Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 43
Atiiði úr myndinni „Millers Crossing“
sem sumir gagnrýnendur ílokka í hóp
bestu mynda allra tíma.
\
að 40 mín. löngu sjónvarpsleikriti og út-
koman verið jafn góð. Vissulega er það
göfugt af Palin að heiðra minningu for-
feðra sinna á þennan hátt en hann má ekki
búast við því að hinn almenni kvikmynda-
gestur hafi athyglisgáfu eða áhuga á að
fylgjast með heilli kvikmynd þess efnis.
Millers Crossing - ***l/2
Þessi mynd var sniðgengin af tilnefninga-
nefnd óskarsverðlauna en gagnrýnendur
vestan hafs héldu ekki vatni yfir henni og
sumir létu það flakka að hún gæti verið í
hópi bestu mynda allra tíma. Kannski er
það ástæðan fyrir að akademían gaf mynd
Cohen bræðranna langt nef, hver veit. En
saman tekst bræðrunum að gera frábæra
kvikmynd, Ethan framleiddi, Joel leik-
stýrði og þeir skrifuðu handritið saman.
Myndin er klassísk hvað efnivið og hand-
rit varðar, frábærlega snúinn söguþráður
um glæpagengi í stórborg í Bandaríkjum
tíunda áratugsins. Harðir leiðtogar,
slungnir ráðgjafar og hættulegar konur
setja svip sinn á myndina sem leiðir mann
áfram ráðvilltan en á sama tíma spenntan í
gegnum ástarsambönd, svik, byssubar-
daga, svik, slagsmál, svik og svik. Þetta
handrit myndi gleðja jafnvel Dashiell
Hammet og Mickey Spillane.
Það sem er skemmtilegast við myndina
er leikstjórn hennar og öll tæknivinna, þó
einkum lýsing og kvikmyndataka og
skapa þessir þættir ótrúlega stemmningu.
Gabriel Byrne fer með hlutverk ráðgjafa
leiðtoga annarra glæpasamtakanna, trúir á
lævísi frekar en ofbeldi og fær í laun bar-
smíði út alla myndina. Hann spilar á bæði
glæpasamtökin sem eru í allsherjarstríði
og reynir með kænsku að koma á friði.
Albert Finney leikur Leo, annan leiðtog-
anna af mikilli innlifun og sannfæringu og
stelur senunni frá öðrum leikurum í atriði
þar sem andstæðingarnir gera tilraun til að
stytta honum aldur. Sena sem er jafn
kraftmikil og hún er ofbeldisfull. Aðrir
leikarar standa sig með stakri prýði, t.d.
Marcia Gay Hardens í hlutverki Vernu
ástkonu Leo og John Turturro (Breyttu
Rétt) sem leikur aumingjalegan en jafn-
framt lævísan bróður hennar. Einstök
mynd sem er og verður ógleymanleg og
hátt skrifuð í bók ódauðlegra og góðra
kvikmynda.
Sýnd í Bíóborginni.
The Russia House - **
Mig hryllir við þeirri tilhugsun hvernig
myndin The Russia House væri án þeirra
stórleikara sem í henni eru. Handritið ger-
ir ekkert fyrir þessa mynd sem er hæg,
torskilin og óspennandi. Helstu kostir
hennar eru sem áður segir gott leikaralið
og það að hún er að mestu tekin í Sovét-
ríkjunum sem gefur áhorfanda möguleika
á að virða fyrir sér glæsilegar byggingar í
Moskvu og Leningrad. Þetta tvennt hefði
átt að hjálpa mikið til við að skapa rétt
andrúmsloft en vegna þurrs söguþráðar og
engrar stígandi verður allt saman grátt og
ómerkilegt. Sean Connery og Michele
Pfeiffer gera sitt besta til að skapa áhuga-
verðar söguhetjur og Albert Cox er mjög
góður í hlutverki deildastjóra innan
bresku leyniþjónustunnar en það þarf
meira til. Mikil vonbrigði.
Sýnd í Bíóhöllinni.
KDP.
ÞJÓÐLÍF 43