Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 55

Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 55
Vitaskuldir Nú er gerð jarðganga undir Ermarsund að ljúka en langt er síðan fyrst var ymprað á þessari fram- kvæmd. Um 1920 höfnuðu til að mynda breskir for- svarsmenn varnarmála því að ráðast í gerð ganganna. Þeir óttuðust innrás herja frá meginlandi Evrópu gegnum göngin. Sovéskir fræðimenn hafa lífgað salamöndru nokkra úr dái sem var innlyksa í ís og hafði sofíð þar í níutíu ár, segi og skrifa níutíu ár. (Þessi er nú með þeim ótrú- legri! Ætli þeir veki ekki loðfíl næst?) í júlí í sumar, nánar tiltekið þann 11. dag mánaðarins geta menn í Mexíkó og á Havaj (og aðrar skepnur jafnframt) fylgst með lengsta sólmyrkva á jörðu allt frá árinu 1973. Hann mun vara í heilar sjö mínút- Ósonþurrðin eykur tíðni krabbameins Á norðurhveli þynnist óson- lagið tvisvar til fimm sinnum hraðar en spáð hafði verið. Þynningin nær ennfremur lengra suður og er langærri en búist hafði verið við. Afleið- ing þessa er að mati banda- rísku umhverfisverndarstofn- unarinnar sú að miklu meiri fjöldi mun láta lífið vegna húðkrabbameins næstu hálfa öldina en verið hefur. Þessar óhugnanlegu upplýs- ingar eru niðurstöður tæpra 12 ára rannsókna á vegum Geim- rannsóknastofnunar Banda- ríkjanna. Þeir sem þar fara fremstir bera brigður á þær kenningar sem settar hafa verið fram um áhrif ýmissa efna á ósonlagið, bæði á suður- og norðurhveli jarðar. Ný gögn frá Geimrann- sóknastofnuninni sýna að veruleg rýrnun verður á óson- laginu norðan 30. breiddar- gráðu á vetrum og virðist sú rýrnun ná hámarki á 45. gráðu og nema um 8 % á áratug. Á þessu svæði er öll Evrópa, meginhluti Norður-Ameríku, Norður-Afríka og nær öll So- vétríkin. Samkvæmt gögnum Geim- rannsóknastofnunarinnar má gera ráð fyrir því að næstu fimmtíu árin muni greinast 12 milljónir húðkrabbameinstil- vika í stað hálfrar milljónar eins og áður var talið. Þetta mun hafa í för með sér dauða um 200 þúsunda manna en ekki um 9000 eins og eldri áætlanir gerðu ráð fyrir. Nú þykir brýnast að efla og flýta átaki sem beinist að því að finna efni sem ekki skaða ósonlagið og styrkja þá aðila sem vilja skipta út ósoneyð- andi efnum fyrir ósonkær. Ennfremur má benda á að jafn mikilvægt er að breyta hugar- fari fólks og árangursríkast væri án nokkurs vafa að breyta tískunni og koma því í hátísku að vera fölur og gugginn. Þá Aukin tíðni húðkrabbameins í kjölfar ósonþynningar. yrði gjörvöll íslenska þjóðin skyndilega eins og klippt út úr tískublöðum Parísarborgar og þyrfti ekkert að leggja á sig til þess að tolla í tískunni! iðnaði. Akrílið myndar ekki víxltengi líkt og alkýðið og það þornar því hraðar en er mun mýkra. Blanda þessara tveggja efna reyndist vel því hún þorn- aði nægilega hratt og myndaði nægilega þolna vörn. Frekari rannsóknir fara nú fram hjá Hollendingunum og beinast þær meðal annars að því að finna eins konar þurrkefni til að flýta þornun alkýðkvoð- unnar. Ef það tekst vel er ekki vafi á því að fura sem hlýtur slíka meðhöndlun getur orðið nægilega þolin til að hana megi nota í glugga og hurðir. Um leið hlýtur eftirspurn eftir harðviði að minnka og vonandi mun það verða hrjáðum og að- framkomnum regnskógunum til bjargar. Nikótíntyggjó virkar einungis ón kaffis Þeir sem hafa lagt sígarett- urnar á hilluna og tekið upp þann sið að tyggja nikótín- tyggjó ættu jafnframt að hætta allri kaffidrykkju. Ni- kótínið, hið eftirsótta og örv- andi eitur, frásogast um slím- húð munnsins. Við rannsóknir í Bandaríkj- unum uppgötvaðist að ef menn höfðu samtímis neytt kaffis eða kóladrykkja varð frásog nikótínsins lítið sem ekkert. Sú kenning hefur verið sett fram að sýrur í þessum drykkjum geri það að verkum að upptakan verði mun minni en ella. Ljóst þykir að aðrir súrir drykkir vinni jafnmikið gegn nikótínupptökunni en hins vegar er það meinhollt að drekka vatn með tyggjóinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.