Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 36
3. Graskersfræ
Graskersfræ eru ekki bara bragðgóð,
heldur líka stútfull af gagnlegum efnum
svo sem B- og E- vítamínum, sinki, járni og
próteini. Víða eru þau rómuð fyrir að auka
karlmennskuna, en sink stuðlar að aukinni
hormónaframleiðslu hjá karlmönnum.
4. Granateplafræ
Granatepli hljóma ef til vill framandi í
eyrum sumra en fræin úr þeim eru stútfull
af andoxunarefnum. Granatepli innihalda
einnig C-vítamín, trefjar og kalíum, en það
er hjálpar til við að halda taugakerfinu
heilbrigðu og viðheldur reglulegum hjart-
slætti.
5. Chia fræ
Chia fræ tróna á toppi fræ-vinsældalistans
um þessar mundir og það er rík ástæða
fyrir því. Þau inni-
halda meðal
annars
trefjar,
prótein
og omega-3 fitusýrur. Þegar chia fræ eru
lögð í bleyti í ákveðinn tíma fá þau gel-
kennda áferð og eru því iðulega notuð í
alls konar grauta og til þykkingar í súpur
og þeytinga. Chia fræ eru einnig tilvalin í
bakstur.
6. Sesamfræ
Sesamfræ eiga ekki einungis heima ofan
á hamborgarabrauðum, síður en svo. Þau
innihalda mikilvæg steinefni, kalsíum og
B-vítamín. Sesamfræ innihalda tvenns
konar kjarna, sesamin
og sesamolin,
og hafa rann-
sóknir sýnt
að þessi efni
hafa lækk-
andi áhrif
á kólestról-
magn í blóði.
7. Hampfræ
Hampfræ innihalda mikið magn af amínó-
sýrum sem líkaminn framleiðir ekki sjálfur
og hjálpa til við að byggja upp prótein.
Hampfræin er auk þess ákaflega prótein-
rík, en í 100 grömmum eru 30 grömm af
próteini. Hampfræ eru einnig rík af trefjum
og omega-3 og omega-6 fitusýrum.
Hampolía til inntöku hefur einnig reynst
vel gegn alls konar húðvandamálum.
8. Hörfræ
Hörfræ eru sneisafull af trefjum,
omega-3 fitusýrum, vítamínum
og steinefnum og hafa auk þess
bólgueyðandi áhrif. Mikilvægt er að
mylja hörfræ áður en þeirra er neytt því
líkaminn getur ekki melt heil hörfræ. Hægt
er að kaupa mulin hörfræ en mun ódýrara
er að kaupa heil fræ og mylja þau í
blandara. Hörfræ
innihalda
mikið af
hollri fitu
og því skal
geyma þau
í ísskáp til
að koma í veg
fyrir að fitan þráni.
9. Kúmenfræ
Kúmen er ef til vill þekktara sem krydd
en fræ, en kúmenfræ eru einnig notuð
í matargerð til bragðbætingar. Ásamt
því að
bragðast
vel eru
kúmenfræ
full af járni
og hafa
góð áhrif á
melt-
inguna.
10. Sinnepsfræ
Fræ og korn innihalda mikið af lífsnauð-
synlegum ensímum, en sum þeirra eru í
nokkurskonar dvala í þurrum fræjum. Til
að ná sem flestum næringarefnunum úr
sinnepsfræjum er gott að láta þau liggja
í bleyti í 4-6 klukkutíma. Spírunartíminn
tekur svo 4-5 daga. Sinnepsfræ eru afar
bragðgóð og innihalda mikið af A- og C-
vítamíni, ásamt steinefnum og sinnepsolíu.
Spíruð sinnepsfræ gefa gott piparbragð.
J ónína Ben hefur starfað í heilsu- og líkamsræktargeir-anum í yfir 30 ár og hefur um
árabil boðið upp á detox-meðferðir í
Póllandi sem hlotið hafa góðar und-
irtektir. Nú býður hún upp á nýjar
tímasetningar fyrir sumarið.
Heilsan í fyrsta sæti
Næsta námskeið hefst 24. maí og
stendur til 7. júní. Heilsumeðferðin
fer fram á Hótel Elf sem er staðsett
nálægt hafnarborginni Gdansk.
„Í sumar mun ég svo bjóða upp á
heilsumeðferðir frá 15. júlí til 19.
september,“ segir Jónína, en hún
mælir með því að hefja meðferðina
á laugardegi en aðrir dagar koma
líka til greina sé flugið hagstæðara
og herbergi laus. Viðskiptavinir sjá
sjálfir um að bóka flug til Gdansk.
Hægt er að bóka í síma 505-0300 eða
á netinu. Jónína mælir með að fljúga
til Kaupmannahafnar og þaðan með
SAS til Gdansk.
Þétt og skemmtileg dagskrá
Verð fyrir tvær vikur er 190.000
krónur, 120.000 krónur fyrir eina
viku og 90.000 krónur fyrir eina
helgi (3 nætur). Innifalið er fullt fæði
og fræðsla, sem og þétt dagskrá, svo
sem gönguferðir, leikfimi og spa.
„Ég mun einnig bjóða upp á einka-
viðtöl við lækni og mig sjálfa,“ segir
Jónína. Leigubílaakstur frá flugvelli
er ekki innifalinn. Um 50 mínútna
akstur er frá flugvellinum og kostar
ferðin 5000 krónur ef miðað er við
einn farþega.
Dekur og skoðunarferðir
Á Hótel Elf er einstakt spa þar sem
boðið er upp á fjölbreytt nudd og
snyrtingar og greiða viðskiptavin-
ir sjálfir fyrir það, en hver nudd-
tími kostar um það bil 3500 krónur.
Einnig verður boðið upp á magn-
aðar kynnisferðir til Gdansk og So-
pot með frábærum leiðsögumanni í
heilan dag og kostar ferðin 13.000
krónur. Jónína tekur glöð á móti
hverjum og einum og mælir hún
með tveggja vikna Detoxföstu til
þess að ná hámarks árangri. „Það
eru allir velkomnir. Offitusjúk-
lingar fá til að mynda mikla aðstoð
við að vinda ofan af þeim sjúkdómi
og ég er einnig vön að vinna með
unglingum, 14 ára og eldri,“ segir
Jónína.
Bókanir fara fram með tölvu-
pósti: joninaben@joninaben.is
eða á facebook: Detox Jonina Ben.
Einnig er hægt að hafa samband í
síma 822-4844.
Unnið í samstarfi við
Nordic Health
heilsa Helgin 10.-12. apríl 201536
Jónína Ben býður
upp á heilsumeð-
ferðir í einstöku
umhverfi í Póllandi
í sumar.
Jónína Ben býður upp á einstakar heilsumeðferðir í Póllandi í sumar
Heilsumeðferðir
Jónínu Ben
í Póllandi
Heilsumeðferðir
Jónínu Ben í
Póllandi:
24. maí - 7.júní
Nokkur herbergi laus
15. júlí - 19. sept.
Mögulegt er að bóka
eina helgi, eina viku
eða tvær vikur í senn.
Sjáumst í formi!
1. Sólblómafræ
Sólblómafræ hafa þann kost að næra
allan líkamann. Þau eru rík af auðmeltu
próteini sem er nauðsynlegt fyrir vefi,
taugar og frumur. Sólblómafræ innihalda
einnig andoxunarefni, D-, K- og E-vítamín.
Sólblómafræ eru laus við allt kólestról og
eru afar lág í mettaðri fitu sem gerir þau
fullkomin fyrir hjarta- og æðakerfið.
2. Hveitikím
Hveitikím er afar próteintíkt. Í hverjum
100 grömmum eru 27 grömm af próteini.
Hveitikím inniheldur alls 23 næringarefni,
þar á meðal járn, B-vítamín og trefjar.
Hveitikím er hægt að kaupa bæði þurrkað
og ferskt. Þurrkað hveitikím er dökkbrúnt
en það ferska er ljóst og er alltaf geymt í
kæli í þeim verslunum þar sem það fæst.
Alltaf ætti að geyma hveitikím í kæli eftir
að pakkinn hefur verið opnaður, þetta á
líka við um þurrkað hveitikím.
10 frætegundir
sem þú ættir að
borða meira af
Fræ eru meinholl og góð uppspretta ýmissa næringarefna, svo
sem hollrar fitu, vítamína og steinefna. Fræ eru sjaldan álitin sem
meginuppistaða máltíðar en vinsældir ýmissa fræja, til dæmis chia
fræja, sýna að fræ ein og sér geta verið góð og mettandi. Hér má
sjá tíu tegundir fræja sem við mættum gjarnan borða meira af.