Þjóðlíf - 01.05.1991, Page 51
Filippseyjar: nýrnamarkaður
fyrir ríka Japani
sagði stundarhátt að nú ætluðu menn að
slíta úr honum augun.
Þegar hann vaknar hefur hann bindi
fyrir augum. Hann er blindur. Fátækir
ættingjar hans sjá um hann. í hálft ár bíð-
ur hann þess að fá sjónina aftur. Hann
talar stöðugt um að hann vilji fá augun til
baka. Saga Froilan Jiménez berst smám
saman til æsifregnablaðsins Cronica Pol-
icial sem mætti þýða með„ Afbrot vikunn-
ar“ og mál hans er tekið til rannsóknar.
Hann er skoðaður af sérfræðingi í augn-
skurðlækningum sem kveður upp þann
úrskurð að augu Jiménez hafi sennilega
verið fjarlægð með skurðaðgerð. Sönnun
þess sé sú að tárakirtlarnir séu heilir og án
áverka. Ef hann hefði misst augun við
högg eða þau hefðu verið stungin úr hon-
um í slagsmálum væru tárakirtlarnir ekki
óskaðaðir. Sögunni hefði trúlega lokið hér
ef skrif Cronica Policial hefðu ekki sett af
stað holskeflu sögusagna sem lengi höfðu
gengið manna á milli í Caracas. Sögusagna
um skurðlækna sem rændu líffærum fá-
tæklinga í Caracas og seldu til Bandaríkj-
anna.
Stórblaðið Diario de Caracas birtir
sögu Froilan Jiménez og bætir við sögum
af börnum fátæklinga sem rænt hafi verið
og fundist blind nokkrum vikum síðar.
Jiménez ákærir forstöðumenn drykkju-
mannaathvarfsins fyrir að hjálpa líffæra-
ræningjum og stefnir þeim. Við réttar-
höldin segist lögreglan hafa fundið augu
Jiménez. Til sönnunar eru réttinum sýnd
augu sem liggja í formalíni í glerkrukku.
En rétturinn hefur sínar efasemdir. Aug-
un í krukkunni eru svo heilleg, hvernig er
það mögulegt ef hann missti augun í slags-
málum? Nánari athugun leiðir í ljós að
augun er misstór og mislit. Rétturinn
dregur í efa að augun séu úr Jiménez.
Lögreglan segir Jiménez þjást af
drykkjubrjálæði og hafa alvarlegar trufl-
anir á minni, það sé ekkert að marka vitn-
isburð hans. Lögfræðingarnir krefjast
þess að læknar og starfslið Perez Carenno
sjúkrahússins séu yfirheyrðir. Þangað
hefði átt að færa Jiménez ef hann hefði
skaðast í slagsmálum í athvarfinu. Læknir
þaðan staðfestir að augu Jiménez hljóti að
hafa verið fjarlægð með skurðaðgerð. En
yfirlæknir sjúkrahússins neitar að taka
þátt í rannsókn málsins. Hann ávítar und-
irmann sinn fyrir vitnisburð hans og full-
yrðir að Froilan Jiménez hafi misst augun
í slagsmálum.
annsókn málsins nær ekki lengra og
yfirvöld reyna að þagga það niður.
Þá afhjúpar lögreglan hóp manna sem fæst
við stuld á líffærum. Það eru 11 starfsmenn
Japönsk lög banna líffæraflutning úr
látnum. Það hefur leitt til þess að
Japanir sækja í vaxandi mæli til nágr-
annalandanna, Filippseyja og jafnvel
Ástralíu til að fá nýrnagræðslu. Stjórn-
völd á Filippseyjum líta verslun með líf-
færi velþóknunarauga og dauðadæmdir
afbrotamenn fá dómi sínum breytt í
fangelsisdóm ef þeir gefa annað nýra
sitt. Þá geta fangar sem sitja af sér langa
refsivist fengið vistina stytta ef þeir gefa
að hljómar kaldhæðnislega en það
er skortur á dauðu fólki sem hefur
skapað svarta líffæramarkaðinn. For-
senda líffæraflutninga er að það sé fram-
boð af líffærum úr ungu, heilsuhraustu
fólki. Enginn tekur líffæri úr eftirlauna-
þegum. Vandamálið er að svo fáir deyja
ungir nú á tímum á Vesturlöndum. Lög-
gjöfin er líka oft hindrun í vegi líffæra-
flutninga. Ef dauði er skilgreindur sem
að öndun sé hætt, hjartað sé hætt að slá
og augasteinarnir bregðist ekki lengur
líkhúss Caracas sem skorið hafa augu úr
látnum og selt til augnlæknis í borginni. Á
læknastofu hans er hægt að kaupa horn-
himnuígræðslu fyrir um 35.000 krónur
sem samsvarar tveggja mánaða launum al-
þýðumanns í Venesuela. Það hefur sann-
ast að verslun með stolin líffæri á sér stað.
Hornhimnuígræðsla er tiltölulega einföld
gerð líffæraflutninga en yfirleitt krefst
líffæri. Morðingi sem var dæmdur til 25
ára fangavistar fékk vistina stytta í 5 ár
eftir að hafa gefið annað nýra sitt. Fleiri
ríki í Asíu hafa nýstárlega afstöðu til
lfffæraflutninga: Ríkisstjórn Taiwan
stakk nýlega uppá því að bjóða dauða-
dæmdum uppá að vera teknir af lífi með
skoti í höfuðið í stað þess að vera skotnir
í hjartastað ef þeir gengjust inná að gefa
hjarta sitt...
við ljósi, takmarkast mjög hvaða líffæri
er hægt að fjarlægja. Ef löggjöfin krefst
auk þess að viðkomandi einstaklingur
eða nákomnir ættingjar gefi samþykki
sitt þá takmarkar það enn frekar fram-
boð líffæra. Ef heiladauði nægir sem
skilgreining fáum við fljótlega ástand
sem minnir á atriði úr spennumyndinni
Coma, heiladauðir einstaklingar sem
liggja í öndunarvélum. Þegar líffæri
vantar er slökkt á vélinni...
0
hún að auga gefanda sé fjarlægt. Þess
vegna eru hornhimnur nánast alltaf teknar
úr látnu fólki. Það verður aldrei sannað
hvort augum Froilan Jiménez og fátækra
barna í Caracas hafi verið stolið af bíræfn-
um líffæraræningjum. En það er skelfilegt
til þess að hugsa að svo geti vel verið.
Frumheimild: Hugo Prieto; Exceso/
Caracas.
Líkskortur í ríka heiminum
ÞJÓÐLÍF 51