Fréttatíminn - 27.06.2014, Qupperneq 14
utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
tjaldaðu
ekki til einnar nætur
High Peak Como
37.990 / 44.990 KR.
4 og 6 manna traust
fjölskyldutjald
High Peak ancona
59.990 KR.
5 manna þægilegt
fjölskyldutjald
Frábært úrval af tjöldum í glæsibæ
High Peak cave
26.990 KR.
2 manna þægilegt
göngutjald
The north face talus 3
64.990 KR.
3 manna létt og rúmgott
göngutjald
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
L
ogi Geirsson hefur ekki
setið auðum höndum eftir
að handboltaferlinum lauk.
Hann kláraði BS í við-
skiptafræði við Háskólann
á Bifröst núna í vor og fékk hæstu
einkunn fyrir lokaritgerðina sína, níu
af tíu.
„Ritgerðin er greining á alþjóða-
væðingu samfélagsmiðla. Ég er sjálfur
búinn að vera með samfélagsmiðil
í smíðum í tvö ár. Ég ákvað að nota
sömu aðferðarfræði sem er notuð í
læknisfræði og markaðsfræði, það er
að greina og kóða viðtöl við fólk sem
hefur náð árangri í því sem það er að
gera. Hverjir það eru sem komast alla
leið með sín forrit og af hverju. Fyrir
mér er reynsla fólks það mikilvægasta
sem maður getur nýtt sér. Magnús
Scheving sagði eitt sinn við mig: „Logi
það er óþarfi að stíga í sömu polla og
þeir sem hafa farið á undan manni.“
Út úr þessu komu allskonar myndir,
alveg magnaðar niðurstöður og fyrir
það fékk ég hæstu gefnu einkunn í
skólanum, kannski af því að þetta var
aðeins út fyrir boxið. Það kom bara
nánast leiðbeiningabæklingur um það
hvernig á að búa til samfélagsmiðil og
hvaða hlutir þurfa að vera til staðar til
þess að alþjóðavæðast á því sviði.“
Ritgerðin er lokuð í 5 ár og er það
vegna þess að þeir sem Logi talaði við
njóta nafnleyndar. Þetta er vegna þess
að í ritgerðinni eru mikilvægar upp-
lýsingar um fjármögnum og innra starf
þessara miðla og er það greiði við þá
sem veittu upplýsingar og heimildir að
ritgerðin sé ekki opin. „Það spretta upp
hundruð snjallforrita á hverjum degi
og þetta er allt spurning um að vera bú-
inn að vinna þetta til hins ýtrasta áður
en miðillinn er opnaður. Ég skrifaði
ritgerðina lokaða, en má alveg tala um
hana, um niðurstöður og út á hvað hún
gekk, en þetta var rosalegt verkefni.“
Stuðlað að bættri heilsu
„Þetta snýst allt um kjarnanotandann,
hann er aðalatriðið. Hann sér til þess
að samfélagið verði til, og er besta
markaðssetningin. Okkar hugmynd
er snjallforrit sem stuðlar að betra lífi,
hvað varðar heilsu, hreyfingu, nær-
ingu og annað. Ef notandinn nýtur
góðs af því að næsti maður fari að nota
það líka, þá vex þetta mann af manni.
Notandinn er aðalatriðið. Okkar snjall-
forrit á að kenna fólki að tileinka sér
heilbrigðan lífsstíl og lifa heilbrigðu
lífi, þekking í bland við afþreyingu.“
Það eru ótrúlega margir miðlar sem
verða til, og flestir þeirra ná ekki því
stökki að verða vinsælir. Hvernig mun
hugmynd Loga lifa af?
„Ég tók viðtöl við þá sem höfðu gert
miðla sem hafa náð hylli og greindi
þeirra vinnu og aðferðarfræði. Þetta
eru niðurstöður sem eru mjög hag-
nýtar öllum þeim sem ætla sér út í
þennan bransa.“
Gríðarlegt sjokk að þurfa að hætta
Logi hætti í handboltanum 2010 í kjöl-
far slæmra meiðsla. Það var allt reynt
og allar mögulegar rannsóknir og allir
mögulegir uppskurðir reyndir. „Ég
hef ekki tölu á því hvað ég hitti marga
lækna, um allan heim. Ég reyndi allt,
og þetta var gríðarlegt sjokk.
Ég hef ekki getað horft á handbolta
síðan, og hef í rauninni ekki ennþá
komist yfir þetta, að gefa draum upp á
bátinn sem maður var búinn að stefna
að alla ævi.
Svo ég tók allan þann metnað sem
ég hafði í handboltanum og setti hann
í námið.
Ég hef aldrei talað neitt um þetta af
ráði nema bara við mína nánustu, fólk
heldur að maður fylgist með lands-
liðinu og svoleiðis en ég hef ekki getað
horft á það í nokkur ár.“
Er það vegna þess að þig langar að
spila?
„Já aðallega, mig langar mikið að
vera bara inni á vellinum, en svona er
þetta bara, annað hefur tekið við. En
ég finn að þetta er allt að koma, maður
kíkir kannski á einn landsleik með
syninum eftir nokkur ár,“ segir Logi
kíminn.
„Það þekkja margir þessa sögu,
maður var efnilegur og það gekk vel,
umræður í fjölmiðlum um að maður
hafi verið í fjárfestingum í Þýskalandi
og allt að gerast. Svo er fótunum kippt
undan manni og maður er sendur
heim. Ég sá bara svart. En þá ákvað ég
að setja þetta bara til hliðar og einbeita
mér að öðru, sem var viðskiptafræðin.“
Fjárfestingar í Þýskalandi
Eins og frægt er orðið var mikið
skrifað um umsvif Loga erlendis árin
2011 og 2012. „Við vorum hópur sem
var í fjárfestingum. Nokkrir íslenskir
handboltamenn, en ég hef alltaf verið
sá sem er nefndur og það er bara fínt
að halda því þannig. Við fórum af stað
og fjárfestum í íbúðum og ég var eig-
andi 19 íbúða í Þýskalandi á tímabili.
Svo meiðist maður og er leystur undan
samningi svo maður þurfti að stokka
ansi mikið upp. Öll plön fóru út um
gluggann og það er búið að taka um
4 ár að vinda ofan af því. En það er
Logi Geirsson er mörgum kunnur. Fyrrverandi atvinnumaður í hand-
bolta í Þýskalandi, einn af silfurdrengjum íslenska landsliðsins á
ólympíuleikunum í Peking 2008 og Hafnfirðingur í húð og hár. Logi
hætti handboltaiðkun í kjölfar meiðsla árið 2011. Síðan hefur hann
sinnt námi og fjölskyldu og lítið verið í sviðsljósinu.
Þróar byltingarkennt snjallsímaforrit
sem mikið reyndu að tala við mig
og gríðarlega margir komplexar í
gangi. Ég varð allt í einu feiminn,
fékk bara nóg, eitthvað sem maður
var ekki undirbúinn fyrir.“
Hvernig vinnur maður sig út úr
þessu?
„Mín leið var bara að halda
áfram, það hefði verið auðvelt að
detta í þunglyndi, búinn að fjárfesta
fyrir 2,6 milljónir evra, meiddur og
án samnings. En ég ákvað bara að
fara aðra leið, tækla þetta. Greiða
úr mínum málum og fara inn á
algerlega nýtt svið. Núllstilla mig
alveg. Ég vildi ekki lengur vera
þessi athyglissjúki handboltamaður
sem var með puttana í öllu. Vildi
bara verða Logi í Hafnarfirðinum
sem ætti bara venjulegt líf. Maður
nærðist á athyglinni, en í dag er
engin næring í þessu og ég vil helst
ekki koma í nein viðtöl. Kannski
er ég að brjóta ísinn í þessu viðtali
með því að segja hvernig mér líður,
og leið,“ segir Logi rólegur með
kaffibollann.
Ísland er land tækifæranna
„Það var alltaf planið að reyna að
komast út aftur þegar ég kom heim
að spila með FH, en meiðslin voru
bara ekki að lagast.
Ísland er svo mikið land tæki-
færanna, Það er hægt að gera allt
ef mann langar til þess. Margir
einstaklingar og fyrirtæki að
gera frábæra hluti sem fá mann til
þess að þora og trúa áð að allt sé
hægt. Ég gæti keypt mér jakkaföt
í dag og byrjað að selja fasteignir
á morgun með ágætum árangri.
Hér er ekkert nema dugnaður og
vinnusemi og metnaður og hérna
getur maður gert helling, ef maður
vill það.“
Framtíðin er spennandi
Næst á dagskrá er fjármögnunar-
ferlið fyrir samfélagsmiðilinn sem
Logi skrifar um í ritgerð sinni
og hans hugarfóstri undanfarin
ár. „Ég hef unnið að þessu með-
fram náminu og notið aðstoðar frá
algerum kanónum á sínum sviðum
við hugmyndagerðina. Næsta mál á
dagskrá er að finna fjármagnið, það
er það sem við erum að fara að gera
núna. Við ætlum að gefa okkur 2 ár
í að finna það og innan þriggja ára
að vera fluttir með þetta verkefni
til útlanda. Við ætlum að elta stóra
drauma.
Fyrst ætla ég að klára masterinn
í forystu og stjórnun við Bifröst.
Það er bara mjög spennandi og ég
er bjartsýnn um framtíðina. Það er
létt yfir manni og gaman að vera
til,“ segir Logi þar sem hann situr
á kaffihúsi sem að sjálfsögðu er í
Hafnarfirði.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
ekkert á mínum snærum í
Þýskalandi í dag.“
„Maður var bara 26 ára og
athyglissjúkasti íþróttamað-
ur landsins, leiddist ekkert
öll sú umfjöllun sem maður
fékk. En þegar þetta gerðist
þá lokaðist ég algerlega,
gat ekki talað við fjölmiðla
Logi Geirsson. „Maður var bara 26 ára og athyglissjúkasti íþróttamaður landsins, leiddist ekkert öll sú umfjöllun sem
maður fékk. En þegar þetta gerðist þá lokaðist ég algerlega, gat ekki talað við fjölmiðla sem mikið reyndu að tala við
mig og gríðarlega margir komplexar í gangi.“
14 viðtal Helgin 27.-29. júní 2014