Þjóðlíf - 01.05.1991, Page 35
I
There Must be an Angel (playing with my
Heart): Við bókuðum okkur í hljóðver í Los
Angeles til að taka þetta lag upp og áttum von á
Stevie Wonder í upptökuna með okkur. En
sagan segir að tímaskyn hans sé ekki upp á það
allra besta og við biðum og biðum. Að endingu
þegar við vorum orðin mjög svartsýn á að hann
kæmi birtist kappinn. Hann er aðdáunarverð
persóna og þegar hann spilar hristir hann höf-
uðið svo mikið að það glamrar í dótinu sem
hann er með í hárinu. Þessvegna varð að binda
það fast svo lætin heyrðust ekki inn á upptök-
una. Stevie Wonder er snillingur og það var vel
þess virði að bíða eftir honum.
Would I lie to you og Thorn in my Side: Það
þarf nú ekki háa greindarvísitölu til þess að sjá
það út að þessi lög eru samin eftir skilnaðinn
við fyrsta eiginmann minn.
Missionary Man: Þetta lag er um Hare Krishna
og allt það. Hare Krishna eru svipuð öðrum
bókstafstrúarbrögðum sem leggja áherslu á
gömlu gildin, s.s. fjölskylduna og þess háttar.
Og mörg þessi gildi eru góð. Fólk sem tilheyrir
þessum trúflokki er mjög öfgakennt í útliti
(sköllótt og í appelsínugulum sloppum, innsk.
G.H.Á.) og það heillaði mig. Mér fannst líka
gott að þeim var sama hvað öðrum fannst, ég
held að vestræn samfélög séu illa á vegi stödd
en þetta fólk vill gera hluti sem það heldur að sé
því fyrir bestu. Samt verður maður að vera
vakandi gagnvart fólki sem telur sig hafa svör
við öllu og þarna fann ég m.a. hræsni og tvöfalt
siðgæði. En ég hef ennþá áhuga á au-
strænni heimspeki og dulhyggju.
Angel: Ég á stundum mjög
erfitt með að syngja
þetta lag. Upp-
haflega var
þetta ljóð
um
frænku
mína sem
dó 57 ára
gömul. Á
þessum
tíma var
ég heilluð
af dauð-
anum.
Ég sá
fyrir mér
grafreit-
inn, þak-
inn snjó,
laufum
og blóm-
um. Og ég sá
fyrir mér frænku mína. Það breyttist
þegar ég fæddi mitt fyrsta barn andvana. En í
aðalatriðum er þetta lag um dauðann. Við deyj-
um öll einhverntímann, segir Annie Lennox.
0