Þjóðlíf - 01.05.1991, Síða 53
Stríð í
hjólbarðaviðskiptum
ítalskur hópur fjárfestingar-
manna í kringum Leopoldo
Pirelli reynir meö ýmsum
brögöum aö ná valdi yfir
þýska hjólbarðafyrirtækinu
Conti. í marsmánuði tókst
hluthafafundi Conti aö koma í
veg fyrir aö Pirelli næði undir-
tökunum í fyrirtækinu þrátt
fyrir aö hann væri stór hlut-
hafi. Nýveriö hófu ítalirnir enn
aöra tilraun til aö ná Conti
undir sig. ítalskur banki sem
Pirelli á reyndar hlut í, hefur
boöiö japönsku hjólbarðafyr-
irtækjunum Yokohama, Toyo
og Sumitomo hlutabréfa-
pakka meö 23% hlut í Conti.
Önnur 10% eru í höndunum á
Pirelli og leppum hans og ótt-
ast Þjóðverjarnir aö ítalirnir
og Japanirnir ætli aö ráðast
saman inn í Conti. ítalirnir
hafa þegar gefið til kynna aö
þeir krefjist tveggja sæta í
stjórn Conti og aö fulltrúar
Deutsche Bank víki fyrir
þeim, enda fulltrúar minni
hlutar en Pirelli...
(Spiegel/óg)
Arðrændir í
fyrirheitna
landinu
Úr skipasmíðastöð i Rostock.
Staurblankir Sovétmenn
í skipasmíðastöövum fyrrver-
andi Austur-Þýskalands
eykst fjöldi nýsmíöaöra skipa
sem ekki hefur ennþá verið
borgað fyrir. Um mitt árið
veröa níu tilbúin skip í skipa-
smíðastöövunum viö Eystra-
salt. Þau bíöa bundin viö
hafnarbakkann því óvíst er
hvort kaupendum tekst aö
öngla saman gjaldeyri aö
upphæö um 17 milljarða
króna. Reyndar er óvíst hvort
þeir vilji þaö. Um er aö ræöa
gámaflutningaskip og togara
sem eru illseljanleg skip á al-
þjóöamarkaöi um þessar
mundir. Þjóöverjarnir reyna
að draga úr hraðanum viö
byggingu fleiri skipa sem
Sovétmenn áttu pöntuö af
ótta viö aö þau verði aldrei
greidd. Þaö hefur aftur á móti
valdið miklum erfiðleikum,
þar sem skipasmíðaiönaður-
inn í gamla Austur-Þýska-
landi er kominn að niöurlot-
um. Hvaö eftir annaö á síö-
ustu mánuðum hafa verið
geröar áætlanir um hvernig
eigi aö búa til aröbær fyrirtæki
úr þessum smíðastöðvum án
þess að raunverulegur
rekstrargrundvöllur finnist.
Málm og skipasmiöasam-
bandið í Þýskalandi hefur
reynt að halda verndarhendi
yfir þeim 45 þúsund starfs-
mönnum sem vinna viö
skipasmíðastöðvarnar, m.a.
komið í veg fyrir aö helmingi
þeirra veröi sagt upp í júní-
mánuöi eins og fyrirhugaö
var. í staðinn hefur vinnutími
verið styttur verulega og mikil
óvissa ríkir um framtíö þess-
arar iöngreinar...
(Spiegel/óg)
Óttast um tekjur af ferðamannaiðnaði
Gyöingar frá Sovétríkjunum
og Eþiópíu eru vissulega
boðnir velkomnir til ísrael af
ríkisvaldinu en þeir njóta lítils
öryggis í fyrirheitna landinu.
Dagblaöiö Dawar í ísrael seg-
ir aö fyrirtæki sitji fyrir fólkinu í
hafnarborginni Haifa og ráði
þaö til vinnu langt undir lög-
boðnum launataxta. „Þeir
notfæra sér þá staðreynd aö
verkafólkið þekkir ekki rétt-
indi sín“, segir skrifstofa
verkalýössamtakanna á
staönum. Emanuel Bios-
mann þingmaöur Verka-
mannaflokksins í Knesset
hefur krafist þess aö innflytj-
endurnir fái sér til verndar
sérstakar lögreglusveitir til aö
þeir geti varist skúrkum sem
vilja misnota þá...
(Spiegel/óg)
Herforingjastjórnin í Tælandi
hefur á prjónunum aö ráöast
gegn vændi í landinu. í fram-
tíðinni eiga öll vændishús aö
gangast undir strangt eftirlit.
Síöan á aö bjóöa ungum
stúlkum og konum upp á
menntunarmöguleika og
vinnumiðlun veröur sömu-
leiöis komið á. Þó aö vændi
sé að nafninu til bannaö í
Tælandi þá hefur um ein millj-
ón manns atvinnu sína af
„sexiönaöinum". Sérfræö-
ingar óttast að þessar ráö-
stafanir herforingjastjórnar-
innar leiöi til þess aö ferða-
mannaiönaöur landsins verði
einnig fyrir miklu áfalli en sú
atvinnugrein skilar hinu tæl-
enska þjóöarbúi mestum
gjaldeyri. Á þessu ári haföi
verið reiknaö meö tekjum af
feröamönnum aö upphæö
205 milljörðum íslenskra
króna! En eftir þessar ákvarð-
anir er reiknað meö aö svo
geti aldrei oröiö...
(Spiegel/óg)
Úr tælensku vændishúsi.
ÞJÓÐLÍF 53