Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN
Hrafn Sveinbjarnarson, fyrsti íslenski læknirinn.
Minning 800 árum síðar
Ráðstefna á Hrafnseyri við Arnarfjörð, 24. ágúst 2013
Sigurður
Guðmundsson
læknir, sérfræðingur í
lyflækningum og smitsjúk-
dómum, lyflækningasviði
Landspítala, prófessor,
læknadeild
Háskóla íslands.
siggudm@landspitali.is
„Atburðir margir, þeir er verða, falla mönn-
um oft úr minni en sumir eru annan veg
sagðir en verið hafa og trúa því margir er
logið er en tortryggja það satt er".1 Þannig
hefst Hrafns saga Sveinbjarnarsonar hin
sérstaka. Þarna lýsir höfundur réttmætum
efasemdum sínum um langminni lýðsins.
Það var hverfult á tímum söguritara rétt
eins og nú. Ekki á það síst við þegar fjallað
er um pólitík, þá eins og nú.
Hrafns saga fjallar enda um pólítík.
Hún er talin vera nokkurs konar pólitískt
varnarrit að Hrafni látnum undir miklum
áhrifum frá helgisögnum miðalda.2 Ut-
dráttur Hrafns sögu sem birtist í Sturlungu
er styttri, ekki síst hefur höfundur Sturl-
ungu fellt úr þeim köflum sem mest gera
úr helgiljóma Hrafns, en meira fjallað um
deilur hans við banamann sinn Þorvald
Vatnsfirðing.2 Sagan hin sérstaka minnir
því e.t.v. á ævisögur samtímans, einkum
þær sem skrifaðar eru af aðdáendum nýlát-
inna mikilmenna.
Því mikilmenni var Hrafn, fjölvís hæfi-
leikamaður. Ef hann hefði fæðst nokkrum
öldum síðar hefði hann vafalítið orðið
okkar helsti endurreisnarmaður. Honum
er svo lýst í sögunni að hafa orðið „snemm-
endis mikill atgervismaður. Hann var völ-
undur að hagleik bæði að tré og að járni og
skáld", en höfundur sögunnar bætir þar við
af sagnfræðilegu raunsæi og heiðarleik að
„þó hann hafi fátt kveðið svo að vér vitum".
Þessi viðbót hlýtur að auka trúverðugleik
og heilindi söguritara. Hrafni er svo áfram
lýst að hann var „hinn mesti læknir og vel
lærður, ... , lögspakur maður og vel máli
farinn og að öllu fróður". Honum er enn-
fremur lýst sem miklum á velli og atgervis-
manni, hann var „syndur vel og við allt
fimur það er hann hafðist að, bogmaður
mikill og skaut manna best handskoti".1
Þetta er maðurinn sem við íslensir
læknar viljum að sé minnst sem fyrsta ís-
lenska lærða læknisins, mannsins sem ætti
að hafa læknanúmerið 0001. Auðvitað hafa
ýmsir aðrir landar okkar sinnt sjúkum,
læknað og líknað á þessum tímum, þar
með talið löngu fyrir hans daga. Heim-
ildir munu þó óvissar um skólun þeirra,
þó snjallir væru þeir margir. Erfitt er að
minnast ekki á hvernig Þorgerður Egils-
dóttir læknaði föður sinn Skallagrímsson
af hugsýki og sorg í sjálfsvígshugleiðingum
eftir sonarmissi. Hún beitti þar brögðum
og mannlegu innsæi, aðferðafræði sem enn
er beitt í nútíma læknisfræði. Kannski var
Þorgerður fyrsti íslenski geðlæknirinn eða
geðhjúkrunarfræðingurinn.
I Hrafni höfum við læknar samt ákveð-
ið tákn, hann var okkar fyrstur, og þannig
viljum við hugsa til hans. Hann er okkur
nauðsynlegur sem upphaf, einhvers konar
ármaður. Síðan hefur okkur fjölgað, að
vísu hægt næstu aldirnar en hraðar síðar,
og þekking okkar vaxið og dafnað. Næsti
bautasteinn læknisfræðinnar hérlendis er
svo auðvitað Bjarni Pálsson, um fimm og
hálfri öld síðar, sem líka á að vera okkur
tákn og fyrirmynd. Þeir Hrafn og Bjarni
verðskulda háan sess í hugum okkar nú-
tímalækna, og ég held að þann sess hafi
þeir báðir.
Um Hrafn, ævi hans sem höfðingja, píla-
gríms og læknis verður fjallað á ráðstefnu
sem haldin verður á Hrafnseyri þann 24.
ágúst n.k. Hún er haldin til að minnast þess
að 800 ár voru í mars síðastliðnum liðin frá
því að Þorvaldur Vatnsfirðingur stóð að
vígi Hrafns. A ráðstefnunni munu fimm
fræðimenn fjalla um ævi hans, lækningar,
kirkjuleg áhrif, skáldskapinn og pólitískar
deilur. Fleiri munu einnig um hann fjalla
í tali og tónum. Ágrip erinda eru birt í
þessu tölublaði Læknablaðsins ásamt fjöl-
breyttri dagskrá. Hrafni og ævi hans hafa
áður verið gerð góð skil á síðum blaðsins
af þeim Erni Bjarnasyni3'4 og Páli Ásmunds-
syni.5 Hér leggja fleiri hönd á plóg, fólk með
þekkingu á sagnfræði, trúarbrögðum, nor-
rænum fræðum og lækningum tekur hönd-
um saman og bregður skýrara ljósi á ævi
og störf þessa merka manns, táknmyndar
okkar lækna.
Heimildir
1. Hrafns saga Sveinbjamarsonar hin sérstaka. Sturlunga
saga II. Ritstj. Ömólfur Thorsson, Svart á hvítu 1988: 883-
931.
2. Sturlunga saga, skýringar og fræði. Inngangur. Ritstj.
Ömólfur Thorssson, Svart á hvítu 1988:xxviii.
3. Öm Bjamason. Kristinn heimur miðalda og Hrafn
Sveinbjamarson. Læknablaðið 2004; 90:167-70.
4. Öm Bjamason. Hrafn Sveinbjarnarson - líkn og lækningar.
Læknablaðið 2004; 90: 253-7.
5. Páll Ásmundsson. 800 ár frá vígi Hrafns Sveinbjamarsonar.
Læknablaðið 2013;99:164-5.
The first lcelandic physician, Hrafn Sveinbjarnarson.
In memoriam - 800 years later.
Sigurður Guðmundsson
Consultant in Internal Medicine and Infectious Diseses,
Landspítali University Hospital, Professor, School of Medicine,
University of lceland.
LÆKNAblaðið 2013/99 327