Þjóðlíf - 01.05.1991, Blaðsíða 34
MENNING
KONA ÞÚSIIND ANDLITA
Það hefur gengið á ýmsu á undanförnum áratug hjá Annie Lennox,
söngkonu hins geysivinsœla dúetts Eurythmics. En nú
er hún komin ífrí sem hún hefur þráð lengi
Söngkonan breska, Annie Lennox, er í
fríi frá samstarfsmanni sínum Dave
Stewart. Og hann er í fríi frá henni.
Dúettinn vinsæli, Eurythmics, skilgetið
afkvæmi þeirra tveggja er í hvíld. Enda
kannski ekki nema von eftir meira en ára-
tugs tilveru og miklar vinsældir.
Annie og Dave hittust seint á áttunda
áratugnum á matsölustað þar sem hún
vann sem gengilbeina og kabarettdama,
en áður hafði hún verið nemandi í píanó og
flautuleik í TheRoyal Academy of Musicí
London. Þau stofnuðu The Tourists með
þremur félögum sínum og á tímabilinu
1977-80 áttu þau fimm smelli á breska
vinsældalistanum.
Þegar hljómsveitin leystist upp héldu
þau tvö samstarfinu áfram og tóku sér
nafnið Eurythmics. Þremur árum síðar
höfðu þau fullþróað sinn mjög svo sér-
staka stíl sem var í senn nútímalegur og
léttur. Popp var þeirra tónlist og hljóð-
gervlar allskonar og trommuheilar mjög
áberandi. Þau hafa gefið út vel á annan tug
platna og nú er komin út plata með vinsæl-
ustu lagasmíðum þeirra. En það eru ekki
bara lögin sem hafa aflað þeim vinsælda
heldur einnig myndböndin sem mörg
hver eru nánast meistaraverk á því sviði.
Þau eru uppfull af ferskum hugmyndum
og hefur Annie brugðið sér í mörg gervin í
EFTIR GUNNAR H. ÁRSÆLSSON
þeim, m.a. karlmannsgervi. Hún er eigin-
lega kona með þúsund andlit.
n líf poppstjörnunnar er ekki dans á
rósum, það hefur Annie Lennox
fengið að reyna. Þau hafa bæði gengið í
gegn um súrt og sætt á ferlinum. í nýjasta
hefti breska tónlistartímaritsins Q segir
hún sögurnar að baki margra vinsælustu
laga Eurythmics. Gefum Annie orðið:
Love is a Stranger. Ég samdi textann á
ferðatölvuna mína því mér finnst mjög
þægilegt að geta breytt og bætt við að vild.
Þegar myndbandið var sýnt í Bandaríkj-
unum olli það ofsareiði og fólk var á báð-
um áttum varðandi kynferði mitt. Við
uppgötvuðum að viðbrögð Bandaríkja-
manna við útliti fólks eru mjög sterk og
afgerandi. Allt í einu var ég orðin með
útliti mínu ógnandi persóna. Og þetta lík-
aði mér vel, fannst þetta gefa mér vald sem
ég hafði ekki haft áður. Og við Dave vor-
um sammála um að það þyrfti að vera
eitthvað mjög sérstakt við framsetningu
Eurythmics.
Sweet Dreams: Lagið var alger smellur og
nú þurftum við ekki að sanna okkur fyrir
neinum. Allar dyr opnuðust og við vorum
ekki lengur óþekkt heldur fræg. Mér
finnst ég hafa brugðist rétt við frægðinni
því hún breytir einhverju í innra lífi
manns; gerir mann spenntan, þú verður
meðvitaðri um sjálfa þig og verndar þig
meira. Og frægðin einangrar. Þarna tók ég
skrefið til fulls og einangraði mig því mér
finnst ég alltaf hafa verið einskonar útlagi.
Who’s that Girl?: Ég var mjög ástfangin á
þessum u'ma, margir textarnir mínir voru
um óendurgoldna ást. Og þeir snerust
aðeins um einn hlut í huga mínum, ástina,
en þegar fram líðu stundir breyttist þetta.
Sistersaredoin’itfor themselves: Þettalag
var að því leyti þolraun að þarna var um að
ræða lag sem spila átti á útvarpsstöðvun-
um en á sama tíma átti það að koma hug-
myndafræði kvenna á framfæri. Ég skrif-
aði textann á einum morgni og sagði við
Dave að það þyrfti stórkostlega konu til að
syngja það með mér. Okkur datt Tina
Turner í hug, höfðum samband við hana
en henni þótti of mikil kvennapóhitík í
laginu. En svo höfðum við samband við
Arethu Franklin og hún sló til. Mér fannst
hún koma fyrir sem frekar feimin og sorg-
mædd, einmana kona. Og okkur kom
ekki saman vegna þess að hún er kjötæta
en ég grænmetisæta (Annie Lennox giftist
árið 1984 manni að nafni Radha Raman
sem var Hare Krishna og grænmetisæta.
Þetta voru áhrif frá honum. Þau skildu
eftir stutt hjónaband). Ef konan vill borða
svínarif er það hennar mál. Ég tala ekki
um samskipti mín við hana að öðru leyti.
34 ÞJÓÐLÍF