Frjáls verslun - 01.08.2014, Page 161
FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 014 161
„Smæð hagkerfisins og gjald
eyrishöft eru þeir allra alvar
legustu. Nátengt því er síðan
hversu lítið þarf út af að bera til
að verðbólgan fari af stað.“
Friðrik Pálsson, hótel rangá:
SMÁtt HAgKERFI í höFtuM
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Ég tel að það hafi tekist að halda haus í
þjónustu landsmanna við of hratt vaxandi
túrisma í landinu, en ljóst er að það hriktir
í innviðum ferðaþjónustunnar og ekki
þarf mikið út af að bera svo að upplifun
ferðamanna verði ekki nógu góð.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Smæð hagkerfisins og gjaldeyrishöft eru
þeir allra alvarlegustu. Nátengt því er
síðan hversu lítið þarf út af að bera til að
verðbólgan fari af stað. Stuttir kjara samn
ingar eru líka viðvarandi veikleiki.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
Hreinskiptni, jákvæðni og ábyrgð.
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Já, allt of áhrifamiklir, en á meðan gjald
eyrishöftin eru viðvarandi er ekki við öðru
að búast.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu
sex mánuðum og/eða bæta við sig starfs
fólki?
Það er alltaf einhver fjárfesting í gangi á
hverju ári og einhver fjölgun verður í starfs
fólki, en ekki stórvægileg.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Ekki endilega vegna stjórnkænsku, en
frumkvöðullinn Elan Musk hefur hrifið
mig fyrir að þora að fara ótroðnar slóðir og
koma af stað stórkostlegum nýjungum með
stofnun PayPal, hönnun nýrra eldflauga,
bjóða 100 ára hönnum bíla birginn og boða
byltingarkennda nýung í „járnbrauta“
samgöngum.
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Já.
Friðrik Pálsson, Hótel Rangá.
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?