætti), bráð miðeyrabólga (greind með viðeigandi hætti), kokbólga, eitlubólga, bráð versnun langvinnrar berkjubólgu (greind með viðeigandi hætti), væg til miðlungi alvarleg lungnabólga sem smitast utan sjúkrahúss, sýkingar í húð og mjúkvefjum sem eru vægar til miðlungi alvarlegar, t.d. hárslíðursbólga, húðbeðsbólga, heimakoma, bólga í þvagrás og leghálsi af völdum Chlamydia trachomatis, án fylgikvilla. Hafa skal í huga opinberar leiðbeiningar um viðeigandi notkun sýklalyfja. Skammtar og lyfjagjöf: Azithromycin Actavis skal gefa í einum skammti á dag. Hér á eftir er gefin upp meðferðarlengd fyrir mismunandi sýkingar.Töflurnar má taka með eða án fæðu. Töflurnar skal taka með V4 glasi af vatni. Börn oa unalinaar með líkamsbvnad vfir 45 ka. fullorðnir oa aldraðir: Heildarskammturinn er 1.500 mg, gefinn sem 500 mg einu sinni á dag í 3 daga. Að öðrum kosti má gefa sama heildarskammtinn (1.500 mg) á 5 dögum, 500 mg fyrsta daginn og 250 mg á dögum 2 til 5. Ef um er að ræða bólgu í þvagrás og leghálsi af völdum Chlamydia trachomatis, án fylgikvilla, er skammturinn 1.000 mg í stökum skammti til inntöku. Börn oa unalinaar með líkamsbvnad undir 45 ka: Azithromycin Actavis töflur henta ekki sjúklingum sem eru með líkamsþyngd undir 45 kg. Önnur lyfjaform eru fáanleg fyrir þennan hóp sjúklinga. Aldraðir siúklinaar: Nota má sömu skammta handa öldruðum sjúklingum og handa fullorðnum. Siúklinaar með skerta nvrnastarfsemi: Ekki er þörf á skammtaaðlögun hjá sjúklingum með væga til miðlungi alvarlega skerðingu á nýrnastarfsemi (gauklasíunarhraði 10 -80 ml/mín.). Siúklinaar með skerta lifrarstarfsemi: Ekki er þörf á skammtaaðlögun hjá sjúklingum með væga til miðlungi alvarlega skerðingu á lifrarstarfsemi. Frábendingar: Ofnæmi fyrir azitrómýcíni, erýtrómýcíni, öðrum sýklaly^um af flokki makrólíða eða ketólíða eða einhverju hjálparefnanna. Upplýsingar um aukaverkanir, miiliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfjaskra.is. Pakkningar og hámarksverð í smásölu (maí 2013): 500 mg, 2 stk.: 2.466 kr., 3 stk.: 3.127 kr. Afgreiðsluflokkur: R. Greiðsluþátttaka: 0. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC. Frekari upplýsingar: www.actavis.is, s: 550 3300. Dagsetning síðustu samantektar um eiginleika lyfsins: 30. ágúst 2012. Mai2013. ISN Actavis Selincro 18 mg filmuhúðaðar töflur. Virkt innihaldsefni: nalmefen 18,06 mg (sem hýdróklórið díhýdrat). Markaðsleyfishafi: H. Lundbeck A/S Abendingar: Selincro er ætlað til að draga úr áfengisneyslu hjá fullorðnum sjúklingum sem haldnir eru áfengissýki og hafa mikla heilsufarslega áhættu af drykkju (DRL), eru án líkamlegra fráhvarfseinkenna og þurfa ekki bráða afeitrun. Einungis á að ávísa Selincro ásamt samfelldum sálfélagslegum stuðningi sem beinist að meðferðarheldni og að draga úr áfengisneyslu. Einungis á að heija Selincro meðferð hjá sjúklingum sem hafa áfram mikla heilsufarslega áhættu af drykkju tveimur vikum eftir upphafsmat. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Sjúklingar: sem eru að taka ópíóíð verkjalyf; sem haldnir eru ópíóíðafíkn eða hafa nýlega verið það; með bráð ópíóíða fráhvarfseinkenni; sem grunaðir eru um nýlega neyslu ópíóíða; með alvarlega skerta lifrarstarfsemi (Child-Pugh skilgreining); með alvarlega skerta nýrnastarfsemi (eGFR <30 ml/mín. á 1,73 m2); sem nýlega hafa fengið bráð fráhvarfseinkenni vegna áfengis (að ofskynjunum, krömpum og drykkjuóráði (delirium tremens) meðtöldu). Skammtar: Taka á Selincro eftir þörfum. Sjúklingur á að taka eina töflu hvern þann dag sem hann finnur fyrir hættu á áfengisneyslu, helst 1-2 klst. fyrir þann tíma sem búast má við að drykkjan hefjist. Hafi sjúklingur hafið áfengisneyslu án þess að taka Selincro, á hann að taka eina töflu eins fljótt og auðið er. Hámarksskammtur Selincro er ein tafla á dag. Taka má Selincro með eða án fæðu. Selincro er til inntöku. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá - www.serlyfiaskra.is Pakkningastærðir og leyfilegt hámarksverð í heildsölu (júní 2013): 7 stk.:, 14 stk.:, 28 stk.. Sjúkratryggingar taka almennt ekki þátt í kostnaði við lyfið. Lyfið er lyfseðilskylt. Dagsetning síðustu endurskoðunar textans: 25. febrúar 2013. Fulltrúi markaðsleyfishafa á Islandi sem veitir upplýsingar um lyfið: Lundbeck Export A/S, útibú á íslandi. Hverafold 1-3, 112 Reykjavík. Sími 414 7070 Email: bsig@lundbeck.com. LÆKNAblaðiö 2013/99 369

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.