Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 54

Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 54
UMSJÓN HALFDAN ÓMAR HALFDANAR OG ÞURÍÐUR ÞORBJARNARDÓTTIR Verdur regnskógunum bjargað? Mjúkum viði má breyta í harðvið Harmleikurinn um eyðingu regnskóganna er þyngri en tárum taki. Nú er talið að ár- lega séu ruddir um 120 þús- und ferkílómetrar af regn- skógi eða með öðrum orðum: árlega hverfur regnskógur af landsvæði sem er fimmtungi stærra en Island! Það sem er sárgrætilegast við eyðinguna er að hún er alls- endis ónauðsynleg. Aflvaki hennar er skammtímagróða- hyggja auðfyrirtækja og ein- staklinga sem ýmist ryðja skóginn til að skapa nautgrip- um beitiland eða til að afla harðviðar sem er einkum flutt- ur til vesturlanda og notaður þar í íburð í húsgögnum og öðrum húsbúnaði. Nautgriparæktin miðast við að anna sífellt aukinni eftir- spurn eftir hamborgurum en verð þeirra er býsna hátt þegar sú staðreynd verður mönnum ljós að til þess að framleiða einn hamborgara þarf að ryðja rúmlega sex, segi og skrifa sex, fermetra af regnskógi. Þessi tala er ótrúleg en hún verður skiljanlegri þegar það er haft í huga að sú sviðna jörð sem kemur undan regnskóginum tapar ofurfljótt frjómætti sín- um og þegar land hefur verið beitt í fimm til tíu ár þarf að ryðja nýtt land og færa hjörð- ina þangað. Það er augljóst að nautgripa- rækt er mjög dýr við þessi skil- yrði og það hlýtur að vera unnt að beina kröftum og áhuga þessara hamborgaraframleið- enda annað. Það hefur reyndar verið sýnt fram á það að menn geta borið meira úr býtum með því að nýta afurðir regnskóg- anna og það án þess að ganga á nokkurn hátt á þá. Þessar af- urðir eru endurnýjanlegar ef þess er gætt að ganga ekki um of á þær, rétt eins og gildir til að mynda um fiskistofna okk- ar. Nýtanlegar auðlindir regn- skóganna eru meðal annars ávextir, hvers kyns trjákvoða og olíur, lækningajurtir, ilmj- urtir og drykkjarjurtir svo fátt eitt sé nefnt. Harðviðar hefur yfirleitt verið aflað þannig í regnskóg- unum að stór hluti trjánna er felldur og það besta nýtt og ekkert hefur verið hirt um að planta trjám í stað þeirra sem falla. I Evrópu er harðviður mikið notaður í húsagerð, einkum í ytra timburverk, svo sem útihurðir og glugga- karma. Mýkra timbur sem fæst úr skógum í Evrópu og víðar, til dæmis fura og greni, endist einungis tíunda hluta þess tíma sem harðviður stenst fúa og veðrun. Nú hafa vaknað bjartar von- ir um að minnka megi ásókn í harðviðinn til mikilla muna. Það sem vekur þessar vonir er aðferð sem hollenskur máln- ingarframleiðandi datt niður á og með henni er kleift að gæða mjúkt timbur eiginleikum harðviðar. Hollendingarnir voru að leita leiða til að nota vatnsgrunn í málningu í stað lífræns grunns þegar þeir upp- götvuðu þessa nýju aðferð til að verja timbur. Rannsóknir þeirra beindust að því að blanda alkýðkvoðu og vatn en alkýðkvoða er mikið notuð í málningu. Kvoðan vildi illa ganga í eina lausn við vatnið en með því að beita blönduna af- aröflum mátti hræra kvoðuna í dropa sem voru ekki stærri en 400 nanómetrar í þvermál, sannkallaða ördropa. Örsmáar kvoðuagnirnar héldust í svif- lausn í vatninu og þannig varð til þykkni sem mátti nota sem hefðbundna málningu. Það sem kom á óvart og skiptir sköpum í þessu samhengi er að örsmáar kvoðuagnirnar smugu inn í viðinn og sköpuðu óvænt miklu öflugri varnar- hjúp gegn raka og fúa en búist hafði verið við. Skýring þessa er að sam- eindir alkýðkvoðunnar breyt- ast er þær þorna og þær mynda efnafræðileg víxltengi hver við aðra í viðnum. Með þessum hætti vaxa inni í viðnum sterk- ar og þolnar alkýðstórsam- eindir úr smáum alkýðsam- eindum. Ef þessi örkvoða er borin á kvistalausan, þurran mjúkvið, til dæmis furu, verð- ur hann jafn harður og þolinn og hitabeltisharðviður. Sá hængur er þó á þessu að al- kýðkvoðan er allt að sólarhring að ná fullri hörku. Hollendingarnir reyndu einn- ig að blanda saman alkýð- kvoðu og akrílkvoðu sem einn- ig er mikið notuð í málningar- Arlega eru ruddir 120 þús. ferkílómetrar af regnskógi. 54 ÞJÓÐLÍF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.