Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 28
Þ að var kafarinn Pálmi Dun-gal sem fann fyrsta grjót-krabbann við Ísland árið
2006. Hann var að kafa í Hval-
firði þar sem hann var að skoða og
mynda íslenska krabba þegar hann
rakst á einn sem var mun stærri
en hinir krabbarnir,“ segir Halldór
Pálmar Halldórsson, sjávarlíffræð-
ingur og forstöðumaður rannsókn-
arseturs Háskóla Íslands á Suður-
nesjum. Pálmi náði krabbanum og
fór með hann upp í Háskóla Íslands
þar sem Halldór Pálmar staðfesti að
þessi stóri krabbi væri grjótkrabbi.
„Við vorum frekar hissa og auðvi-
tað mjög spennt. Þessi tegund kem-
ur frá Norður-Ameríku og hefur
hvergi verið annars staðar í heim-
inum þannig að þetta er í fyrsta
skipti sem hann finnst í Evrópu.
Hann hefur að öllum líkindum kom-
ið hingað með kjölfestuvatni skipa,
sennilega á lirfustigi. Það er þekkt
að krabbarnir þola langan flutning
sem pínulitlar lirfur sem ná sér svo
á strik í nýju umhverfi. Hann hefur
væntanlega komið í gusum í nokkuð
mörg ár en ekki náð sér á strik fyrr
en núna því sjórinn hefur hlýnað
síðstu ár.“
Dreifir sér hratt um landið
Halldór og nemendur hans fóru
strax af stað með ýmis verkefni
tengd krabbanum. „Við fórum að
prófa að veiða hann í gildrur í Hval-
firði og að fylgjast með útbreiðsl-
unni. Hann hefur dreift sér frekar
hratt og er núna meðfram Reykja-
nesinu, í Hvalfirði, Breiðafirði, á
Vestfjörðum og Skagafirði og núna
síðast fékk ég spurnir af honum í
Eyjafirði,“ segir Halldór sem er
orðinn hálfgerður umsjónarmaður
þessa nýja landnema og vanur því
að fólk hringi í hann þegar það þyk-
ist sjá grjótkrabba. „Við höfum fyrst
og fremst verið að huga að áhrifum
krabbans á aðrar lífverur. Það er
Grjótkrabbinn
er nýjasti land-
nemi Íslands
Grjótkrabbinn sást fyrst við Íslandsstrendur árið 2006 í Hvalfirði.
Hann hefur sennilega borist hingað áður með skipum en ekki náð
sér á strik fyrr en síðustu ár vegna hlýnunar sjávar. Útbreiðsla
hans er frekar hröð en ekki er hægt að segja til um hvaða áhrif
þessi nýi landnemi muni hafa á vistkerfið við strendur Íslands.
En víst er að hann er kjötmikill og bragðgóður og því líklegt að
útbreiðsla hans verði hröð í íslenskum eldhúsum.
Grjótkrabbinn er veiddur í umtalsverðu magni í Kanada og austanverðum Bandaríkjunum. Upphaflega var grjótkrabb-
inn þó aðeins meðafli á humarveiðum og nýttur sem beita eða sleppt aftur í sjóinn. Frá árinu 1974 hafa verið stundaðar
atvinnuveiðar á honum.
ómögulegt að segja hvað framandi
lífverur, sem koma af mannavöldum
inn í vistkerfi, eiga eftir að hafa á
vistkerfið hér. En hann gæti haft
mögulega áhrif á bogkrabbann og
trjónukrabbann, þær íslensku teg-
undir sem eru á sama svæði. Þetta
erum við að rannsaka núna.“ Hall-
dór segir það einstakt tækifæri að
geta fylgst með slíku landnámi frá
upphafi og að áhugi nemenda hafi
verið mikill. Í júní mun Óskar Sindri
Gíslason verja doktorsverkefni sitt
um landnám grjótkrabbans.
Ljúffengur herramannsmatur
Gjótkrabbinn er talinn vera herra-
mannsmatur í Bandaríkjunum þar
sem neysla hans er mjög útbreidd.
Nú þegar hafa nokkrir aðilar próf-
að sig áfram með veiðar og neyslu
krabbans og nokkur veitingahús
borgarinnar eru farin að matreiða
þennan nýjasta landnema Íslands.
„Þetta er þekkt nytjategund í Amer-
íku og ein af þeim krabbategundum
sem er borðuð hvað mest, en þetta
er í fyrsta sinn sem er grundvöllur
fyrir krabbaveiðum á Íslandi. Þegar
hann er orðinn í stærra kantinum,
svona 15 cm í skjaldarbreidd, þá er
töluvert mikið kjöt á honum og hann
er mjög ljúffengur.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Grjótkrabbi (Cancer irroratus) er nokkuð stórvaxinn krabbi sem fannst fyrst hér við land árið 2006. Náttúruleg heimkynni
krabbans eru við austurströnd Norður-Ameríku. Ísland er eini þekkti fundarstaður krabbans í Evrópu til þessa, en talið er
líklegast að tegundin hafi borist hingað til lands á lirfustigi í kjölfestuvatni skipa.
Halldór Pálmar Halldórsson sjávarlíffræðingur hefur fylgst með grjótkrabbanum frá því
hann sást hér fyrst árið 2006. Hér er hann ásamt nemanda sínum, Óskari Sindra Gíslasyni,
sem mun verja doktorsverkefni sitt um landnám grjótkrabbans í sumar. Ljósmynd/Hari
stílhreinar og
vandaðar
uppþvottavélar
frá
108.800 kr
OM60-37TRF
88.800 kr
OM60-07X
mjöghljóðlát
28 viðtal Helgin 10.-12. apríl 2015