Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 10
V ið ætlum að feta í fót-spor BBC og búa til sérfræðingalista, þjálfa ákveðinn hóp kvenna
sem er sérfróður um ákveðin mál-
efni til að koma í fjölmiðlaviðtöl,“
segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir,
formaður Félags kvenna í atvinnu-
lífinu, FKA. Þessi fjölmiðlaþjálfun
sérfróðra kvenna úr atvinnulíf-
inu er liður í fjögurra ára átaks-
verkefni FKA um að auka ásýnd
kvenna í fjölmiðlum. Samkvæmt
tölum sem Creditinfo tók saman
fyrir félagið í lok síðasta árs kom í
ljós að verulega hallar á konur sem
viðmælendur í ljósvakaþáttum og
-fréttum, þær eru þar 30% á móti
70% karlkyns viðmælenda.
Þjálfa konur fyrir framkomu í
fjölmiðlum
FKA skipaði verkefnahóp fjöl-
miðlaátaksins árslok 2013 en
markmiðið er að koma konum í
íslensku atvinnulífi frekar á fram-
færi í fjölmiðlum og aðstoða þær
eftir fremsta megni. „Ég vil meina
að það sé mýta að konur vilji ekki
fara í viðtöl, og þetta heyri ég líka
frá fjölmiðlafólki. Kannski var
það staðreynt fyrir einhverjum
áratugum að konur vildu ekki fara
í viðtöl en það er ekki þannig nú,“
segir Þórdís Lóa. FKA fékk Ingi-
björgu Þórðardóttur, einn ritstjóra
fréttaveitu BBC á Bretlandi, til Ís-
lands í apríl þar sem hún fundaði
bæði með félagskonum og einnig
sérstaklega með íslenskum fjöl-
miðlakonum. „Ein þeirra leiða sem
BBC hefur farið til að fjölga kon-
um í hópi viðmælenda er að útbúa
sérstakan lista sérfræðinga,“ segir
Þórdís Lóa. Þegar er aðgengilegt
gagnasafn á vef FKA.is þar sem
finna má upplýsingar um 300
konur úr íslensku viðskiptalífi og
þeirra sérsvið, konur sem beinlínis
www.siggaogtimo.is
Demantshringur 1.36ct
Verð kr 1.275.000.-
Við þurfum
að geta
borið saman
epli og epli
en því miður
hefur það
reynst erfitt.
Mýta að konur vilji ekki fara í viðtöl
Þjálfun kvenna í atvinnulífinu
til að koma fram í fjölmiðlum
er hluti af átaksverkefni FKA
til að auka ásýnd kvenna í fjöl-
miðlum. Þá er á vef félagsins
listi yfir um 300 konur á
ýmsum sérsviðum atvinnulífs-
ins sem eru tilbúnar í viðtöl.
Síðasta átaksverkefni FKA var
að fjölga konum í stjórnum
fyrirtækja en áður en því
verkefni lauk tók Alþingi af
skarið með lagasetningu um
kynjakvóta. Árangurinn hefur
ekki látið á sér standa í stærri
fyrirtækjum.
lýsa því yfir að þær séu tilbúnar
í fjölmiðlaviðtöl. „Þessi listi er
kominn upp en við erum enn að
vinna í því að gera hann aðgengi-
legri og flokka hann betur,“ segir
hún. Verkefnahópur FKA stefnir
að því að byrja á að þjálfa um 20-30
konur fyrir framkomu í fjölmiðlum
og vinna svo áfram með hópinn.
„Þær konur sem hafa áhuga á að fá
þjálfun og læra hvað þarf að hafa í
huga þegar farið er í viðtal. Við viljum
undirbúa konur betur fyrir þetta en við
viljum líka vinna með fjölmiðlum og
veltum því upp hvort sú aðferðafræði
við að finna viðmælendur þurfi alltaf að
vera eins.“
Ósambærilegar tölur
Samvinna verkefnahóps FKA með
fjölmiðlum hófst í árslok í fyrra þegar
hópurinn boðaði til fundar með ritstjór-
um og vaktstjórum helstu fjömiðla. „Við
áttum afskaplega góðan fund og leggjum
áherslu á að samvinna er hér lykilatriði,“
segir Þórdís Lóa.
Hún bendir á að aðferðafræði við
að finna hlutfall kvenna og karla sem
viðmælenda í fjölmiðlum sé gjarnan
mismunandi eftir rannsóknum og þeim
sem rannsóknirnar gera, og því leggur
FKA einnig áherslu á samstarf við
háskólana og aðra sem gera áreiðan-
legar rannsóknir að halda utan um þær
þannig að hægt sé að bera niðurstöð-
urnar saman. „Við þurfum að geta borið
saman epli og epli en því miður hefur
það reynst erfitt.“ FKA hefur einnig sett
sig í samband við opinberu stjórnsýslu-
nefndina, Fjölmiðlanefnd, sem hefur
eftirlit með starfsemi fjölmiðla. „Fjöl-
miðlar eiga að skila þeirri nefnd inn
ákveðnum gögnum árlega en þær tölur
eru líka ósambærilegar. Við þurfum að
hafa greiningar og gögn sem hægt er
að bera saman.“
Gríðarleg viðhorfsbreyting
Fjölmiðlaverkefni FKA stendur til
ársins 2017 og tekur það í raun við af
öðru fjögurra ára verkefni þar sem
markmiðið var að fjölga konum í stjórn-
um fyrirtækja. Árið 2009 hófst það
verkefni sem FKA tók þátt í ásamt Við-
skiptaráði, Samtökum atvinnulífsins og
Creditinfo. „Í raun snerist það um að
auka fjölbreytni í stjórnun fyrirtækja
og þar er kyn stór breyta,“ segir Þórdís
Lóa. Markmiðið var að hlutfall hvors
kyns í stjórnum væri ekki undir 40% í
lok árs 2013. Það reyndi þó ekki á það
samkomulag að fullu því Alþingi tók af
skarið og 1. september síðastliðinn tóku
gildi lög um kynjakvóta í stjórnum, og
samkvæmt þeim skal hlutfall hvors
kyns ekki vera lægra en 40% þegar
fleiri en 3 eru í stjórn, en ef stjórnin er
þriggja manna skulu bæði kyn eiga þar
fulltrúa. Lögin ná til hluta- og einkafé-
laga með 50 eða fleiri starfsmönnum.
Samkvæmt tölum frá Hagstofunni
voru konur ríflega 30% stjórnarmanna
í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða
fleiri í árslok 2013, en til samanburðar
var hlutfallið 15% árið 2008. Stærsti
hluti fyrirtækja á Íslandi, eða um 98%,
er hins vegar með færri en 50 starfs-
menn, þar af fjöldi einyrkja, og hafa
litlar breytingar átt sér stað hjá þeim
fyrirtækjum. „En fyrst og fremst höfum
við fundið fyrir gríðarlegri viðhorfs-
breytingu og það er það sem þetta snýst
um. Hægt og rólega breytast viðhorfin.
Auk þess hefur sýnt sig að fyrirtæki
sem ekki eru með einsleita stjórn
heldur fjölbreytta taka almennt betri
ákvarðanir fyrir fyrirtækin og þau skila
meiri hagnaði.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Þórdís Lóa Þórhalls-
dóttir, formaður FKA,
á síðasta aðalfundi
félagsins þegar hún
tók við keflinu vegna
fjölmiðlaverkefnisins.
Félagið fagnar 15 ára
starfsafmæli í ár.
StjÓrnir fyrirtækja
mEð 50 Eða fLEiri StarfSmEnn
2008
2013
85%
karlar
15%
konur
70%
karlar
30%
konur
ViðmæLEndur fjöLmiðLa
í LjÓSVakaÞáttum oG -fréttum
2009–2013
70%
karlar
30%
konur
10 fréttaviðtal Helgin 27.-29. júní 2014