Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 12
RANNSÓKN
Boð um þátttöku í rannsókn (n=325)
Tlmapunktur 1: Grunnmæling
Þátttakendur • Þátttakendur úr öldrunarrannsókn Hjartaverndar sem þáöu þátttöku og stóöust mat (n=92) • Makar sem þáöu þátttöku og stóöust mat (n=25) • Þáðu þátttöku en stóöust ekki mat (n=4)
Val af handahófi tvo hópa (n=117)
Hópur 1 - Fyrri þjálfunarhópur (n=56) • Karlar (n=25) • Konur (n=31) Hópur 2 - Seinni þjálfunarhópur (n=61) - • Karlar (n=29) • Konur(n=32)
Þjálfunartimabil frá júní til desember 2008 • Þeir sem luku þjálfun (n=48) • Karlar (n=22) • Konur(n=26) Viömiöunartimabil frá júní til desember2008 • Þeir sem luku timabili (n=58) • Karlar (n=27) • Konur(n=31)
Tlmapunktur 2: Mæling Timapunktur 2: Mæling
Eftirfylgnitímabil frá janúartil júní 2009 • Þeir sem luku tímabili (n=45) • Karlar(n=21) • Konur(n=24) Þjálfunartímabil frá janúar til júní 2009 • Þeir sem luku þjálfun (n=50) • Karlar(n=25) • Konur(n=25)
Timapunktur 3: Mæling Tímapunktur 3: Mæling
Eftirfylgnitímabil frá júní til desember 2009 • Þeir sem luku timabili (n=42) \ • Karlar(n=19) • Konur(n=23) Eftirfylgnitimabil frá júnf til desember 2009 t • Þeir sem luku tlmabili (n=47) • Karlar (n=22) • Konur(n=25)
Timapunktur4: Mæling Tímapunktur 4: Mæling
Mynd 1. Flæðirit rannsóknar.
Efniviður og aðferðir
Snið rannsóknar og pátttakendur
Snið rannsóknar var víxlað þar sem þátttakendum (n=117) var
skipt af handahófi í tvo hópa, þjálfunarhóp 1 (H-l; n=56) og þjálf-
unarhóp 2 (H-2; n=61) (mynd 1). Að loknum grunnmælingum fór
þjálfunar- og rannsóknartími fram í þremur 6 mánaða tímabilum.10
H-1 hóf þjálfun sem stóð yfir í 6 mánuði meðan H-2 virkaði sem
viðmiðunarhópur á sama tíma. Eftir 6-MFÞ hjá H-1 voru mælingar
endurteknar hjá báðum rannsóknarhópum (tímapunktur 2). Af-
skiptum rannsakenda af þjálfun H-1 lauk á þessum tímapunkti.
Næstu 6 mánuði tók H-2 þátt í samskonar þjálfun og H-l. Eftir
þjálfunartíma H-2 voru mælingar endurteknar hjá báðum hópum
(tímapunktur 3) og lauk þá afskiptum rannsóknaraðila af þjálfun
H-2. Sex mánuðum eftir að H-2 lauk sinni þjálfun voru mælingar
endurteknar í fjórða sinn á báðum hópum (tímapunktur 4) (mynd
1).
Þátttakendur í þessari rannsókn voru heilbrigðir einstaklingar
sem höfðu áður tekið þátt í Öldrunarrannsókn Hjartaverndar
(AGES Reykjavik Study).n Þeim sem höfðu náð >23 stigum úr
MMSE-prófi (Mini Mental State Examination), >17 stigum úr DSST-
prófi (Digit Symbol Substitution Test) og >7 stigum úr SPPB-hreyfi-
færniprófi (The Short Physical Performance Battery Test)'2 var boðið
að taka þátt í þessari íhlutunarrannsókn.
Af þeim 325 eldri einstaklingum sem höfðu náð 70 ára aldri
þáðu 96 að taka þátt í rannsókninni. Af þeim uppfylltu 92 kröfur
um þátttöku. Þá var mökum einnig boðin þátttaka og þáðu það
25 einstaklingar. Helstu ástæður fyrir að hafna þátttöku voru of
langur og bindandi rannsóknartími, áhugaleysi og veikindi maka.
Þátttakendur fylltu út spurningalista um almenna heilsutengda
þætti sem trúnaðarlæknir fór yfir í öryggisskyni og samþykkti
þátttöku með tilliti til þeirrar þjálfunar sem framundan var. Allir
þátttakendur rituðu undir upplýst samþykki. Rannsóknin var
tilkynnt til Persónuverndar og samþykkt af Vísindasiðanefnd
(VSNb20080300114/03-1).
Þjálfun og íhlutanir
íhlutun fólst í 6 mánaða fjölþættri þjálfun með áherslu á dag-
lega þolþjálfun og kraftþjálfun tvisvar sinnum í viku. Þessu til
stuðnings voru fjórir fyrirlestrar um eftirfarandi þætti; heilsu-
tengda öldrun, þolþjálfun, kraftþjálfun og skipulag þjálfunar, auk
þriggja fyrirlestra um næringu.
Þolþjálfun var fólgin í daglegri göngu á 6 mánaða þjálfunartíma.
Tímalengd hverrar æfingar jókst stig af stigi, frá 20 mínútna
æfingum fyrstu vikuna í rúmlega 40 mínútur síðustu vikurnar.
Meðalþjálfunartími á tímabilinu var áætlaður um 35 mínútur á
dag en það er sá tími sem sérfræðingar á sviði öldrunar áætla að
þurfi til að viðhalda starfsemi hjartans, æða- og lungnakerfis-
ins.13 Kraftþjálfun fór fram í líkams- og heilsuræktarstöð tvisvar
sinnum í viku, á þriðjudögum og föstudögum. Kraftþjálfun var
einstaklingsmiðuð og innihélt 12 æfingar fyrir helstu vöðvahópa
líkamans. Sérhæfð kraftþjálfunartæki voru notuð og var þjálfunin
ávallt undir leiðsögn íþróttafræðinga. Markmið fyrri hluta
þjálfunartímans voru fólgin í kennslu, aðlögun og þjálfun á vöðva-
þoli, en vöðvaþol er hæfileiki vöðvanna til að endurtaka oft sam-
drátt án þess að þreyta myndist.8 Þjálfun á vöðvaafli var megin-
markmiðið á seinni þremur mánuðum þjálfunartímans.10
Á íhlutunartíma voru skipulagðir þrír stuttir fyrirlestrar um
næringu fyrir báða hópa. Einstaklingar í H-2 fengu einnig ein-
staklingsviðtöl og ráðgjöf um næringu á seinna þjálfunartímabili
og tvær kennslustundir í eldhúsi. Fyrirlestrar voru byggðir á ráð-
leggingum um mataræði fyrir eldri aldurshópa frá Lýðheilsustöð
og Landlæknisembætti.14 Frekari upplýsingar um íhlutun rann-
sóknarinnar er að finna í fyrri grein.10
Mælingar
Hæð var mæld með 0,1 cm nákvæmni með viðurkenndum hæðar-
mæli (Seca 206) og þyngd með 0,1 kg nákvæmni með viðurkennd-
um þyngdarmæli sem innihélt stillanlegan kvarða (Seca HV120).
Líkamsþyngdarstuðull (LÞS) var reiknaður út með því að deila
hæð í öðru veldi (m2) í líkamsþyngd (kg). Til að mæla líkamlega
hreyfigetu var SPPB-prófið notað en hreyfijafnvægi var mælt
með 8-feta gönguprófi (8-foot up-and-go test). Kraftur var mældur
í sérhönnuðu kraftmælingatæki (adjustable dynamometer chair) og
þol mælt með 6 mínútna gönguprófi (6MW). Dagleg hreyfing var
mæld með hreyfimælum (actigraph accelerometers). Eingöngu var
notast við gögn úr mælum sem höfðu mælt hreyfingu í minnst
einn helgardag og tvo virka daga, minnst 8 klukkustundir hvern
dag. Lýðfræðilegum og klínískum rannsóknarniðurstöðum var
safnað af þjálfuðum rannsakendum. Frekari upplýsingar um mæl-
ingar rannsóknarinnar er að finna í fyrri grein.10
Tölfræðileg úrvinnsla
Aðhvarfsgreining fyrir endurteknar mælingar var notuð við
tölfræðigreiningu á gögnunum. Til þess að gera grein fyrir fylgni
á milli mælinga á sama einstaklingi var notaður slembiþáttur
(random effect). Notuð var sjálfsaðhverf samfylgni (first order auto-
regressive covariance) milli mælinga. Stikar fyrir hvort kyn fyrir
sig voru hafðir í líkaninu til að endurspegla væntigildi á hverjum
tímapunkti fyrir H-1 (I): pn, pI2, p]3, pH, og H-2 (D): pm, pD2, pD3,
pD4 (samtals 16 stikar). Leiðrétt var fyrir aldri. Allir þátttakendur
332 LÆKNAblaðiö 2013/99