Þjóðlíf - 01.01.1988, Qupperneq 19
HEILBRIGÐISMAL
ingurinn Giovanni da Monte á möguleika
þess að tengsl væru á milli tíðablæðinga og
þunglyndis. Franski sagnfræðingurinn Jules
Michelet sem uppi var á 19. öld, hélt því fram
að konur væru sárþjáðar í 15-20 daga af
hverjum mánuði. Og í leikriti Ágústs Strind-
berg um fröken Júlíu er afbrigðileg hegðun
hennar m.a. útskýrð með orðunum: „Nú er
hún að byrja, þá verður hún alltaf svo undar-
leg,“ bætir Herdís við.
„En það er þó fyrst eftir 1930 að lækna-
vísindin fara markvisst að skilgreina vanlíð-
an kvenna fyrir tíðir og lýsa hugtakinu
„premenstrual tension“ eða „fyrirtíða-
Vidtal vid Gudrúnu Marteinsdóttur, dósent og Herdísi
Sveinsdóttur, lektor um fyrstu íslensku rannsóknina á
„ fyrirtíöaspennu“ kvenna, orsakir, einkenni og helstu ráö
viö þessum óþægindum
Eitt af loka verkefnum nemenda í náms-
braut í hjúkrunarfræðum við Háskóla
íslands síðast liðið vor var að gera
„könnun á líðan reykvískra kvenna á
síðari hluta tíðahrings,“ eins og verk-
efnið nefndist, og var Guðrún Marteins-
dóttir, dósent við háskólann, leiðbein-
andi við rannsóknina. A sama tíma var
Herdís Sveinsdóttir, lektor, að ljúka rit-
gerð til mastersprófs við háskóla í
Bandaríkjunum um svipað efni. Þær
Herdís og Guðrún vinna nú saman að
áframhaldandi athugun á líðan reyk-
vískra kvenna fyrir tíðir og lék okkur á
ÞJÓÐLÍFI hugur á að vita hvað væri
svo sérstakt við þetta tímabil fyrir líðan
og heilbrigði konunnar og hvaða niður-
stöður lægju þegar fyrir.
-Hvers vegna er farið út í það að kanna
líðan kvenna fyrir tíðir?
„Það hefur lengi verið þekkt að konur
finna fyrir mismunandi óþægindum kringum
tíðir,“ svara þær Guðrún og Herdís. „Má
geta þess að þegar á 16. öld benti stjamfræð-
• Guðrún Marteinsdóttir, dósent, og Herdís Sveinsdóttir, lektor.„Það eru ýmis ráð við
vanlíðan kvenna fyrir tíðir.“
Líðan reykvískra kvenna iyrir tíðir
66.7%
Reykvískra kvenna
fínna fyrir óþægindum
fyrir tíðir
19