Þjóðlíf - 01.01.1988, Síða 20
HEILBRIGÐISMAL
Bjargráð kvenna við einkennum fyrirtíðaspennu
Heimild: Arnheiöur Siguröardóttir o.fl. Könnun á líðan reykvískra kvenna á síðari hluta
tíöahrings. Lokaverkefni til BS. prófs í hjúkrunarfræði, maí 1987 (óútg.).
spennu." í dag er fyrirtíðaspenna skilgreind
sem kvillar eða einkenni (eitt eða fleiri) sem
koma fyrir reglubundið á tímabilinu fyrir tíð-
ir þannig að marktæk breyting verður á
styrkleika einkennanna miðað við venjulegt
ástand.
Það hefur reynst erfitt að gera nákvæma
úttekt á þessum einkennum vegna þess hve
fjölbreytileg þau eru. Má þar nefna kvilla
eins og pirring, þanin og aum brjóst, verki
eða óþægindi í kvið, bjúg á fingrum og fót-
um, almennan slappleika, höfuðverk, skap-
sveiflur, uppþembu o.fl..“ En jákvæð ein-
kenni segja þær vera t.d. aukin sköpunar-
gleði, bætt starfsorka og aukin löngun til
kynlífs.
-Hvað er það sem veldur þessum einkenn-
um?
„Það hafa verið settar fram margar kenn-
5-7%
þjást það mikið að
það truflar daglegt líf
þeirra verulega
ingar um orsakir fyrirtíðarspennu, allt frá að
orsökin sé alfarið af sáiar- eða félagslegum
toga spunnin, yfir í að um hreinar líffræði-
legar orsakir sé að ræða. Flestir hallast þó að
því að hér sé um samspil líffræðilegra, félags-
legra og sálrænna þátta að ræða og ekki sé
alltaf um að ræða sömu orsakir hjá öllum
konurn."
-Hversu algengir eru þá þessir kvillar?
„Niðurstöður hinna ýmsu rannsókna á því
hafa ekki verið á einn veg. Á meðan ein
rannsókn bendir til þess að 20% kvenna hafi
einkennin (eitt eða fleiri) birtist önnur sem
bendir til að yfir 90% kvenna finni fyrir
þeim. Það virðist þó vera einhugur um að
aðeins 5 - 7%kvenna þjáist það mikið að það
trufli daglegt líf þeirra verulega."
-Hvaða einkenni koma í Ijós í rannsóknum
á íslenskum konum?
„Eina athugunin sem gerð hefur verið
hérlendis á einkennum fyrirtíðarpspennu
var gerð vorið 1987 af nemendum í náms-
braut í hjúkrunarfræði í Háskóla íslands. 152
reykvískar konur á aldrinum 29 - 40 ára
svöruðu spumingalista þar sem spurt var um
20 algeng einkenni fyrirtíðaspennu," segir
Guðrún.
„Niðurstöðumar sýna að 66.7% þessara
kvenna finna fyrir einu eða fleiri einkennum.
Þau algengustu eru uppþemba, skapsveiflur,
tilfinning fýrir þyngdaraukningu, verkir í
baki, liðum eða vöðvum og verkir eða þensla
í brjóstum.
Þessar niðurstöður eru vísbending um að
konur hérlendis finni fyrir fyrirtíðaspennu
eins og kynsystur þeirra víða um heim. í
rannsókninni var ekki athugaður meðal-
fjöldi einkenna sem til staðar eru hjá konum
á tímabilinu fyrir tíðir og ennfremur var ekki
athugað hvort marktæk breyting varð á ein-
kennunum, eða hvort þau væru yfirleitt til
staðar á öðmm tímum mánaðarins. Þessa
þætti höfum við áhuga á að athuga nánar og
munum því fljótlega fara af stað með fram-
haldsrannsókn á viðfangsefninu,“ segja
Guðrún og Herdís.
-Eru til einhver ráð eða meðferð við þess-
um kvillum?
„Já, og við viljum benda á að kona með
fyrirtíðaspennu er heilbrigð í öllum gmnd-
20.1%
kvenna segast leita
til heilbrígðisstéttanna
vegna fyrirtíðaóþæginda
20