Þjóðlíf - 01.05.1991, Page 32
Ertu á leiðinni utan?
HOTELIÐ VIÐ
FLUGVÖLLINN
42 þægileg herbergi,
fyrsta flokks
veitingastaður og bar.
Aðeins fimm mínútna
akstur frá Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Hjá okkur fá ferðamenn
fyrsta flokks þjónustu.
- Alltaf.
Flug hótelið í Keflavík er
hótelið við flugvöllinn.
Vel búin herbergi og
svítur. Veitingasalur, bar
og rástefnusalur.
Bílageymsla í kjallara
akstur til og frá
Flugstöðinni.
VEISLU- OG
RÁÐSTEFNUSALUR
HAFNARGATA 57 230 KEFLAVÍK
SlMI 92-15222. FAX 92-15223
/ Tiwanaku; fyrír framan fomar menjar hcldur „nútímakonan" fast í stöðutáknið —hið lifandi
stolt Bólivíu(lamadýrið).
stjórnvalda sem hyggjast leysa vandamál
indíána á einu bretti. Til að mynda hafa
stjórnvöld nýverið gripið til þess ráðs að
leggja úr vör með nokkurs konar nýlend-
ustefnu á nútíma vísu. Hún felst í því að
fólki frá hálendinu er í stórum stíl gert
kleift að flytjast búferlum til hitabeltis-
svæðanna. En loftslagið þar verður fólk-
inu oft þungt í skauti. Hitinn reynist því
óbærilegur og sjúkdómar blossa upp með
hörmulegum afleiðingum. Þá hefur fólkið
ekki ráð á sögum og öðrum verkfærum til
eðlilegra skógarnytja. í fáfræði stundar-
hagsmuna ryður það skógana með ófag-
legum íkveikjum og skilur eftir sig sviðnar
jarðir, óhæfar til ræktunar.
Nýlendustefnan hefur sætt mikilli en
máttvana gagnrýni vísindamanna sem og
annarra er láta sig framtíð Bólivíu miklu
varða. Þeir hinir sömu benda á aðrar
heillavænlegri en jafnframt erfiðari leiðir
til úrbóta. Vísa þeir m.a. til nýlegra rann-
sókna bandarískra vísindamanna sem hafa
svipt hulunni af rúmlega 3000 ára gamalli
en afar þróaðri áveitu- og ræktunartækni
indíána. Sú tækni gerði innfæddum kleift
að nýta sér sólar- og vatnsorku út í ystu
æsar og draga með þeim hætti úr hrikaleg-
um veðursveiflum á hálendinu. Hin al-
dagamla og hugvitsamlega tækni hefur
komið vísindamönnum til að gapa af
undrun og vakið hjá þeim vonir um að
unnt sé að nota hana á ný.
ljósi þess hve ódýr hin forna tækni er í
samanburði við tækni nútímans hafa
stjórnvöld nú loksins látið undan þrýst-
ingi vísindamanna og veitt þeim leyfi til að
hefja ræktun í tilraunaskyni með notkun
hinnar gömlu tækni. Ýmis ljón eru þó í
veginum. Af skiljanlegum ástæðum en
einnig fyrir kaldhæðni örlaganna hafa
rannsóknir bandarískra vísindamanna
mætt töluverðri tortryggni og andstöðu
íbúa hálendisins, afkomenda þeirra sem
fundu upp hina snilldarlegu tækni. Þá er
ekkert vitað um veðurfar á tímum Tiwan-
aku- og Inkamenningarinnar þegar tækn-
in var notuð. Það er undir hælinn lagt
hvort hún hentar nútímaaðstæðum.
Loks hafa stjórnvöld ekki sýnt aðferð-
um af þessu tagi áhuga. Þolinmæði þeirra
er á þrotum. Erlendar bankastofnanir
gera kröfur til þess að stjórn Bólivíu haldi
áfram að grynnka skuldir ríkisins og mik-
ilvægt er að stjórnvöld sýni viðleimi í þá
átt til að fá frekari lán til uppbyggingar í
þjóðfélaginu.
Þá skortir Bólivíu fjármagn, tækni og
aðgang að mörkuðum til að nýta þær auð-
lindir sem hún hefur að geyma. Stjórnvöld
hafa því biðlað til fjársterkra auðhringa
sem hafa sýnt fjárfestingum í Bólivíu auk-
inn áhuga einkum eftir að stöðugleiki náð-
ist í bólivísku efnahagslífi.
Að framan hefur verið leitast við að lýsa
í grófum dráttum afdrifum indíána Bóli-
víu og þeim vandamálum sem steðja að
þeim nú. Slík umfjöllun getur aldrei náð
utan um svo viðamikið og flókið mál, í
mesta lagi getur hún varpað örlitlu ljósi á
það.
í fljótu bragði virðist sú þróun sem nú á
sér stað í Bólivíu og felst í umbyltingu
frumstæðs bændasamfélags í sívaxandi
neysluþjóðfélag vart verða umflúin. Og
kannski er hún indíánum Bólivíu nauð-
synleg á leið þeirra til aukins þroska,
bættra lífskjara og meiri lífshamingju.
Hvaða verði sú þróun er keypt getur
tíminn einn leitt í ljós. Hversu vel tekst til
hjá indíánum er undir þeim sjálfum komið
sem og öllum þeim sem geta lagt hönd á
plóginn.
0
32 ÞJÓÐLÍF