Þjóðlíf - 01.05.1991, Page 31
ÞJÓÐLÍF 31
Verða léleg lífskjör hlutskipti þeirra um alla
tið?
plógsstarfsemi að ræða ellegar hræðileg
mistök — óviljaverk í góðri trú — sökum
kunnáttuleysis skal ósagt Iátið. Hitt er
ljóst að fyrrgreindir atburðir hljóta að
vekja okkur til umhugsunar um líf og ör-
lög indíánanna. Til að mynda vakna
spurningar um það hvort skipta á sér af
málefnum indíánanna yfir höfuð og með
hverjum hætti.
Hér er vitaskuld í mörg horn að líta.
Ljóst er að sú einangrun sem indíán-
ar bjuggu við forðum daga hefur hvar-
vetna verið rofín. Innfæddir hafa kynnst
heimi hvíta mannsins, orðið fyrir áhrifum
hans og meðtekið hann. Nú verður vart
snúið til baka. Samfara þessari nýju þróun
hafa óhjákvæmilega fylgt efnahagsleg, fé-
lagsleg og sálfræðileg vandamál sem alla
varða.
Stjórnvöld í Bólivíu sem og vísinda-
menn utan úr heimi hafa látið mál indíána
til sín taka í síauknum mæli og leitað
lausna á vandamálum þeirra. Til að
mynda eru nú í burðarliðnum áætlanir um
að koma handiðnaði indíána á markað í
Bandaríkjunum og bæta samgöngur. Þá
hefur verið ýtt úr vör herferð gegn fram-
leiðslu og sölu kókaíns undir kjörorðinu:
„Coca por desarrollo“ eða þróun í stað
kókaíns sem miðar að því að leysa kókaín-
ræktun af hólmi með annars konar ræktun
og iðnaði.
Enn er þó langt þangað til slíkar áætlan-
ir munu skila árangri. Þá hafa mikil mis-
tök verið gerð í vanhugsuðum áætlunum
Þá er hjátrú indíánanna enn mjög sterk í
bólivísku þjóðfélagi og birtist með marg-
víslegum hætti, öðrum en dýrkun á alls
kyns dóti. Til að mynda er sá siður enn við
lýði að slíta Lama afkvæmi úr móðurkviði
rétt fyrir fæðingu og grafa það í grunni
nýbyggðs húss, jafnvel opinberra bygg-
inga til lukku.
Ekki verður því annað sagt en að menn-
ing indíána hafi haldið velli í einhverjum
mæli þrátt fyrir áhrif og ágang utanað-
komandi aðila. Hversu lengi hún þraukar,
blessuð menningin, veit enginn. Sumir
binda vonir við hjálparstofnanir sem hafa
öðlast dýrmæta reynslu í því að senda á
vettvang mannfræðinga, lækna og aðra
sérfræðinga í málefnum indíána. Leitast
er við að kenna þeim að hjálpa sér sjálfir og
laga sig smátt og smátt að nýjum aðstæð-
um án þess að glata sérkennum sínum og
menningu. Slíkt hjálparstarf krefst vissu-
lega mikillar kunnáttu og tekur mjög lang-
an tíma.
Þegar viðvaningar eiga í hlut er hætta á
að slys eigi sér stað. I heimildamynd frá
bresku sjónvarpsstöðinni BBC, síðastliðið
vor var fjallað um bandaríska trúboðs-
starfsemi í Suður-Ameríku, m.a. í Bóli-
víu. I mynd þessari var greint frá því þegar
bandarískir trúboðar þjálfaðir upp í glæsi-
legum villum héldu með leyfi stjórnvalda
inn í frumskóga hitabeltisins vopnaðir
rifflum. Markmið þeirra var að kenna in-
díánum lifnaðarhætti „siðmenntaðra“;
kristna þá og kenna þeim skógarhögg svo
að þeir gætu orðið sér og þjóðfélagi sínu að
„gagni“. Trúboðsstarfsemin átti hins veg-
ar eftir að snúast í hreinustu martröð.
Kristniboðið byrjaði ekki betur en svo, að
við komu trúboðanna gripu indíánarnir til
vopna með þeim afleiðingum að nokkrir
þeirra létu lífið. Þegar forráðamenn
trúboðsstarfsins voru inntir álits á þessu
ypptu þeir öxlum og létu sér fátt um finn-
ast.
Sumir indíánanna þrjóskuðust við,
neituðu að fylgja trúboðunum og héldu
áfram að lifa sínu lífi. Flestir þorðu hins
vegar ekki annað en að fylgja trúboðunum
að málum.
Indíánunum var síðan komið fyrir í
gatslitnum tjöldum á þröngu svæði og gef-
inn dósamatur að borða. Þá voru þeir látn-
ir vinna við að fella tré og fengu einhverja
smáaura í staðinn. Til að kenna þeim gildi
peninga þurftu þeir að kaupa drykkjar-
föng sín sjálfir sem voru í formi notaðra
niðursuðudósa. Slík viðskipti stríddu hins
vegar gegn lífsviðhorfi þeirra, — því að
allir ættu að njóta alls í sameiningu.
Þá var indíánunum veitt kennsla í bi-
blíufræðum. Var lögð áhersla á að þeir
sem óhlýðnuðust færu rakleiðis til vítis.
Ekki leið á löngu uns trúboðarnir hurfu á
bak og brott og skildu indíánana eftir í
reiðileysi með biblíur einar í höndum. En
biblíurnar dugðu hrörlegum og ósjálf-
bjarga gamalmennum lítið og unglings-
hnátur neyddust til að selja sig í stórborg-
inni. í viðtölum við nokkra trúboðanna
kom fram að 2 af hverjum 3 þeirra höfðu
hætt störfum þegar þeim varð ljóst hvert
stefndi.
Hvort hér var um hreina og beina fjár-
Skerandi fátxkt meðal indíána Bólivíu. Myndin er tekin í litlu þorpi þar sem eingöngu búa
indíánar.
L