Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 41
heilsaHelgin 10.-12. apríl 2015 41
Heilsusamlegi
kaupmaðurinn
á horninu
Verslunin Góð heilsa við Njálsgötu hefur verið starfrækt á sama
stað í sextán ár. Góð heilsa býður upp á eitt mesta úrval fæðu-
bótarefna á landinu og sérhæfir sig meðal annars í vörum fyrir
grænmetisætur.
V ið sérhæfum okkur í að þjónusta grænmetisætur, vegan og aðra sem þurfa
sérvörur á borð við glúteinlausar
eða mjólkurlausar vörur,“ segir
Sverrir Tryggvason, starfsmaður
hjá Góðri heilsu. Hann sér um rekst-
urinn ásamt bróður sínum, Ólafi, og
er Góð heilsa sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki, en auk bræðranna starfa
tveir starfsmenn í versluninni. „Við
erum líklega eins konar kaupmenn
á horninu. Hingað koma margir
góðir fastakúnnar sem hafa góða
reynslu af hinum ýmsu fæðubótar-
efnum sem við bjóðum upp á,“ segir
Sverrir.
Yfir 1000 mismunandi jurtir
„Við erum stolt að bjóða upp á eitt
mesta úrval fæðubótarefna á land-
inu, þar sem bestu mögulegu gæði
og frábær verð fara saman. Fimm-
tán ára reynsla í innflutningi og sölu
fæðubótarefna skilar sér beint til
viðskiptavina okkar,“ segir Sverrir.
Meðal vara sem boðið er upp á er
fjöldinn allur af vítamínum, bæti-
efnum, grænfæði, jurtum, vegan
vörum og snyrtivörum. „Við erum
með hátt í 1000 mismunandi jurtir
og bætiefni. Þetta eru vörur sem
þú færð ekki annars staðar og við
leggjum áherslu á að veita við-
skiptavinum okkar persónulega
þjónustu.“ Sverrir segir jafnframt
að auðvitað séu skiptar skoðanir um
það hvaða jurtir og bætiefni virka
og hvað ekki en í verslunina kemur
góður hópur fastakúnna sem hefur
jákvæða reynslu af ýmsum jurtum
og bætiefnum.
Meltingargerlar mest selda
varan
Ein mest selda varan síðustu tvö
árin hjá Góðri heilsu er Dr. Steph-
en Langer´s gerlaformúlan frá
heilsuvöruframleiðandanum Swan-
son. Allar vörur frá Swanson fara í
gegnum strangt gæðaferli og ábyrg-
ist framleiðandinn öll innihaldsefni
Sverrir Tryggvason stendur vaktina í Góðri heilsu á Njálsgötunni, en þar má meðal annars
finna eitt mesta úrval fæðubótarefna á landinu.
vara sinna. Dr. Stephen Langer´s
gerlaformúlan inniheldur 16 mis-
munandi tegundir af vinveittum
probiotic gerlum, meðal annars AB
gerlum. Formúlan inniheldur einnig
FOS sem er næring fyrir gerlana og
steinefnablöndu sem bætir melting-
una og viðheldur heilbrigðri þarmaf-
lóru. Gerlarnir koma í trefjahylkjum
sem eru laus við gelatín. Þetta er því
góður kostur fyrir grænmetisætur.
Gerlarnir eru á mjög góðu verði, en
tveggja mánaða skammtur kostar
jafn mikið og mánaðarskammtur af
sambærilegum vörum. „Ef það er
ójafnvægi í meltingunni eru líkur á
að ójafnvægi sé í öðrum hlutum lík-
amans. Það er því gríðarlega mikil-
vægt að koma meltingunni í lag,“
segir Sverrir.
Góð heilsa er við Njálsgötu 1
í Reykjavík, en gengið er inn frá
Klapparstíg. Opið er alla virka daga
milli klukkan 10 og 18 og á laugar-
dögum frá klukkan 11 til 17.
Unnið í samstarfi við
Góða heilsu.
Rau
ðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 109.990
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 137.489
Meira en bara
blandari!
Inner Cleanse
15 daga hreinsun
Inner Cleanse hefur góð áhrif á heilsuna og hjálpar líkamanum
að losa sig við aukaefni á náttúrulegan og áhrifaríkan hátt.
Vatnslosandi, bætir meltingu, stútfullt af vítamínum.
Kemur í staðinn fyrir fjölvítamín.
Fæst í apótekum
Nánar á vitamin.is
facebook.com/vitamin.is