Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 18
Vilhjálms minnst á tónleikum É g ákvað að hafa móttöku fyrir fjölskyldu Vilhjálms, vini og samstarfsmenn í Hörpu á milli tónleikanna,“ segir Friðrik en tónleikarnir verða tvennir í Eldborg á laugardag. „Þetta er í kringum 50 manns og mér finnst það við hæfi. Villi Vill er einn besti söngvari sem þjóðin hefur átt og lögin hans hafa lifað með þjóðinni í næst- um hálfa öld,“ segir Friðrik sem stendur einnig í allri fram- kvæmd tónleikanna. „Það gengur vel og það er að mörgu að huga,“ segir Friðrik. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég framleiði svona sýningu þar sem ég leiði prógrammið um leið á sviðinu. Umfangið við svona tón- leika hefur breyst svo mikið og aukist síðan ég byrjaði að gera þetta. Sem betur fer er þetta pró- gram eitthvað sem ég kann aftur á bak og áfram,“ segir Friðrik. Umgjörðin skiptir máli Friðrik hefur undanfarin 4 ár haldið fjölmargar tónleikasýn- ingar, eins og hann kallar þær, í stærstu húsum landsins, í nafni fyrirtækis síns, RIGG, og alltaf er fullt. Hann er metn- aðarfullur og hefur tekið þessa tegund tónleika upp á annað plan, að mörgum finnst. „Fyrsta sýningin sem ég setti upp var George Michael sýning sem ég setti upp á Broadway árið 2007 og síðan hefur þetta vaxið og stækkað jafnt og þétt,“ segir Friðrik. „Ég ætlaði aldrei að fara út í það að halda tónleika, sérstaklega ekki tónleika sem ég var ekki að syngja á sjálfur. Þegar ég var krakki þá var ég alltaf að setja upp sýningar með vinahópnum,“ segir hann. „Öll umgjörð vakti alltaf rosalegan áhuga hjá mér. Umgjörð skiptir miklu máli og núna legg ég mikið upp úr því. Það hefur verið tekið eftir því og fólk er að sjá að þetta virkar. Nú eru aðrir tónleikahaldarar búnir að sjá að þetta skiptir máli og ég Á morgun, laugardaginn 11. apríl, verða 70 ár því að Vil- hjálmur Hólmar Vilhjálmsson fæddist í Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjum. Fólk man ljúfa tenórrödd þessa ástsæla dægurlagasöngvara og það sem meira er, ungt fólk sem fætt er löngu eftir fráfall Vilhjálms dáir lögin sem hann gerði að sínum með persónu- legum og áreynslulausum söngstíl. Vilhjálmur ætlaði aldrei að verða dægurlagasöngvari. Stefnan var sett á há- skólanám. En enginn má sköpum renna. Fyrstu skrefin á söngbrautinni voru stigin í Menntaskólanum á Akureyri. Síðan tóku við sigrar með hljómsveitum Ingimars Eydals og Magnúsar Ingimarssonar. Þá urðu plöturnar vinsælar sem Vilhjálmur söng inn á ýmist einn eða með Elly, systur sinni. Mörg lög lifa enn í minningunni hátt í fimmtíu árum eftir að þau komu út, svo sem Lítill drengur, Við eigum samleið og Bíddu pabbi, svo að örfá séu nefnd. Tónleikarnir verða á eftir- töldum stöðum; 11. apríl í Eld- borgarsal Hörpu í Reykjavík, 17. apríl í Íþróttahúsinu Nes- kaupstað og 18. apríl í Menn- ingarhúsinu Hofi á Akureyri. Finnur sig í nýju hlutverki eftir 20 ár í bransanum Um helgina er það haldið hátíðlegt með tvennum stórtónleikum í Eldborgarsal Hörpu að 70 ár eru liðin frá fæðingu Vilhjálms Vilhjálmssonar. Skipuleggjandi tónleikanna er söngvarinn Friðrik Ómar Hjörleifsson, sem hefur undanfarin ár skipulagt fjölmarga tónleika sem notið hafa gríðarlegra vinsælda. Hann segir skipulagningu og fram- kvæmd tónleikasýninga af þessu tagi vera mikla, en passar þó upp á að hlutverk sitt sem söngvara gleymist ekki. Fjölskylda Vilhjálms mun verða viðstödd tónleikana og segist Friðrik aldrei hafa ráðist í þetta verkefni án samþykkis hennar. Friðrik Ómar Hjörleifsson: Menn eru duglegir að tala þetta niður en eru fyrstir á vagninn ef þeim er boðið. Ljósmynd/Hari þarf að hafa mig allan við, til þess að halda dampi,“ segir Friðrik. „Þetta er svo lítið land. Það er bara hægt að gera hvert „show“ tvisvar eða þrisvar, við erum bara ekki fleiri en það,“ segir Friðrik. „Þetta fer ekkert að ganga upp fjárhags- lega fyrr en eftir tvö til þrjú skipti. Maður er búinn að setja standard- inn mjög hátt, sem er kostnaðar- samt en mér finnst ég verða að gera það,“ segir Friðrik. „Ég hugsa að ef maður gerir eitthvað alveg ógeðslega flott, þá getur maður gert það oftar. Ef maður nær fólki þá vill það koma aftur. Það verður að fara alla leið,“ segir Friðrik. „Ég hef alveg tapað á verkefnum líka, en ástríðan er ennþá til staðar.“ Egóið sett til hliðar Verður söngvarinn aldrei útundan? „Mér finnst bæði hlutverk jafn skemmtileg,“ segir Friðrik. „Ég man að ég setti upp eina sýningu í fyrra þar sem ég var bara að sjá um tæknimál og ég naut mín í botn. Þegar maður er að gera hvort tveggja þá er það sjúklega erfitt,“ segir Friðrik. „Nú er ég búinn að ráða minn fyrsta starfsmann í fulla stöðu og það hjálpar mikið.“ Geturðu gefið frá þér verkefni í ferlinu? „Já, ég á mjög auðvelt með það. Það eru margir hlutir sem ég vil ekki skipta mér af og þá er gott að hafa mann sem maður treystir 100% og getur látið sjá um,“ segir Friðrik. „Svo er ég líka alltaf með ákveðinn hóp sem vinnur að þess- um sýningum, sem sparar mikinn tíma,“ segir hann. Friðrik hefur farið mikinn í tónleikahaldi að undanförnu og skiljanlega eru margir um hituna í litlu samfélagi. Hann segir marga innan bransans hafa fordóma fyrir þessari tegund tónleika, eða tónleikasýninga eins og hann hefur kallað þær. „Hver er munurinn á að setja upp Mary Poppins eða spila tónlist eftir Mozart? Ég myndi vilja að ein- hver líking kæmi fram sem fengi fólk til að hugsa hver munurinn er. Mér finnst ég hafa náð að sérhæfa mig í því sem ég kalla tónleikasýn- ingu, sem er orð sem var ekki til og aðrir eru farnir að nota líka,“ segir Friðrik. „Auðvitað er sam- keppni en mér finnst hún góð. Hún heldur mér á tánum en ég verð ekki áhyggjufullur. Ég hef engar áhyggjur af því að ég standi mig ekki í samkeppninni. Ég hef lært það að ég þarf oft að segja erfiða hluti við fólk sem ég hef unnið með í mörg ár, en fólk skilur mig,“ segir Friðrik. „Ég er ekki gamall í hettunni þó það séu um 20 ár síðan ég fékk fyrst greitt fyrir framkomu. Margir hefðu haldið að maður hefði það stórt egó, að maður gæti ekki ráðið aðra söngvara í vinnu,“ segir Frið- rik. „Hvað þá að láta þá fá meiri athygli en maður sjálfur. Í mínum sýningum er engin fyrirfram stjarna á sviðinu. Það fá allir það hlutverk sem hentar þeim. Ég hef ráðið söngvara til þess að syngja lög sem mig hefur dreymt um að syngja, af því að ég veit að það hent- ar þeim betur. Þannig nær maður því besta fram í hverri sýningu. Ég hef sett egóið mitt alveg til hliðar í mínum sýningum. Það er styrkur sýninganna,“ segir Friðrik. „Ég hef líka fundið fyrir því á undanförnum árum að ég er ekki ráðinn í þær sýningar sem aðrir eru að halda,“ segir Friðrik. „Það er bara vegna samkeppninnar. Það er bara allt í góðu og eitthvað sem þeir verða bara að eiga við sig.“ Þriggja ára plan Í dag er komin hefð fyrir heiðurs- tónleikasýningum á Íslandi og segir Friðrik hættu á því að bólan springi. „Ég finn fyrir því að maður þarf að hafa meira fyrir hverju verkefni, og það er ekkert skrýtið. Fólk hefur minna á milli hand- anna,“ segir hann. „Mitt miða- verð er þó yfirleitt lægra en hjá öðrum. Ég held samt alltaf áfram og er með plan fyrir þrjú ár fram í tímann. „Þessi tegund sýninga er alltaf að fá meiri viðurkenningu þó það séu alltaf einhverjir sem hafa mikið út á þetta að setja,“ segir hann. „Fólk er að leggja mikið á sig og það er mikill metnaður í gangi og þeir sem standa að þessu mættu fá meiri viðurkenningu. Þessar sýningar eru stór partur af dagskrá Hörpu. Neikvæðu raddirnar eru samt alltaf úr tónlistarbransanum sjálfum, en um leið og mönnum er boðið að vera með þá stökkva þeir á vagninn. Menn passa sig samt á því að þegja þegar vel gengur,“ segir Friðrik Ómar. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Verð í tveggja manna herbergi kr. 98.900,- Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat, íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli. Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda. Upplýsingar í síma 588 8900 Úrval veitingahúsa, verslana (m.a. H&M) og kafhúsa. Næturlíf eins og það gerist best. Riga Lettlandi Stórfengleg borg Beint ug frá Keflavík og Akureyri 14.-17. maí 18 viðtal Helgin 10.-12. apríl 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.