Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 50
50 matur & vín Helgin 10.-12. apríl 2015
T eriyakisósa virkar líka með nokkurn veginn því sem hægt er að ímynda sér.
Fiskur og kjúklingur eru kannski
það sem við tengjum helst við sós-
una góðu. En þeir sem vilja prófa
sig áfram með framandi útgáfur af
þekktum vestrænum mat ættu að
prófa teriyakihamborgara. Annað
hvort með því að blanda sósunni
beint út í hakkið og móta svo borg-
arana eða gljá hann á meðan steik-
ingu stendur. Þeir hörðustu ganga
jafnvel svo langt að brúka báðar
aðferðir. Toppa hann svo með ein-
hverju gúmmelaði eins og steikt-
um sveppum og rauðlauk. Kóróna
svo jafnvel verkið með góðum hvít-
mygluosti. Um að gera að prófa sig
áfram.
Steikt grænfóður fer upp um
margar hæðir með smá teriya-
kigljáa og svo auðvitað hrísgrjón.
Það að steikja nokkrar rækjur og
vorlauk saman við dagsgömul hrís-
grjón er alger himnasæla og þeir
sem vilja lifa á nöfinni bæta bauna-
spírum við herlegheitin.
Næsta hæð
Þótt það sé auðveldast og líka fjandi
freistandi að kaupa allt tilbúið úr
búðinni er skrambi gaman líka
að bauka suma hluti á eldavélinni
heima. Sojasósa er aðalinnihaldið í
teriyakisósu og það er ekki svo ein-
falt að búa hana til. Reyndar alveg
súper flókið þannig að við sleppum
því að gerja sojabaunir að sinni og
kaupum hana.
Þá er bara að finna út hvers konar
teriyakisósu á að brugga. Eins og
fyrr segir notast Japanir svo aðal-
lega við sæt hrísgrjónavín og sykur
eða hunang í sína. Fæstir eiga þó
sake eða mirinvín svona í búrskápn-
um. En það er líka í fínu lagi því við
hérna á vesturhveli jarðarkringlunn-
ar skellum bara engifer og hvítlauk
út í pottinn í staðinn. Langt frá því
ekta en afar bragðgott og ljómandi
teriyakilegt.
Hellum sirka einum desilítra
af sæmilegustu sojasósu í pott og
þynnum með sirka hálfum af vatni.
Rúllum góðri matskeið af púður-
sykri eða hunangi út í og toppum
það með strásykri. Kannski hálf-
um desilítra. Já, þetta er sæt sósa.
Áfram með smjörið. Hita þangað til
sykurinn er uppleystur og rífa þá
með míkrórífara niður hálfa mat-
skeið af hvoru, engifer og hvítlauk.
Bæta út í pottinn og sjóða saman
í nokkrar mínútur. Ekkert á fullu
gasi, bara svona rétt undir suðu-
marki, svo hvítlaukurinn verði ekki
bitur og engiferið missi allan kraft.
Þeir sem eiga lögg af sake mega
bæta matskeið eða tveimur út í með
sojasósunni í upphafi. Við hin get-
um notað lögg af hvítvíni eða jafnvel
bjór, helst þá hveitibjór – eða nokkra
dropa af hvítvínsediki ef ekkert
áfengt finnst í kofanum.
Sé vilji til þess að þykkja sósuna
í gljáa er hægt að gera það með ma-
isinamjöli. Þá er hálfri matskeið,
sirka, af mjölinu blandað saman
við matskeið af köldu vatni. Maís-
blöndunni er þá hrært út í sósuna og
soðið við miðlungs hita þangað til
sósan þykknar. Gljáinn hentar sér-
lega vel á kjúkling og lax eða silung,
svo ekki sé minnst á hamborgarann
góða.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Brún,
sæt
og sölt
Teriyaki er aðferð í Japan við að grilla mat eða steikja í ofninum. Þá er sojasósa ásamt
mirin, sem er sætt hrísgrjónavín, eða sake notuð ásamt sykri eða hunangi til að gefa
réttinum bragð og gljáa. Við hér á Vesturlöndum nær þekkjum þessa matargerð hins
vegar nær eingöngu á búðarkeyptri teriyakisósu sem við notum yfirleitt nákvæmlega
eins og soyjasósu, enda teriyakisósa nokkurn vegin eins í útliti, lykt og áferð. Bara
sætari og leggst því sérlega vel að bragðlaukum hérna megin á hnettinum.
Merrild MØRK er dökkbrennt malað kaffi úr 100%
Arabica baunum. Lengri brennsla þýðir að baunirnar
verða dekkri og braðeinkenni kaffisins fá tíma til að
losna úr læðingi. Dökkbrennda kaffið hefur mikla
fyllingu og snert af beiskju og því hentar það sérstak-
lega vel með mjólk.
Dökkbrennt
malað kaffi
Hentar sérstaklega vel ef þú vilt
mjólk í kaffið
Merrild 304
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
6
72
54
TRÓPÍ
fæst
núna
líka í
1. lítra
fernum
Náttúru-
lega
góði
safinn
©
20
15
T
he
C
o
ca
C
o
la
C
o
m
p
an
y
-
al
l r
ig
ht
s
re
se
rv
ed