Bæjarins besta - 22.12.2010, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2010
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Stakkanesi 1 · Ísafirði
Grundarstræti 3 · Súðavík
Súðavíkurhreppur
Ártorgi 1 · Sauðárkróki
Gleðileg jól!
Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs í Norðvesturkjördæmi óska íbúum
kjördæmisins og lesendum Bæjarins besta
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Við þökkum samstarfið og
stuðninginn á árinu sem er að líða.
Jón Bjarnason
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Ásmundur Einar Daðason
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir
Telma Magnúsdóttir
Skipaður hefur verið starfs-
hópur um nýtt byggðamerki fyrir
Ísafjarðarbæ. „Frá því að Ísa-
fjarðarbær var stofnaður hafa ver-
ið gerðar fjölmargar tilraunir til
að finna bænum eitt byggðamerki
án þess að þær tilraunir hafi borið
árangur. Í dag er byggðamerki
bæjarins samansett úr byggða-
merkjum fjögurra af átta f.v.
sveitarfélögum bæjarins,“ segir
í greinargerð með tillögu um að
slíkur starfshópur yrði skipaður
sem samþykkt var í nóvember.
Eftirtaldir einstaklingar skipa
starfshópinn: Guðrún M. Karls-
dóttir á Ísafirði, Sigríður Ó. Krist-
jánsdóttir í Hnífsdal, Eiríkur
Finnur Greipsson á Flateyri og
Sæmundur Kr. Þorvaldsson í
Dýrafirði. Bæjarráð fól Eiríki
Finni Greipssyni, sem jafnframt
er formaður ráðsins, að kalla hóp-
inn saman. – thelma@bb.is
Starfshópur um
byggðamerki
Ekkert banaslys var í umferð-
inni á Vestfjörðum á fyrstu níu
mánuðum ársins, að því er kemur
fram í tölum frá Umferðarstofu.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu
2003 sem ekkert banaslys er í
fjórðungnum á framangreindu
tímabili. Bílslysum á fyrstu níu
mánuðum ársins fækkað einnig
umtalsvert miðað við sama tíma
í fyrra. Á tímabilinu janúar-sept-
ember voru voru 74 bílslys en á
sama tíma í fyrra voru þau 98.
Talning slysa nær til ársins 2002
og hafa slysin hafa aldrei verið
jafn fá frá því að talningar hófust.
Flest slys voru árið 2003 eða
139 talsins á fyrstu níu mánuði
ársins, sem er nær tvöfalt fleiri
en á sama tímabili í ár. Fækkunin
nær fyrst og fremst til umferðar-
óhappa þar sem engin meiðsli
hlutust, en þau voru 57 í ár miðað
við 76 árið 2009. Slys með litlum
meiðslum eru nokkuð færri í ár
miðað við síðasta ár eða 11 í ár
en 17 í fyrra.
Alvarlegum bílslysum fjölgaði
hins vegar nokkuð milli ára en
þau voru sex talsins fyrstu níu
mánuði þessa árs en fjögur á
sama tíma í fyrra. Samtals slös-
uðust 19 einstaklingar í umferð-
arslysum á tímablinu janúar-sept-
ember í ár þar af sex alvarlega en
13 lítillega. Á sama tíma í fyrra
voru þeir 31 talsins, fimm alvar-
lega slasaðir en 26 lítillega. Fæst-
ir slösuðust hins vegar árið 2005
þegar tveir slösuðust alvarlega
og sex lítillega. – kte@bb.is
Bílslysum fækk-
ar á Vestfjörðum
74 bílslys voru á Vestfjörðum fyrstu níu mánuði ársins.