Frjáls verslun - 01.08.2014, Page 140
140 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
Janne Sigurðsson, forstjóri Fjarðaáls:
ÞurFuM MEIRI FJÁrFEStiNgAr
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Á heildina á litið virðumst við á Íslandi
vera að vinna okkur hægt og rólega út úr
kreppunni og það er ánægjulegt að sjá
auknar fjárfestingar hér á landi.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Óttinn við erlenda fjárfestingu. Við þurfum
á þessu fjármagni að halda inn í landið,
við erum ekki nógu stór til að halda uppi
öflugu efnahagskerfi annars.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
Stöðugar umbætur, þátttaka starfsmanna
og opið og gegnsætt upplýsingaflæði.
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Nei.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu
sex mánuðum og/eða bæta við sig
starfsfólki?
Fjarðaál var mjög stór fjárfesting á ís
lensk an mælikvarða fyrir um átta árum.
Upphaflega fjárfestingin var á núvirði um
220 milljarðar króna en síðan þá hefur
fyrirtækið fjárfest enn frekar í starfsemi
Fjarðaáls fyrir 13 milljarða. Við munum
halda áfram að fjárfesta hér á landi, áætl
anir gera ráð fyrir um hálfun milljarði
næstu sex mánuði.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Ég ber mikla virðingu fyrir Hillary Clinton,
fyrrverandi utanríkisráðherra Banda ríkj
anna, og leið hennar til áhrifa hefur hrifið
mig mjög. Þar er á ferðinni kona sem
hefur tekist að skapa sér nafn í bandarískri
pólitík þrátt fyrir að hafa byrjað ferilinn
sem eiginkona forseta. Það var því á bratt
ann að sækja fyrir hana að vera ekki bara
álitin framlenging af eiginmanninum. Hún
er nú í annað sinn sterklega orðuð við
forsetaembættið og gæti mögulega orðið
fyrsti kvenforsetinn í sögu Bandaríkjanna.
Ég myndi kjósa hana!
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Þar sem ég er dönsk þá er ég ekki ókunnug
áfengi í matvörubúðum. Miðað við mína
reynslu frá Danmöku þá er ekki drukk ið
meira þar en hér á landi þrátt fyrir að áfengið
sé selt í búðum. Þannig að, já, mér finnst að
það mætti alveg selja áfengi í matvörubúðum
en það þarf þó að tryggja strangt eftirlit
til að auðvelda ekki ungmennum undir
áfengiskaupaaldri aðgang að áfengi.
„Óttinn við erlenda fjárfestingu.
Við þurfum á þessu fjármagni að
halda inn í landið, við erum ekki
nógu stór til að halda uppi öflugu
efnahagskerfi annars.“
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?
Janne Sigurðsson, fráfarandi forstjóri Fjarðaáls og verðandi framkvæmda stjóri tölvu
mála og upplýsingatækni hjá Alcoa international í Bandaríkjunum.