Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 41

Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 41
MENNING 100 ÁR FRÁ FÆÐINGU MUGGS I* ár eru liðin 100 ár frá fæðingu Guð- mundar Thorsteinsson listmálara, öðru nafni Muggs. Um hann hefur Björn Th.Björnsson skrifað bókina Muggur (Listasafn ASI og Lögberg, 1984)en þessi grein er m.a. byggð á þeirri bók. Muggur fæddist á Bíldudal 5. september 1891 og var sonur hjónanna Péturs Thorsteins- son og Asthildar Guðmundsdóttur, syst- ur Theodóru Thoroddsen skáldkonu. Pétur rak þilskipaútgerð og verslun á Bíldudal. Þau hjón áttu 10 börn, fyrst komu 6 dætur og þá 4 synir en Muggur var elstur þeirra. Hann ólst upp í glöðum systkinahópi í einhverju mesta ríkidæmi sem þá var á Islandi en það hefur að líkind- um haft mikil áhrif á skaplyndi hans. Þess má geta að Asgrímur Jónsson listmálari vann um skeið hjá Pétri Thorsteinsson og það voru þau hjónin sem keyptu fyrstu myndir hans. Aldrei kom annað til greina en að Muggur færi í listnám. Fjölskyldan flutti búferlum til Kaupmannahafnar árið 1903. Muggur settist fyrst í Teknisk Selskabs Foreldrar Muggs, Pétur J. Thorsteinsson og Asthildur Guðmundsdóttir. SIGRÍÐUR MATTHÍASDÓTTIR Skole þar sem mjög margir íslendingar hlutu sína fyrstu menntun í myndlist en var síðan tekinn inn í Akademíið árið 1910. Muggur var afar sérstæður, bæði sem persóna og listamaður. Hann var það sem kallað er „bóhem“, honum var ósýnt um veraldleg mál eins og t.d. fjármál og hann undi aldrei lengi á einum stað í einu. Hann fór víða, var um skeið í Noregi og sigldi meira að segja til New York. Muggur sinnti ýmsum tegundum myndlistar öðr- Muggur og kona hans, Inger. Myndin er tekin á þaksvölum hússins Laufásvegur 46. um en málverkinu og raunar var honum sýnna um margt annað en að mála olíu- málverk. Hann saumaði mikið út, t.d. belti og bönd á systur sínar á unglingsár- unum og um skeið er hann dvaldi á Húsa- felli ásamt Jóni Stefánssyni listmálara þá dvaldi hann inni í vondum veðrum og saumaði myndir. Sömuleiðis gerði hann klippimyndir og eftir hann liggur töluverður fjöldi teikn- inga gerðar eftir þjóðsögum, t.d.gerði hann myndröð við þjóðsöguna Sálin hans Jóns míns. Og margir þekkja ævintýrið um Dimmalimm eftir Mugg. Björn Th. Björnsson listfræðingur segir að yfirleitt sé eitthvað létt og frjálslegt en einnig Ijóð- rænt og rómantískt yfir myndum Muggs. Árið 1917 kvæntist Muggur danskri stúlku, Inger Naur en það hjónaband stóð stutt. Síðasta Ijósmyndin sem tekin var af Mugg, —tekin eftir áramótin 1924 ! Cagnes. Muggur lék fyrir atbeina Gunnars Gunnarssonar rithöfundar aðal- hlutverkið í myndinni Saga Borgarættar- innar, Ormar Örlygsson. Sú mynd var tekin víða, t.d. á Keldum á Rangárvöllum og í Reykholti. Sagt er að sú atvinna hafi lítið átt við hann. Muggur kenndi sér ungur berkla og lá inni á Vífilsstöðum mest allt árið 1923 en í október sigldi hann til Cagnes í Frakk- landi því hann trúði því að hann kæmist best til heilsu með því að fara suður í sumar og sól. Veturinn varð harður í Frakklandi og þegar kom fram yfir áramót heltók sjúkdómurinn hann. Hann lést 27.júlí, 1924 í Danmörku, tæplega 33 ára að aldri. Þótt Muggur létist ungur og hlutur hans í íslenskri myndlistarsögu e.t.v. ekki mjög stór þá er samt sérstakur ljómi yfir minningu hans, eitthvað sem hlýjar mönnum um hjartarætur enn þann dag í dag. 0 ÞJÓÐLÍF 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.