Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 2
Sjónvarpsstöðin Sky í
Bretlandi hefur tilkynnt
að ráðist verði í gerð
framhalds af spennuþátt-
unum Fortitude. Þeir voru
að mestu teknir upp á
Austurlandi og samkvæmt
frétt á vef RÚV er búist við
því að önnur þáttaröðin
verði sömuleiðis tekin
hér. Gengið hefur verið
frá ráðningu Björns Hlyns
Haraldssonar og fleiri
leikara í aðra þáttaröðina.
Framleiðslukostnaður
þáttanna hér á landi nam
1,2 milljörðum króna, sam-
kvæmt yfirliti Kvikmynda-
miðstöðvar Íslands. Síðasti
þáttur fyrstu þáttaraðar-
innar var sýndur í
Bretlandi í gærkvöldi en
þættirnir hafa undanfarið
verið sýndir á RÚV.
Guðrún Ágústa ráðin
til ASÍ
Guðrún Ágústa
Guðmunds-
dóttir hefur
verið ráðin
framkvæmda-
stjóri ASÍ.
Guðrún Ágústa
var bæjarstjóri
í Hafnarfjarðar
frá 2012 til
2014 og hafði setið í bæjarstjórn þar frá
2006. Undanfarið hefur hún starfað hjá
Strætó bs. Guðrún hefur störf hinn 1. maí
næstkomandi.
Malbikun frestað
vegna veðurs
Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur
fyrirhuguðum malbikunarframkvæmdum
í Hvalfjarðargöngunum um helgina verið
frestað. Ráðgert hafði verið að göngin
yrðu lokuð frá föstudagskvöldi og fram á
mánudagsmorgun en nú hefur fram-
kvæmdunum verið slegið á frest. Göngin
verða því opin um helgina.
Önnur þáttaröð af Fortitude tekin hér á landi
Kíló af dópi og
sjötugur með stera
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði
hald á tæpt kíló af sterkum fíkniefnum á
dögunum. Í fréttatilkynningu frá lögreglu
kemur fram að um var að ræða 650
grömm af amfetamíni og 250 grömm
af ecstasy (MDMA). Fimm húsleitir voru
framkvæmdar á höfuðborgarsvæðinu
vegna málsins, en auk fíkniefna var lagt
hald á fjármuni sem grunur leikur á að séu
tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Tveir karlar
voru handteknir vegna málsins. Þá lögðu
tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hald
á stera, bæði í vökvaformi og töfluformi,
hjá manni um sjötugt. Maðurinn var að
koma frá Taílandi með millilendingu í Osló.
Hann var sömuleiðis með á annað þúsund
skammta af lyfseðilsskyldum lyfjum.
BARA KLASSÍK.
STUNDUM VILL MAÐUR
ÞÁ ER TÍMI FYRIR
SÍGILT SÚKKULAÐI.
TÍMI FYRIR
F élagsmenn Bandalags háskólamenntaðra hittust á samstöðufundi við Lækjartorg í hádeginu í gær,
fimmtudag, og gengu fylktu liði upp í fjár
málaráðuneyti þar sem fjármálaráðherra
var afhent áskorun. BHM skorar á stjórn
völd að forgangsraða í þágu þekkingar og
að meta menntun til launa. Menntun sé for
senda framfara og hagsældar í landinu.
Mikil samstaða
„Fundurinn gekk mjög vel og sýndi vel að
það er sterkur hópur sem stendur á bak við
okkur og þá vinnu sem við erum að vinna,“
segir Páll Halldórsson, formaður BHM.
Páll segir fund samninganefndar ríkis
ins sem fram fór á miðvikudag ekki hafa
skilað miklu.
„Ríkið hafði ekkert fram að færa sem var
í áttina að lausn deilunnar. En eins og ég
hef alltaf sagt, þrátt fyrir að manni finnist
einstaka fundir ekki skila neinu, þá er auð
vitað alltaf betra að fólk sé að tala saman.
Þá eru menn allavega að vinna.“
3,5% hækkun ekki boðleg
Páll segir ríkið ekki vilja hvika frá 3,5%
hækkun. „Okkar grunnkrafa er sú að
menntun sé metin til launa á Íslandi.
Það hefur komið mjög skýrt fram að
það að leggja á sig nám er ekki að skila
sér í launum. Það er okkar grunnkrafa
að menntun sé metin til launa, það er
spurning hversu langt við komumst í því
en það sem ríkið býður erum við ekki
sátt við.“
Páll segir menn frekar horfa í pró
sentuhækkanir frekar en krónutölu
hækkanir, en aðrar lausnir, líkt og mögu
leg stytting vinnuvikunnar, geti komið
til greina. „Þetta eru allt saman hlutir
sem gætu komið fram sem lausn og þess
vegna er svo erfitt að nefna einhverja
prósentutölu. Lausnin getur verið svo
margþætt og misjöfn eftir því til hversu
langs tíma er samið.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Landsnet tengir lagningu jarðstengs yfir Sprengisand lagningu sæstrengst til Bretlands. Myndin
er frá aðalfundi Landsnets. Ljósmynd/Hreinn Magnússon
RaFoRka SæStRenguR til BRetlandS talinn aRðSamt veRkeFni
Jarðstrengur yfir Sprengisand mögulegur í tengslum við sæstreng
Eins og staða flutningskerfis
raforku hér á landi er nú koma
flutningstakmarkanir í veg
fyrir staðsetningu nýrra meðal
stórra fyrirtækja utan suð
vesturhluta landsins, nema
í Þingeyjarsýslum þar sem
aukin orkunotkun er möguleg
í samræmi við aukna orku
vinnsla á svæðinu. Þetta kom
fram á aðalfundi Landsnets í
gær, fimmtudag. Þeir valkostir
sem Landsnet horfir til vegna
uppbyggingar meginflutnings
kerfisins eru annars vegar
styrking byggðalínuhringsins
og hins vegar hálendisleið
þar sem loftlína alla leið, eða
loftlína með allt að 50 km jarð
streng, eru valkostir. Að mati
Landsnets er jarðstrengur með
jafnstraumstækni alla leið yfir
Sprengisand varla raunhæf
lausn nema í tengslum við sæ
streng til Evrópu.
„Að mati flestra er sæ
strengur til Bretlands arðsamt
verkefni enda er arðsemi for
senda fyrir því að lagt yrði í
slíka framkvæmd,“ segir enn
fremur. „Sæstrengur væri líka
hagkvæm leið að mati Lands
nets til að tryggja orkuöryggi á
Íslandi. Orkuöryggi, sem leyst
er eingöngu með uppbygg
ingu íslenskra orkuvera, er að
jafnaði mjög kostnaðarsamt
fyrir samfélagið. Sæstrengur
myndi jafnframt skapa markað
fyrir orku sem ekki selst innan
lands og væri því arðsamur
fyrir orkuframleiðendur sem
myndu tengjast markaði sem
borgar hærra raforkuverð. Sæ
strengurinn myndi hins vegar
líka auka þörfina á flutnings
mannvirkjum og leiða til hærra
orkuverðs á Íslandi.“ jh
SamStöðuFunduR veRkFall BandalagS háSkólamenntaðRa
Erfitt að nefna ákveðna
prósentuhækkun
Allsherjarverkfall 17 aðildarfélaga Bandalags háskólamenntaðra, BHM, sem telja um 3000 manns,
var sett klukkan 12 í gær, fimmtudaginn 9. apríl og stóð yfir í fjóra tíma. Páll Halldórsson, for-
maður BHM, segir menntun á Íslandi ekki vera metna til launa og að 3,5% hækkun sé ekki boðleg.
Hann segir erfitt að nefna ákveðna prósentuhækkun því samningar geti verið margþættir.
Það var mikill hugur í fólki á samstöðufundi félagsmanna BHM á Lækjartorgi í gær, fimmtudag. 3000 félagsmenn lögðu niður
störf frá klukkan 12 til 16. Alls lögðu 566 félagsmenn BHM niður störf á miðvikudag og dróst starfsemi Landspítalans saman um
hátt í helming vegna verkfalls félagsmanna á sjúkrastofnunum í landinu. Ljósmynd/Hari
Fundurinn
gekk mjög
vel og sýndi
vel að það
er sterkur
hópur sem
stendur
á bak við
okkur.
2 fréttir Helgin 10.-12. apríl 2015