Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 26
ERLENT
Erfiður forseti
Kurt Waldheim forseti Aust-
urríkis lýkur fimm ára kjör-
tímabili sínu á næsta ári. í
augum margra Austurríkis-
manna hefur þetta tímabil aö
mörgu leyti veriö eins og mar-
tröö. Allir vestrænir þjóöhöfö-
ingjar og stjórnmálamenn
hafa forðast aö hitta Wald-
heim og afhjúpanir um nas-
íska fortíð hans halda áfram
að hrella gamla manninn.
Hins vegar hafa nokkur
arabaríki boöiö honum heim
á kjörtímabilinu einmitt vegna
fortíðarinnar, þá hefur hann
veriö viö krýningu keisara
Japans en að ööru leyti vilja
menn sem minnst af honum
vita. Sjálfur neitar hann að
horfast í augu við einangrun
sína og talar um „rógsherferö,
uppfindingu engilsaxnesku
pressunnar og samsæri
ákveöinnar klíku“. Hvaö eftir
annaö er gengið á gamla
manninn og hann beðinn um
að lýsa því yfir aö hann hyggi
ekki á aö fara í framboð aö
nýju. Forseti vinnuveitenda-
sambandsins í Austurríki
sagöi af þessu tilefni: „ Nú
þegar Austurríki stendur á
þröskuldi inngöngunnar í
Evrópubandalagiö getur
landiö ekki leyft sér að vera
einangraö frá umheiminum.“
Stjórnmálaflokkarnir í landinu
hafa ekki bent á neinn fram-
bjóöanda sem geti talist sjálf-
sagður í embættið en í fjöl-
miðlum hefur veriö stungið
upp á ótal mönnum. Þeir hafa
jafnóöum lýst því yfir aö þeir
gefi ekki kost á sér þannig aö
spilið um eftirmann Wald-
heims er orðið aö hálfgeröum
farsa. Einn stjórnmálaflokkur
Waldheim forseti.
gerir sér litla rellu yfir þessum
vandræðagangi, en þaö eru
Græningjar sem halda því
fram aö Waldheim hafi sann-
aö þaö á kjörtímabili sínu að
embættiö sé algerlega
ónauðsynlegt og því megi
leggja þaö niður. Aðrir tala
um aö vera Waldheims í for-
setaembætti hafi ekki gert
annað en aö skemma fyrir
Austurríkismönnum og því sé
mál aö linni...
(Spiegel/óg)
Sakaður um spillingu
Fyrrverandi forseti Perú, Alan
García, er sakaöur um aö
hafa komið undan á erlenda
einkareikninga um 50 milljón
dollurum í forsetatíö sinni
1985 til 1990. Tvær banda-
rískar njósnastofnanir full-
Alan García fyrrverandi forseti
Perú.
yröa þetta en þær hafa sitt í
hvoru lagi rannsakað fjármál
Carcías. Önnur njósnastofn-
unin er Kroll Associates í New
York sem hefur áður kannað
leynireikninga Noriegas í
Panama, Duvaliers frá Haiti,
Marcosar frá Filippseyjum og
Saddam Husseins meö góö-
um árangri. Hún fullyrðir að
forsetinn fyrrverandi hafi sett
verulegar fjárhæöir á banka-
reikning hjá banka nokkrum í
Dallas í Bandaríkjunum. Hin
njósnastofnunin, Larc Invest-
igative Services í Miami seg-
ist auk þess hafa fundið út að
Garcia hafi notað leppa til aö
leggja inn fé á bankareikning
á nafni eiginkonunnar hjá hin-
um alræmda alþjóðlega viö-
skiptabanka BCCI. Upphæö-
irnar sem um er aö ræöa
nema ríflega þremur milljörö-
um króna...
(Spiegel/óg)
Umdeildur og allur
Hann var í margbrotinni
hreyfingu herskárra nýnas-
ista og meöal þeirra áhrifa-
mestu um langa hríö.
Michael Kuhnen var þrátt
fyrir ungan aldur þekktur
fyrir pólitísk afskipti sín í
Þýskalandi. Hann var af ka-
þólskum velmegandi uppr-
una en gerðist snemma
herskárnasisti. Hannvaroft
kallaður „foringi hreyfingar-
innar“ og átti þann titil aö
þakka frábærum skipulags-
hæfileikum og ræðulist. Alls
konar öfgahópar söfnuöust
í kringum hann og geröu
hann að leiðtoga sínum. Ár-
iö 1977 var hann útilokaður
frá háskólanámi í hernum
vegna ofsókna sinna á
hendur gyðingum og út-
lendingum. Og árin 1979 og
1985 var hann dæmdur til
margra ára fangelsisvistar
vegna útbreiðslu nýnasísks
áróöurs, kynþáttaofsókna,
hvatningar til ofbeldis og
fleira þess háttar. Hápun-
ktur pólitísks lífshlaups
Kuhnen var að hans mati
þegar innanríkisráöherra V-
Þýskalands bannaði nas-
istasamtök hans „Aktions-
front Nationaler Sozialisten/
Nationale Aktionisten"
(ANS/NA). í lok níunda ára-
tugarins missti Kuhnen
áhrifavald sitt í brúnu hreyf-
ingunni sem stóö m.a. sam-
an af 500 ungmenna aðdá-
endahópi er andstæðingar
hans néru honum því um
nasir að hann væri hommi.
Michael Kuhnen lést í síð-
asta mánuöi 35 ára aö aldri
úr alnæmi...
(Spiegel/óg)
26 ÞJÓÐLÍF