Þjóðlíf - 01.05.1991, Side 41
MENNING
100 ÁR FRÁ FÆÐINGU MUGGS
I* ár eru liðin 100 ár frá fæðingu Guð-
mundar Thorsteinsson listmálara,
öðru nafni Muggs. Um hann hefur Björn
Th.Björnsson skrifað bókina Muggur
(Listasafn ASI og Lögberg, 1984)en þessi
grein er m.a. byggð á þeirri bók. Muggur
fæddist á Bíldudal 5. september 1891 og
var sonur hjónanna Péturs Thorsteins-
son og Asthildar Guðmundsdóttur, syst-
ur Theodóru Thoroddsen skáldkonu.
Pétur rak þilskipaútgerð og verslun á
Bíldudal. Þau hjón áttu 10 börn, fyrst
komu 6 dætur og þá 4 synir en Muggur var
elstur þeirra. Hann ólst upp í glöðum
systkinahópi í einhverju mesta ríkidæmi
sem þá var á Islandi en það hefur að líkind-
um haft mikil áhrif á skaplyndi hans. Þess
má geta að Asgrímur Jónsson listmálari
vann um skeið hjá Pétri Thorsteinsson og
það voru þau hjónin sem keyptu fyrstu
myndir hans.
Aldrei kom annað til greina en að
Muggur færi í listnám. Fjölskyldan flutti
búferlum til Kaupmannahafnar árið 1903.
Muggur settist fyrst í Teknisk Selskabs
Foreldrar Muggs, Pétur J. Thorsteinsson og
Asthildur Guðmundsdóttir.
SIGRÍÐUR MATTHÍASDÓTTIR
Skole þar sem mjög margir íslendingar
hlutu sína fyrstu menntun í myndlist en
var síðan tekinn inn í Akademíið árið 1910.
Muggur var afar sérstæður, bæði sem
persóna og listamaður. Hann var það sem
kallað er „bóhem“, honum var ósýnt um
veraldleg mál eins og t.d. fjármál og hann
undi aldrei lengi á einum stað í einu. Hann
fór víða, var um skeið í Noregi og sigldi
meira að segja til New York. Muggur
sinnti ýmsum tegundum myndlistar öðr-
Muggur og kona hans, Inger. Myndin er tekin
á þaksvölum hússins Laufásvegur 46.
um en málverkinu og raunar var honum
sýnna um margt annað en að mála olíu-
málverk. Hann saumaði mikið út, t.d.
belti og bönd á systur sínar á unglingsár-
unum og um skeið er hann dvaldi á Húsa-
felli ásamt Jóni Stefánssyni listmálara þá
dvaldi hann inni í vondum veðrum og
saumaði myndir.
Sömuleiðis gerði hann klippimyndir og
eftir hann liggur töluverður fjöldi teikn-
inga gerðar eftir þjóðsögum, t.d.gerði
hann myndröð við þjóðsöguna Sálin hans
Jóns míns. Og margir þekkja ævintýrið
um Dimmalimm eftir Mugg. Björn Th.
Björnsson listfræðingur segir að yfirleitt
sé eitthvað létt og frjálslegt en einnig Ijóð-
rænt og rómantískt yfir myndum Muggs.
Árið 1917 kvæntist Muggur danskri
stúlku, Inger Naur en það hjónaband stóð
stutt.
Síðasta Ijósmyndin sem tekin var af Mugg,
—tekin eftir áramótin 1924 ! Cagnes.
Muggur lék fyrir atbeina Gunnars
Gunnarssonar rithöfundar aðal-
hlutverkið í myndinni Saga Borgarættar-
innar, Ormar Örlygsson. Sú mynd var
tekin víða, t.d. á Keldum á Rangárvöllum
og í Reykholti. Sagt er að sú atvinna hafi
lítið átt við hann.
Muggur kenndi sér ungur berkla og lá
inni á Vífilsstöðum mest allt árið 1923 en í
október sigldi hann til Cagnes í Frakk-
landi því hann trúði því að hann kæmist
best til heilsu með því að fara suður í
sumar og sól. Veturinn varð harður í
Frakklandi og þegar kom fram yfir áramót
heltók sjúkdómurinn hann. Hann lést
27.júlí, 1924 í Danmörku, tæplega 33 ára
að aldri.
Þótt Muggur létist ungur og hlutur
hans í íslenskri myndlistarsögu e.t.v. ekki
mjög stór þá er samt sérstakur ljómi yfir
minningu hans, eitthvað sem hlýjar
mönnum um hjartarætur enn þann dag í
dag.
0
ÞJÓÐLÍF 41