Frjáls verslun - 01.08.2014, Page 147
FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 014 147
Margrét Sanders, framkvæmdastjóri Deloitte.
„Gleymum því ekki að við, fólkið í landinu, erum eigendur lífeyris
sjóð anna – talandi um dreifða eignaraðild.“
Margrét Sanders, framkvæmdastjóri Deloitte:
Við EIgUM LíFEyriSSJóðiNA
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Aukinn fjölbreytileiki, mikil aukning í
ferða þjónustu og skapandi greinum. Bætt
afkoma og niðurgreiðsla skulda í sjávar
útvegi. Einnig boðaðar skatta breytingar.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Gjaldeyrishöft, litlar fjárfestingar, hátt
vaxtastig.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
Gott siðferði, virðing fyrir einstaklingnum
og kjarkur til ákvarðana og framkvæmda.
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Ekki verður hjá því komist vegna gjald
eyris hafta, en gleymum því ekki að við,
fólkið í landinu, erum eigendur lífeyris sjóð
anna – talandi um dreifða eignaraðild.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu
sex mánuðum og/eða bæta við sig
starfsfólki?
Við erum háð því hvernig viðskiptalífið er;
ef fjárfestingar aukast og kraftur kemur í
viðskiptalífið hefur það áhrif á okkur.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Ég gæti nefnt marga, í dag er mér efst í
huga Indra Nooyi, forstjóri PepsiCo.
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Ég trúi á frelsi og samkeppni. Hvernig ég
tel að breytingin eigi að vera í framkvæmd
er of langt mál að fara yfir hér.
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?