Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.06.2014, Síða 32

Fréttatíminn - 27.06.2014, Síða 32
lyndur og vaknaði í svitakófi á nótt- unni. Ég þurfti að ganga í gegnum þessi fráhvörf til að átta mig á því að þetta væri ekki eðlilegt.“ Hann hefur einnig glímt við matarfíkn og til að vega upp á móti þessum vandamálum sínum fór hann að stunda mikla líkamsrækt. „Ég æfði tvo tíma á dag til að halda líkam- anum gangandi. Annars hefði ég bara orðið sjúklingur. Ég stundaði líkamsrækt af kappi til að geta spilað tölvuleiki og borðað eins og svín.“ Hann gekk í gegn um al- gjöra naflaskoðun og segir stærsta skrefið að viðurkenna að tölvu- notkunin sé vandamál og hafa vilja til að takast á við það. Átti fáa vini „Fjöldi klukkustunda fyrir framan tölvu segir ekki til um hvort þú átt við vandamál að etja heldur hvaða áhrif tölvunotkunin hefur á þig. Í raun eru þetta fjórir þættir sem hafa þarf í huga; Hvaða áhrif tölvu- notkunin hefur á samskipti þín við fjölskylduna, hvaða áhrif hún hefur á líkamlega heilsu, hvaða áhrif hún hefur á þá ábyrgð sem þú hefur, vinnu og skóla, og svo loks hvaða áhrif hún hefur á félagsleg samskpti. Það er fullt af fólki sem er mikið í tölvunni en notar hana skynsamlega og til góðra verka. Ég hins vegar hugsaði ekki um heilsuna nema í lokin, ég eignaðist ekki mína eigin fjölskyldu, ég kom með afsakanir til að þurfa ekki að hitta fólk og geta í staðinn verið í tölvunni. Ég átti fáa vini nema í gegn um tölvuna enda sóttist ég ekki í vinskap þeirra sem höfðu ekki sömu áhugamál og ég.“ Skólar Hjallastefnunnar starfa að sameiginlegum markmiðum eftir sömu hugmyndafræði en sjálfstæði hvers skóla er mikið. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Um er að ræða framtíðarstörf. Áhugasamir hafi samband við skólastjóra Hjalla, Árný Steindórsdóttur á hjalli@hjalli.is eða í síma 8460129 eða Gróu M. Finnsdóttur á asar@hjalli.is eða 869-5426. Leikskólarnir Hjalli í Hafnarfirði og Ásar í Garðabæ auglýsa eftir körlum og konum til starfa, leikskólakennurum eða fólki með aðra uppeldismenntun. Við leitum að jákvæðum einstaklingum sem eru tilbúnir að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af metnaði, gleði og kærleika. Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa brennandi áhuga á jafnrétti og lýðræði í leikskólastarfi. Lífsglaður og jafnréttissinnaður leikskólakennari Hugmyndina að því að miðla af sinni reynslu fékk hann frá deildarstjóra í Langholtsskóla árið 2006 þegar Þorsteinn var að segja frá því hvernig hann hafði tekist á við tölvufíknina og breytt lífi sínu. Viðtökurnar voru svo góðar að óskað var eftir fleiri fyrirlestrum og nú er vefurinn komin í loftið. Tolvufikn.is er alhliða upplýsinga- vefur um tölvufíkn. Þar er að finna upplýsingar um helstu einkenni tölvufíknar, bæði hjá börnum og fullorðnum, þar eru hægt að nálgast tvo fyrirlestra í heild sinni, auk þess sem þar eru til að mynda ráð til foreldra varðandi svokallað tölvuuppeldi. „Það er ekki rétta leiðin að taka tölvurnar af börnum og unglingum heldur þarf að fræða þau og kenna þeim að nota tölvuna á uppbyggjandi hátt.“ Algjör viðsnúningur Þorsteinn bendir á að á árum áður hafi aðallega verið talað um tölvufíkn í tengslum við tölvuleikj- anotkun unglingspilta en með til- komu netsins og samskiptamiðla séu mun fleiri hópar sem eigi við tölvufíkn að stríða. Hann leggur áherslu á að markmiðið með fyrir- lestrum hans og vefsíðunni sé að koma því á framfæri að óeðlilega mikil tölvunotkun sé vandamál og að það sé vandamál sem hægt sé að sigrast á. „Í dag er ég búinn að vera í sam- búð með góðri konu í 10 ár. Hún átti tvö börn fyrir og við höfum eignast tvö til viðbótar saman. Við erum búin að borga niður skuldir, á þessum tíma er ég búinn að ljúka stúdentsprófi, tveimur há- skólagráðum í kennslufræðum og síðustu helgi útskrifaðist ég með diplómu í stjórnunarfræði mennta- VARSTU BÚIN AÐ FRÉTTA AÐ Á FISKISLÓÐ 39 ER ... landsins m esta úrval b óka, á Forlagsve rði? stærsta kor tadeild land sins? www.forlagid.is Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna ÚTSALAN ER HAFIN 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum 32 viðtal Helgin 27.-29. júní 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.