Þjóðlíf - 01.05.1991, Side 14
INNLENT |
VIMU-
LAUS
VEL-
LÍÐAN
- getur „heilbrigð vellíðan“
slegið vímuefnin út?
— „Öðruvísi“ ráðstefna á
Islandi í júní
Kenningar bandaríska sálfræðiprófess-
orsins Milkmans um Natural Highs
(Vímulausa vellíðan) er sú að með því að
rækta hjá ungmennum — og raunar
hverjum sem er — hæfileikann til að „fá
kikk“ út úr heilbrigðum og hollum at-
höfnum sé vímuefnadraugnum skákað út
í horn. Milkman verður á ráðstefnu á
íslandi í júnímánuði.
„Þetta er ungt og leikur sér“, segir gamla
fólkið stundum um æskuna og slær sér á
lær. Og víst eru uppátækin margvísleg. í
nútímanum taka þau á sig ýmsar myndir
og sumar verri en aðrar. Vímuefnaneysla
ungmenna er sívaxandi vandamál um
hinn vestræna heim og illa gengur að
stemma stigu við henni. Umfjöllun um
orsakir þessarar vaxandi neyslu hefur
verið dálítið sundurlaus enda mál af því
tagi æði flókin. Gjarnan er leitað skýringa í
þjóðfélagsþróuninni, tengslaleysi kyn-
slóðanna og breyttri stöðu æskufólks,
auknum fjárráðum og vaxandi framboði
vímuefna.
Bandaríski sálfræðiprófessorinn Dr.
Harvey Milkman hefur sett fram athyglis-
verða kenningu um sókn ungmenna eftir
vímu og styðst þar við rannsóknir sínar í
samvinnu við lífefnafræðinga sem sýna
fram á að hægt er með ákveðnum athöfn-
um — s.s. líkamlegri áreynslu og slökun
— að kalla fram hliðstæð efnafræðileg ferli
í taugakerfmu og gerist við neyslu vímu-
efna. Það tilheyrir leikjum æskunnar og
eðlilegri forvitni að gera tilraunir með vit-
undarástandið. Eða var ekki dálítið gaman
að snúa sér í hringi til að fá svima, velta sér
niður brekku eða taka þátt í sameiginleg-
um yfirliðsæfingum með því að taka undir
bringspalir hvers annars? En nútíminn
kann önnur ráð til að komast í vímu sem
eru bæði fljótvirk og áhrifarík en hafa
hörmulegar aukaverkanir og verða undan-
tekningarlaust til að vegir unglingsins og
hamingjunnar skilja; vímuefnin.
Kenning Milkmans & Co um Natural
Highs (Vímulausa vellíðan) er sú að með
því að rækta hjá ungmennum — og raunar
hverjum sem er — hæfileikann til að „fá
kikk“ út úr heilbrigðum og hollum at-
höfnum sé vímuefnadraugnum skákað út í
horn.
Dr. Milkman verður á íslandi nú í júní-
mánuði og heldur í samvinnu við Ung-
lingaheimili ríkisins námsstefnu í Mos-
fellsbæ um sólstöðurnar. Námskeið, fyrir-
lestrar og listrænar uppákomur 20.-22.
júní eru hugsaðar fyrir kennara, foreldra,
þá sem vinna í heilbrigðis- og félagsþjón-
ustu og raunar alla sem hafa áhuga á bættu
samfélagi. Þátttakendum verður boðið
upp á fjölbreytt námskeið undir stjórn ís-
lenskra sálfræðinga og listamanna.
Áhersla er lögð á líkamlega virkni, tengsl
vellíðunar og mataræðis, slökun og list-
ræna tjáningu. Þeir sem hafa lengi glímt
við að láta drauma sína rætast með tak-
mörkuðum árangri fá þarna námskeið við
sitt hæfi og áhugamönnum um sjálfsskoð-
un verður boðið í ferðalag um sköpunar-
frumskóg sjálfsins. Inn í þetta allt saman
verður fléttað léttum líkamsæfmgum og
dansatriðum. Hápunkti sínum nær ráð-
stefnan í sérstakri sólstöðuhátíð á Varmár-
velli að kvöldi 21. júní með fjöldadansi.
Hver veit nema þátttakendur nái hámarki
vímulausrar vellíðunar með því að velta
sér naktir í döggvotu grasinu þessa nótt?
Skráning á ráðstefnuna stendur enn yfir
og er hægt að skrá sig símleiðis á skrifstofu
Unglingaheimilis ríkisins í síma 689270.
Hér er á ferðinni „öðruvísi" ráðstefna þar
sem tekið er á einu alvarlegasta vandamáli
nútímans á nýstárlegan hátt.
0
14 ÞJÓÐLÍF