Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 20
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s 28 m/s 34 m/s - raforkuframleiðsla stöðvastKjöraðstæður til raforkuvinnslu
Það er allt í lagi
að það blási svolítið
Í Búrfellsstöð við Þjórsá er gagnvirk orkusýning og skammt norður af stöðinni
eru fyrstu vindmyllur Landsvirkjunar. Þeim er ætlað að veita vísbendingar um
framtíðarmöguleika í beislun íslenska roksins. Við vonum auðvitað að sumarið
verði gott en okkur finnst líka allt í lagi þó það blási hressilega í 50 metra hæð
yfir hraunsléttunni fyrir norðan Búrfell.
Velkomin í heimsókn í sumar!
Búrfellsstöð
Gagnvirk orkusýning er opin alla daga kl. 10-17, frá 1. júní.
Starfsfólk tekur á móti gestum við vindmyllurnar
alla laugardaga í júlí kl. 13-17.
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
A f einhverjum ástæðum virðist sveittasti og þar af leiðandi besti skyndibitinn yfirleitt fyrst koma
fram á Norðurlandi, Akureyri nánar til-
tekið. Djúpsteikt pylsa með osti og kryddi,
pítsa með frönskum og bérnaise eru tvö
góð dæmi um hugarflugið þarna fyrir
norðan. En það besta sem komið hefur frá
þeim norðanmönnum síðan Lindubuffið
var kynnt til sögunnar er það sem hérna
sunnan heiða er kallaður Akureyringur.
Hamborgari með frönskum á milli. Hver
hefði trúað því að það að setja frönsku
kartöflurnar inn í hamborgarann myndi
breyta öllum hugmyndum um hamborg-
araát. Það verður reyndar að taka það
fram að á Akureyri er hamborgarasósan
aðeins öðruvísi en í Reykjavík. Einhvers-
konar blanda af kokteilsósu og sósunni
hans Nonna okkar á Nonnabitum. Það er
galdur þegar þessi norðlenska hamborg-
arasósa blandast frönskunum og kálinu
sem fylgir alltaf. Galdur sem aðeins
verður útskýrður með úmamí. Já, úmamí!
Fimmta bragðið; á eftir sætu, súru, bitru
og söltu. Úmamí var uppgötvað af japönsk-
um vísindamanni fyrir rúmum hundrað
árum og lifir góðu lífi á hamborgurum í
lúgusjoppum við Eyjafjörðinn.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Það er ekki alveg sama hvernig hamborg-
ari úr lúgu er borðaður. Sér í lagi ef það eru
franskar á milli. Það mikilvægasta af öllu er
að klæða umbúðirnar bara niður að þarnæsta
bita. Halda borgaranum í nærbuxunum. Í
gamla daga var hann klæddur í álpappír sem
var hægt að móta að vild en upp á síðkastið
hefur smjörpappírinn tekið við hlutverkinu að
mestu. Sjálfsagt í takti við hækkandi álverð.
Þessar nærbuxur er erfiðara við að eiga en
passa verður að láta samskeytin aldrei vísa
beint niður. Sjúga svo síðustu dropana af sósu
og káli niður með síðasta kjöt- og brauðbit-
anum.
Hamborgarabúllurnar á Akureyri bjóða
yfirleitt upp á mjög góðar servéttur. Það er
góð ástæða fyrir því vegna þess að það er
ekkert verið að spara við sig í sósunni góðu.
Best að taka tvær. Eina til að þurrka sósuna
af kinnum og nefi og aðra í klofið. Bara til
öryggis.
Bensínstöðvalúgusjoppan lifir góðu lífi á Akureyri, svo góðu lífi reyndar að sé ferðinni
heitið norður yfir heiðar getur margborgað sig að keyra fram hjá einsleitum vegasjoppun-
unum á leiðinni og bíða þangað til í norðlenska höfuðstaðinn er komið. Láta þá eftir sér
allan þann sveitta lúxus sem bíður þess að koma út um lúguna.
Lúgubúrgerinn
Leirunesti
Stærsta búllan á svæðinu. Matsalur fyrir ég veit ekki hvað
marga uppi og þeir sem koma með flugi ættu að gera
sjálfum sér greiða og koma við í lúgunni. Sérstaklega
ef áfengi hefur verið haft um hönd um borð. Það er fátt
betra til að ná góðu jafnvægi á prómillin í blóðinu en
hamborgari úr Leirunesti.
Lúgusjoppan lifir!
Litla kaffistofan
Ekki Litla kaffistofan áður en haldið er á Hellisheiðina heldur
Litla kaffistofan í gamla verksmiðjuhverfinu á Eyrinni. Metnaður-
inn er til staðar á kaffistofunni en með því að bjóða upp á allan
mat undir sólinni verður framkvæmdin ekki alltaf alveg á pari.
Klemmugrilla t.d. pylsubrauðið í staðinn fyrir að bjóða upp á
lungamjúkt úr pottinum eins og það á að vera. Passa að pylsa
með öllu á Akureyri kemur með kokteilsósu og remúlaði. Svo
setja þeir þarna fyrir norðan allt undir. Meira að segja sinnepið.
Ak-inn
Ak-inn er eina lúgusjoppan sem hefur
engin tengsl við Essó eða N1 eða hvað
þetta heitir allt saman í dag. Hangir
enda í Shellsjoppu. Allir Akureyringar
þekkja þessa sjoppu þó undir öðru
og skemmtilegra nafni, Gellunesti
heitir búllan. Eftir öllum gellunum
sem unnu þar þegar líða tók á síðustu
öld. Réttur hússins er djúpsteikt pylsa
með osti og kryddi. Franskar ofan á
fyrir sársvanga.
Akureyri
Bautinn
Greifinn
BSO
Quisnos
Bakaríið við brúnna
Brynju-ís
20 úttekt Helgin 27.-29. júní 2014