Þjóðlíf - 01.05.1991, Síða 30

Þjóðlíf - 01.05.1991, Síða 30
ERLENT á milli ríkra og fátækra hefur breikkað. Að vísu hefur myndast vísir að borgarastétt en hún vex mjög hægt og hefur lítil sem engin áhrif á kjör hinna verst settu, in- díánanna. Ekki verður hvíta manninum einum kennt um hrakfarir indíánanna. Ábyrgð bólivískra stjórnvalda er geysi- mikil og vegur sennilega einna þyngst. Þjóðinni var lengstum stjórnað af ger- spilltum og öfgasinnuðum stjórnmála- mönnum jafnt til hægri og vinstri sem skiptust á að þiggja mútur og sökkva land- inu á kaf í óðaverðbólgu og skuldafen. í slíku hallæri vega efnahagsleg gæði jafnan mun þyngra en hin torsóttu verðmæti sem fólgin eru í menningararfleifð forfeðr- anna. Bólivía sigldi því hraðbyri inn í nú- tímann án þess að varast þau víti sem þar leyndust. Hvíta gullið kom til sögunnar. Kókaínblöðum sem innfæddir höfðu hingað til notað í lækningaskyni og til að seðja sitt sárasta hungur var nú umbreytt í hvítt duft og selt á erlendum mörkuðum. Það skilaði sér síðan í bættum kjörum fjöl- margra bænda. Þeir gátu nú treyst á stöð- ugar tekjur og sent börn sín í skóla. Mest- ur gróðinn rann að vísu beint í vasa kóka- ínbaróna sem stofnuðu sitt eigið ríki í ríkinu; mútuðu stjórnmálamönnum, dómurum og lögreglu en alþýðan fékk þó nóg í sinn hlut. Og með nýjum tekjulindum og auknum túrisma risu brátt bankar og hótel í formi himinhárra skýjakljúfa umlukt klettabelt- um þéttskipuðum indíánahreysum. Ríki- dæmi hvíta mannsins blasti við indíánum Bólivíu enda þótt þeir gætu ekki notið þeirra og lífskjör þeirra héldust óbreytt. Kannski varð fátækt og eymd indíánanna aldrei meiri en einmitt nú þegar þeir höfðu nýjar áþreifanlegar viðmiðanir fyrir aug- um sínum. (Sjá mynd). Indíánarnir hófu nú smákaupmennsku í stórum stíl og lífsgæðakapphlaup þeirra hófst fyrir alvöru. Skilaboð nútímans voru skýr: Indíánar Bólivíu yrðu einfaldlega að laga sig að nýjum aðstæðum ef þeir ætluðu að fá að bergja á allsnægtabrunni hvíta Gömul indíánakona. söluvarningi annars stórkostlegt útsýni. Þar er jafnvel sjálf kaþólskan ástunduð í nafni „dolores“ þegar indíánar biðjast fyrir í von um gull og græna skóga. Á leið upp Calvario hæðina má sjá full- orðna indíána kaupa leikfangabíla, dúkkuhús og eftirlíkingar af dollurum í trú um að eignast slík alvörugæði síðar. Margir ganga jafnvel svo langt að láta blessa slíkt dót. Kirkjur eru troðfullar af fólki biðjandi í hljóði: Dolores, dolores, dolores. Þvílík örvænting, þvílík eymd, þvílík fátækt. Og á sólareyjunni „Isla del sol“, sjálfri paradís á jörðu, stinga örvæntingarfullar ölmusubeiðnir innfæddra óneitanlega í stúf við hina stórfenglegu náttúru. Sak- laus stelpugrey rétta linnulaust út lófa sína; biðjandi fyrst, heimtandi síðan: Do- lores! Dolores! Dolores! Eins og ekkert annað skipti máli. Fátækt indíánanna virðist aldrei vera eins skerandi og við slík- ar kringumstæður. Til allrar hamingju er ekki alls staðar sama eymdin. Víða annars staðar er að finna lífsglaða indíána sem bregða ósjald- an á leik með dans og söng í þjóðlegum dúr og ylja þreyttum túrista svo sannarlega um hjartaræturnar. Og alls staðar er hægt að rekast á verslun með „artesana“, handið- nað indíána sem byggir á ævafornu hugviti þeirra. Já, þrátt fyrir allt þá hefur indíánum Bólivíu tekist að varðveita hluta af menn- ingararfleifð forfeðranna; hin ómetanlegu og varanlegu verðmæti sem ganga mann fram af manni, dýpka þjóðarvitund þessa fólks, sameina það í eina sjálfstæða þjóð og efla reisn þess og dáð. Þessi verðmæti er ekki síður að finna í hinum fjölmörgu mállýskum indíána sem þeim hefur tekist með ótrúlegri seiglu að halda í þrátt fyrir ágang spænskunnar. Þá er menningararfi indíána ekki síst haldið við í trúarbrögðum, venjum og list- um. Þegar skyggnst er undir yfirborðið virðast indíánarnir sinna sínum eigin trúarbrögðum enda þótt þeir stundi ka- þólska trú á opinberum vettvangi þegar tilefni er til. mannsins. Og það hafa þeir gert. Sú staðreynd birtist ljóslifandi hverjum þeim sem leið á til Bólivíu. Þar má hvarvetna sjá indíána seljandi kvölds og morgna vestrænan varning eins og rafhlöður, kúlupenna, vasahnífa, tyggigúmmí og Coca-Cola inn- an um hnetur og bólivískan handiðnað. Allt kapp er lagt á að græða sem mest á túristunum. Kaþólski helgireiturinn á Calvario hæðinni í Copacabana er skýrt dæmi um það. Þar byrgja staflar fullir af Andstæður Bólíviu í hnotskurn; þar sem gamli og nýi heimurinn mætast. 30 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.