Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 27
Heróínbylgja í
Bandaríkjunum
Vaxandi ótta gætir nú í
Bandaríkjunum viö eiturlyfið
heróín. Telja sérfræöingar að
mikið magn fari í umferð á
næstunni. Ástæða þessa er
sú að veður og ræktunarskil-
yrði í Asíu og SuðurAmeríku
hafa verið mjög góð fyrir óp-
Heróínneytandi.
íumjurtina sem eitrið er unnið
úr. Eiturlyfjalögreglan í
Bandaríkjunum segir að
aldrei hafi jafn miklu verið
smyglað og að undanförnu.
Ekki bætir úr skák að efnið er
svo „hreint" að eiturlyfjasjúkl-
ingar geta tekið það í nös eða
reykt það, „þeir þurfa ekki
lengur að sprauta því í sig“,
segir Mark Kleiman eiturlyfja-
sérfræðingur við Harvardhá-
skóla. í New York og Was-
hington hafa menn þegar
uppgötvað mikið magn í um-
ferð af efni með 40 til 45%
hreinu heróíni en áður var al-
gengt að um 10% efnisins
væri hreint. Þetta allt er talið
auka líkurnar á því að fleiri
ánetjist þessu drephættulega
efni með skelfilegum afleið-
ingum...
(Spiegel/óg)
Svipleysi John Majors
forsætisráðherra Breta hefur verið
viðfangsefni margra listamanna í
Bretlandi, sérstaklega
skopteiknara. Nú hefur
hirðmálarinn John Anthony
uppgvötað nýja möguleika en
hann er að mála mynd af Major.
Með tilvísun til þekkts verks eftir
Frans Hals segir hann Major geta
orðið svipmikinn, -ef hann vildi
bara láta sér vaxa skegg...
Hindra innflytjendur í Þýskaland
Innanríkisráðherra Þýska-
lands, Wolfgang Schauble
(CDU, kristilegir) hefur með
leynilegum hætti reynt að
stöðva mikinn straum innflytj-
enda, gyðinga frá Sovétríkj-
unum. Nú hefurverið ákveðið
að einungis innflytjendur frá
Sovét sem komu fyrir 30.apríl
fái dvalarleyfi. Frá og með
þeim degi fengu „einungis
þær persónur úr þessum hópi
sem koma í þeim tilgangi að
sameinast fjölskyldum sínum
dvalarleyfi". Frá ársbyrjun
liggja fyrir umsóknir um eitt
hundrað þúsund gyðinga frá
Sovétríkjunum sem vilja flytja
til Þýskalands. Schauble inn-
anríkisráðherra hefur gefið út
tilskipun til innanríkisráðu-
neyta fylkjanna um að herða
allar reglur varðandi dvöl út-
lendingaíÞýskalandi. Þannig
hefur t.d. verið gert kunnugt
að tyrkneskir Kúrdar „megi
eins og sakir standa einungis
vera í landinu til 1.10.1991“
áður en þeir verði sendir aftur
til Tyrklands...
(Spiegel/óg)
Margrel Thatcher þykir hafa orðið fórnarlamb efnahagsstefnu ríkis-
stjómarinnar sem hún leiddi á sínum tíma með sérstæðum hætti. Mað-
ur að nafni Mounsey, aðdáandi Thatcher, hafði látið steypa á verk-
stæði sínu um eitt þúsund litlar bronsstyttur af forsætisráðherranum
fyrrverandi. Styttan kostaði um 14 þúsund krónur. Einungis þrírkaup-
endur gerðu sér erindi til að kaupa styttur og Mounsey sér enga aðra
skýringu á dræmri sölu en bágt efnahagsástand. Þess vegna lét hann
bræða stytturnar sem eftir voru. „Ef til vill hefur fólk of miklar pen-
ingaáhyggjur til að geta leyft sér að kaupa svona Iúxusskraut“, sagði
aðdáandinn fyrrverandi.
Gyðingar frá Sovétríkjunum í Berlín.
ÞJÓÐLÍF 27