Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 10

Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 10
INNLENT Skerðir samkeppnis- kæfni íslenskra Þegar vextir eru orðnir helmingi hærri en í samkeppnislöndum skerð- ist hæfni íslenskra fyrirtækja til að standast samkeppni. Þessi vandi verður enn stærri þegar haft er í huga að ísiensk fyrirtæki eru nú þegar yfir- ieitt mun skuldsettari en gengur og gerist meðal fyrirtækja erlendis. Vaxtahækkanirnar leiða því til þess að íslensk útflutningsfyrirtæki lenda í erfiðari stöðu gagnvart samkeppnis- fyrirtækjum erlendis. Og það sama á við um íslensk fyrirtæki sem keppa á markaði við innflutta vöru og þjón- ustu. Viðeyjarstjórnin kýldi vextina upp aftur. En þegar þessar vaxtahækkanir byrjuðu að segja til sín á árinu 1987 kollvörpuðust öll plön hjá íbúðakaupendum á áður- nefndu árabili (1984—1986). Þessi vaxta- hækkun lífeyrissjóðanna leiddi til þess að margir íbúðakaupendanna misstu íbúð- irnar eða neyddust til að taka dýr bankalán til að hafa fyrir afborgunum. Það er reynd- ar enn eitt dæmið um hvernig vaxtahækk- anir leiða oft til meiri eftirspurnar eftir lánsfjármagni þvert á kenningar hávaxta- manna um að hávextir slái á eftirspurn. En aðalatriðið er þó að fólkið sem keypt hafði íbúðir á þessu tímabili þurfti að mæta auk- inni greiðslubyrði með hærri launum eða fleiri lánum. Á það er að benda að vegna þess að lánshlutfall húsnæðisstjórnarlána í íbúða- kaup 1984 til 1986 var minna en síðar varð þá hefur vaxtabyrðin af allri íbúðaskuld- bindingunni verið meiri en ella. Þannig væri einnig hægt að skipa íbúðakaupend- um í flokka eftir því hvernig lánakerfið var hverju sinni og fá út meðalvaxtabyrði. Og jafna síðan út vexti eftir því. Nú hefur ríkisvaldið enn einu sinni ákveðið að þyngja álögur á íbúðakaupend- um þessa tímabils með hækkun húsnæðis- vaxta aftur í tímann. Forstjóri Húsnæðis- stofnunar hefur upplýst að hækkunin nái til allt að 21 þúsund lántakenda og greiðslubyrði vegna vaxtanna á lánunum frá 1984 til 1986 þyngist um tæplega 22%. En það er aðeins hluti af aukinni greiðslu- byrði í kjölfar ákvarðana ríkisstjórnarinn- ar. Með hækkun húsnæðisvaxtanna var komið aftan að fólkinu. Morgunblaðið varaði ríkisstjórnina við í leiðara 22.maí s.l.: „Það hefur verið óþolandi kækur í þessu þjóðfélagi árum saman að gjör- breyta forsendum fyrirfjárhagslegum ráð- stöfunum fólks með stjórnvaldsákvörðun- um“. En Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra kvað á hinn bóginn sérstakt Eykur erlendis —Vaxtahækkanirnar draga ekki endi- lega úr erlendum lánum því í stað þess að ríkið taki lánin neyðast fyrir- tæki til að gera það sagði fjármálast- jóri stórs fyrirtækis í samtali við Þjóð- líf-. í rauninni auka þessar gífurlegu hækkanir erlendar lántökur. Auðvitað hljóta fyrirtækin að bregðast við bæði vörukaupalánum og langtímafjárfest- ingarlánum og við skuldbreytingum með því að leita hófanna erlendis. Menn verða að hafa í huga að langtíma- lánin hjá íslensku bönkunum eru núna með föstum vöxtum sem eru með þetta 11 til 13% raunvexti. Þau fyrirtæki sem geta fara því á erlendan markað og fá mun hagstæðari lán þrátt fyrir mikla fyrirhöfn og lántökugjald hér heima auk mikillar gengisáhættu, sagði fjár- málastjórinn. réttlætismál að hækka vextina á þessum gömlu fárhagsskuldbindingum! Vísaði hann til þess að byggingasjóðirnir væru í aukinni þörf fyrir fjármagn til að mæta nýjum útlánum. Þannig er sífellt höggvið í sama knérunn; fólkið sem þurfti að greiða verðtrygginguna og háa vexti frá 1980 til 1986 í þeim tilgangi að bæta byggingasjóð- unum tjónið vegna óverðtryggðra útlána kynslóðarinnar á undan, á nú að greiða enn meira til að mæta þörfum húsnæðis- kynslóðarinnar á eftir. Fjármálaráðherra hefur einnig sagt að ef lífeyrissjóðirnir knýi fram hærri vexti fyrir sig muni ríkis- valdið bregðast við því með því að hækka vaxtaprósentuna enn meira af gömlu hús- næðislánunum. Þannig virðist þetta vaxtafyllerí engan endi ætla að taka. Valur Valsson, bankastjóri íslands- banka hefur sagt í fjölmiðlum að „hækkun á vöxtum spariskírteina gæfi augljóst til- efni til vaxtahækkana á inn og útlánum bankanna“. Og aðrir bankastjórar hafa tekið undir þetta sjónarmið. Þetta þýðir að sjálfsögðu að aðrar langtímaskuldbinding- ar en húsnæðisstjórnarlán þyngjast enn frekar. Sumir græða Er kolkrabbinn að eignast allt? Sú almenna vaxtahækkun sem nú hefur orðið mun flytja þeim einstak- lingum skattlausar tekjur sem hafa haft aðstöðu til að fjárfesta í verðbréfum. Þeir einstaklingar sem skulda verða hins vegar fyrir miklum búsifjum án þess að tillit sé til þess tekið í sköttum svo neinu nemi. Húsnæðiskynslóð ráðherra í ríkis- stjórninni sem fékk ódýr húsnæðislán og námslán sleppur við búsifjarnar, þ.e. verðbótalausa kynslóðin en húsnæðis- kynslóðirnar sem koma á eftir tapa miklu. Fyrirtæki sem skulda mikið munu á sama hátt stórtapa á þessum hækkunum en þau fáu fyrirtæki sem hafa góða eigin- fjárstöðu munu hins vegar standa mun betur að vígi. í rauninni er hér um að ræða fjármagnsflutninga frá skuldugum heimilum og fyrirtækjum til nokkurra fyrirtækja og einstaklinga. „Ætli kolkrabbinn eignist bara ekki allt“, sagði kunnur hagfræðingur úr Sjálfstæðisflokknum í samtali við tíð- indamann Þjóðlífs þar sem verið var að ræða afleiðingar vaxtahækkananna. 0 10 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.