Frjáls verslun - 01.08.2014, Page 141
FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 014 141
Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls.
„Gjaldeyrishöft og hátt vaxtastig
miðað við nágrannalönd. Vaxta
stigið snertir lífskjör okkar allra,
gerir fyrirtækjum sem ekki hafa
beinan aðgang að erlendu láns
fjármagni erfitt fyrir og kemur
illa við heimilin í landinu.“
ragnar guðmundsson, forstjóri Norðuráls:
höFt og hÁtt VAxTASTIg
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Mikil gróska í ferðaþjónustu er eftir
tektar verð og markaðssetning Íslands sem
ákvörðunarstaðar allt árið um kring virðist
ganga vel.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Gjaldeyrishöft og hátt vaxtastig miðað við
nágrannalönd. Vaxtastigið snertir lífskjör
okkar allra, gerir fyrirtækjum sem ekki hafa
beinan aðgang að erlendu lánsfjármagni
erfitt fyrir og kemur illa við heimilin í
landinu.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
Heilindi, liðsheild og hagsýni eru þau þrjú
megingildi sem stjórnendur og starfsfólk
Norðuráls leggja áherslu á.
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Núverandi staða er afleiðing þess lokaða
kerfis sem við búum við, þar sem fjár
fest ingarkostir eru fáir. Mikilvægt er að
efla traust almennings á verðbréfum og
veita öllum skilvirkan og góðan aðgang
að fjárfestingum. Tímabundnir skatta
afslættir eru góð hvatning, en einnig má
greiða fyrir milliliðalausum aðgangi að
verðbréfamörkuðum.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu
sex mánuðum og/eða bæta við sig
starfsfólki?
Við erum stöðugt að fjárfesta í aukinni
framleiðslugetu og auknu virði afurða.
Starfsmenn eru um 600 og við gerum ráð
fyrir svipuðum fjölda næstu mánuði.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Það kemur enginn sérstakur upp í hugann,
en það má kannski nefna í þessu samhengi
að kærleiksboðskapur Jesú Krists er góður
grunnur fyrir lífið og hefur staðist tímans
tönn.
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Já, en auðvitað þarf þó að gæta að tak
mörk un á aðgangi ungmenna að áfengi eins
og gert er með tóbak.
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?