Þjóðlíf - 01.05.1991, Page 57
Verður sjórinn
eldsneyti
framtíðarinnar?
I einu vetfangi blandast vetnisperoxíð og hýdró-
kínón og sérsmíðuð ensím framkalla ofursnöggt
efnahvarf. Hitinn stígur leifturhratt í 100° á sels-
íuskvarða. Þrýstingurinn vex óðfluga og skyndi-
lega spýtist baneitruð og sjóðheit blandan gegn
óvininum.
Þetta er ekki lýsing á eiturefnavopni frá Sadd-
am Hússein í Irak heldur er hér lýst varnaraðferð
hríðskotabjöllunnar (Brachinus crepitans) en
óhætt er að fullyrða að hún sé búin afar áhrifarík-
um búnaði til að stökkva á flótta óvinum, einkum
ýmsum smádýrum og fuglum. Það má með sanni
kalla hana Eitur-Pésa!
Það hefur lengi verið vitað að í afturbol sprengi-
bjöllunnar eru tveir kirtlar sem seyta ætandi
vökvum þegar mikið liggur við. Hvorir um sig
eru þessir vökvar tiltölulega meinlausir en þegar
þeir koma saman með réttum ensímum verður
gríðarlega magnað efnahvarf þar sem hiti stígur
upp úr öllu valdi. Þetta efnahvarf á sér stað í
útgangsrásum kirtlanna og þar blandast vökvinn
ensímunum. Rannsóknir við Cornellháskólann í
Bandaríkjunum hafa leitt það í ljós að þessi stæki
vessi skýst úr bol bjöllunnar í eiturbunum sem
eru allt að 500 á sekúndu.
Við rannsóknirnar voru notaðar myndavélar
sem taka allt að 4000 myndir á sekúndu og þær
hafa nú staðfest að vopnabúnaður hríðskotabjöll-
unnar tekur V 1 eldflaugum Þjóðverja í seinni
heimsstyrjöldinni langt fram. Þýsku eldflaugarn-
ar voru knúnar hreyfli þar sem 42 sprengingar
urðu á sekúndu. Að þessu leyti slær hríðskota-
bjallan öllum sjálfvirkum vopnum við.
Ellihrumur
alheimur
Þýskir fræðimenn telja að alheimurinn sé
tvöfalt eldri en álitið hefur verið fram til
þessa.
Hans Joachim Blome og samstarfsmenn
hans við Bonnháskóla halda því fram að
stjörnuþokur geti engan veginn myndast á
þeim 15 milljörðum ára sem flestir vísinda-
menn telja að sé liðinn frá því að alheimurinn
varð til. Þess í stað trúa þeir því að þessi magn-
þrungnu stjörnukerfi verði ekki til á skemmri
tíma en 30 milljörðum ára. Eins og Flosi sagði:
„svo lengist lærið sem lífið“.
Pinotex
VIÐARVÖRN
Grunnviðarvörn fyrir nýtt, óvarið
tréverk og einnig fyrir gamalt,
flagnað og uppþornað tréverk.
Berið ríkulega á þar til viðurinn
hættirað drekka í sig. Muniðað rétt
undirvinna tryggir endinguna.
PINOTEX BASE
Útsölustaðir
um land allt.
PINOTEX CLASSIC
Lítið þekjandi en áhrifarík
viðarvörn sem kallar fram æðar og
áferð viðarins. Frábært efni í 17
staðallitum auk hundraða litatóna
til viðbótar af Sadolin-litabarnum.
PINOTEX EXTRA
Hálfþekjandi viðarvörn sem endist
í mörg ár. Mikið þurrefnisinnihald
tryggir góða endingu. Áferð og
æðar viðarins njóta sín. 12 fallegir
staðallitir auk hundraða litatóna af
Sadolin-litabarnum.
PINOTEX SUPERDEC
Þekjandi acryl-viðarvörn.
Lyktarlaus og slettist ekki.
17 staðallitir auk hundraða litatóna.
Superdec má nota yfir allar aðrar
tegundir. Rétta efnið þegar breyta á
um lit, meira að segja úr svörtu i
hvítt.
PINOTEX
VERNDAR VIÐINN
OG GÓÐA SKAPIÐ!