Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 32

Læknablaðið - 15.07.2013, Blaðsíða 32
UMFJÖLLUN O G GREINAR Lífsstíll og mataræði haldast í hendur ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Mataræði.is er upplýsingasíða sem Axel F. Sigurðsson hjartalæknir stofnaði í janúar 2012 og heldur úti af mikilli ósér- hlífni með fjölbreyttum upplýsingum um mataræði, næringu, hreyfingu, mat- arkúra og fleira sem snýr að heilbrigðum lífsstíl. Helsti kostur þessara upplýsinga er hversu hlutlægar og yfirvegaðar þær eru; bent er á kost og löst án þess að taumur eins sé dreginn á kostnað annars. Lesandanum er látið eftir að draga sínar ályktanir. „Þrátt fyrir að dánartíðni vegna hjarta- og æðasjúkdóma hafi farið lækkandi á síðustu árum gera þessir sjúkdómar enn í dag miklar kröfur til heilbrigðiskerfisins. I dag lifa einstaklingar með hjartasjúkdóma oft mun lengur en áður og því má gera ráð fyrir að hjartasjúklingar séu fleiri í dag en áður var. Hollari lífsstíll, aðgerðir og betri lyfjameðferð ráða mestu um að horfur hafa batnað," segir Axel í upphafi samtals okkar sem fer fram á stofu hans í Hjartamiðstöðinni í Holtasmára. „Það sem virðist þó skipta mestu máii og hefur komið fram í rannsóknum Hjartaverndar er minna vægi áhættuþátta. Þar eiga minnkaðar reykingar stóran þátt, einnig hafa blóðfitugildi íslendinga lagast, sem líklega má rekja til hollara mataræðis, og við erum betur í stakk búin til að takast á við háan blóðþrýsting. Því hefur hins vegar verið spáð að þessi jákvæða þróun muni snúast við á næstu árum vegna aukinnar offitu meðal þjóðarinnar enda eru hjarta- og æðasjúkdómar ásamt áunn- inni sykursýki þeir sjúkdómar sem fylgja henni. Niðurstöður norrænnar könnunar sem birt var í vetur sýna að íslendingar eru með hæsta líkamsþyngdarstuðulinn af Norðurlandaþjóðunum þannig að það er kannski ekki svo langt í að við förum að sjá hækkandi tölur um nýgengi hjarta- og æðasjúkdóma ásamt sykursýki og öðrum fylgikvillum offitunnar að öðru óbreyttu." Vantaði haldgóöar upplýsingar Axel segir að upphaf þess að hann opnaði síðuna Mataræði.is megi rekja til fyrir- spurna sjúklinga hans um hvernig þeir gætu tileinkað sér bættan lífsstíl og betra mataræði. „Ég var í rauninni að taka saman upplýsingar og fróðleik fyrir sjúk- lingana mína sem ég sjálfur taldi áreiðan- legar. Sumir hafa nú gert góðlátlegt grín að mér fyrir þessa síðu þar sem ég hef ekki beinlínis verið þekktur fyrir áhuga á mat og mataræði í gegnum tíðina. Ég hef lengi vel, eins og margir kollegar mínir, haft mestan áhuga á að greina sjúkdóma og lækna veikt fólk. Lengst af gaf ég mér því oft lítinn tíma til að ræða mataræði við sjúklingana mína, þó ég vissi auð- vitað innst inni að heilbrigður lífsstíll skiptir miklu máli. Síðan er oft tímafrekt að fara yfir þessa hluti og árangurinn er vandmældur. Á síðustu árum hefur áhugi minn á forvörnum og heilbrigðum lífsstíl aukist umtalsvert. Ég reyni nú af fremsta megni að fara yfir þessa hluti með mínum sjúklingum. Hins vegar komst ég fljótt að því að það er erfitt fyrir fólk að afla sér áreiðanlegra og vandaðra upplýsinga um mataræði og heilbrigðan lífsstíl. Áður fyrr, þegar sjúklingar spurðu mig út í mataræði, voru svörin nokkuð stöðluð: „Þú skalt forðast feitar mjólkurvörur, ekki borða mettaða fitu og kólesteról en almennt skaltu bara gæta hófs í því hvað þú borðar." í dag kveðst Axel nálgast þetta á annan hátt. „Ég bið sjúklinginn að lýsa því fyrir mér hvað og hvernig hann borðar. Ég áttaði mig á því að ég gæti ekki ráðlagt fólki um mataræði nema ég vissi hvað það borðaði. í framhaldi af þessu gef ég svo ráð og bendi á lesefni. Þetta var í raun kveikjan að heimasíðunni. Mér fannst hreinlega vanta vandað lesefni sem ég gat bent fólki á." Mataræði.is hefur þó sannarlega gagnast fleirum en sjúklingum Axels þar sem heimsóknir á viku skipta hundruðum og fjölmargir hafa nýtt sér upplýsingar þaðan með góðum árangri. „Ábendingar mínar til sjúklinga minna felast í því að þeir geti lesið sér til um það sem hentar þeim og þeirra ástandi. Sumir eru of þungir, sumir þurfa að lækka kól- esterólið, aðrir vilja auka hreyfinguna og upplýsingarnar sem ég hef dregið saman og pistlarnir sem ég hef skrifað beindust í upphafi að þessu. Ég áttaði mig hins- vegar fljótt á því að þessi málefni höfðuðu til mun breiðari hóps, og ég komst að því að almenningur hafði miklu meiri áhuga á því að lesa sér til um mataræði og heil- brigðan lífsstíl en ég hélt. Efnið á síðunni nær því til fleiri þátta en mataræðis eingöngu og því eru þar upplýsingar um hreyfingu, forvarnir og heilbrigðan lífsstíl og margt annað sem skiptir heilsu okkar máli." Axel tekur undir það sjónarmið að áherslur í lýðheilsu séu að breytast. „Þetta má glögglega sjá hjá Þjóðverjum og Svíum til dæmis. Boðskapurinn um að fita sé hættuleg hefur hugsanlega leitt okkur á villigötur. Frá því þessar áherslur litu dagsins ljós fyrir næstum 40 árum hefur tíðni offitu farið vaxandi. Áherslan á fitu- snauð matvæli hefur hugsanlega beint og óbeint aukið neyslu á sykri enda er algengt að fitusnauð matvæli séu braðgbætt með ýmis konar sykurtegundum. Fitusnauður matur er bragðvondur en úr því má bæta með sykri. Margir halda því beinlínis fram að þetta hafi skapað offitufaraldurinn. Ég treysti mér þó alls ekki til að fella slíkan áfellisdóm. Hins vegar hefur tíðni offitu aukist hratt hér á landi síðustu 20 árin. Á sama tíma hefur fituneysla landsmanna minnkað í samræmi við manneldismark- mið." í dag eru flestir sérfræðingar, bæði nær- ingarfræðingar og læknar, sammála því að ofneysla sykurs sé mikið áhyggjuefni. Á síðustu misserum hefur lágkolvetna- mataræði notið vinsælda á Vesturlöndum enda er það oft árangursríkt fyrir þá sem þurfa að léttast. Sá sem benti fyrstur á þetta var bandaríski hjartalæknirinn Robert Atkins sem gaf út sína frægu bók „The Atkins Diet Revolution" árið 1972. Kenningar hans um að taka út kolvetni og borða mikla fitu hafa síðan verið mistúlk- aðar á marga vegu en það er vitað að þeir Sykurflóðið skapaði offítufaraldur 352 LÆKNAblaðið 2013/99

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.