Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.04.2015, Síða 24

Fréttatíminn - 10.04.2015, Síða 24
É g man eftir því þegar sonur minn var um átta ára gamall og ákvað að gefa vini sínum vísbendingar svo hann gæti gisk- að á hvað ég starfaði við,“ segir Steinunn Kristjánsdóttir fornleifa- fræðingur. „Fyrsta vísbendingin var: Mamma mín byggir ekki hús heldur rífur hús. Vinurinn var engu nær og þá kom næsta vísbending: Mamma mín er ekki prestur sem jarðar fólk heldur gefur hún fólk upp úr jörðinni. Aumingja drengurinn náði ekki að giska á rétt starf,“ segir hún. Steinunn er prófessor í fornleifa- fræði við Háskóla Íslands og Þjóð- minjasafn Íslands. Hún stýrði einni merkustu sem og umfangsmestu fornleifafræðilegri rannsókn síð- ari tíma hér á landi sem gerð var á miðaldaklaustrinu Skriðu sem hófst árið 2000 og lauk 12 árum síðar með útkomu bókarinnar „Sagan af klaustrinu á Skriðu“ sem Steinunn fékk Fjöruverðlaunin – bókmennta- verðlaun kvenna fyrir í flokki fræði- bóka og var auk þess tilnefnd til Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna og viðurkenningar Hagþenkis Viðurkennd undankomuleið frá hjúskap Skriðuklaustur, sem heyrði undir reglu Ágústínusar í kaþólskri trú, var starfrækt á árunum 1493-1554 en klausturkirkjan var vígð í ágúst 1512 og því eru nú ríflega fimm ald- ir frá vígslu hennar. „Auðvitað er sérstakt að taka upp grafir,“ segir Steinunn. „Ég man vel eftir öllum beinagrindunum frá Skriðuklaustri. Þær eru eins og manneskjur fyrri mér. Beinagrind er ekki bara beina- grind heldur segir hún sögu. Bein eru lifandi vefur og með því að skoða þau má fræðast um hvað fólk borðaði, um vinnu þess, sjúkdóma og ættareinkenni. Sagan er öll í beinunum,“ segir hún. Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur man eftir hverri einustu beinagrind sem hún gróf upp við Skriðuklaustur líkt og um manneskju væri að ræða. Við uppgröftinn fann hún kirkjunnar menn grafna með fylgikonum sínum og börnum, og telur almenna þekkingu skorta á samfélagsgerð miðalda þar sem ungar stúlkur voru gefnar eldri mönnum sem sáttargjörð og þeir valdamestu áttu margar eiginkonur. Steinunn segir einsetu og klausturlíf hafa verið notað sem undankomuleið frá hagsmunahjúskap. Hún vinnur nú að því að skrá allar minjar úr klaustrum á Íslandi frá kaþólskum tíma og þegar hefur fund- ist kirkjuklukka sem er merkt sjálfri Katrínu af Aragon, fyrstu eiginkonu Hinriks áttunda Englandskonungs. Sagan er öll í beinunum Steinunn tekur á móti mér á skrifstofu sinni í Setbergi þar sem Þjóðminjasafnið blasir við út um gluggann. Skrifstofan er bókstaf- lega hlaðin fræðibókum og nokkr- ar þeirra eru á skrifborðinu, til að mynda bækur sem tengjast kynja- fornleifafræði en kennslusvið Stein- unnar nær meðal annars yfir það svið fornleifafræðinnar. Eitt af því sem Steinunn hefur verið að kynna sér að undanförnu er hvernig ein- seta og klausturlíf var notað sem undankomuleið frá hagsmunahjú- skap. Snorri Sturluson gaf dæturnar í pólitískum tilgangi „Tilgangur hjónabands og sambúð- ar var vissulega ætíð fjölgun mann- kyns en ljóst er að sambandsform hvers konar voru um leið grunn- ur að pólitísku og efnahagslegu tengslaneti. Samkvæmt Grágás máttu feður ráðstafa dætrum sín- um að vild en einnig bræður þeirra eða synir þegar þeir höfðu náð 16 ára aldri. Barneignir skiptu miklu máli við uppbyggingu valdasam- félagsins, því fleiri konur og börn því víðtækari völd. Eina lagalega viðurkennda undankomuleiðin hjá hjúskap fékkst ef konur vildu gerast nunnur,“ segir Steinunn. Hún nefnir Snorra Sturluson, sjálfan höfund Snorra-Eddu og Heimskringlu, sem dæmi um valda- mikinn mann sem átti margar kon- ur og frillur, og gaf allar dætur sínar til manna sem gátu styrkt pólitíska stöðu hans. „Í frásögnum af Flugu- mýrarbrennu kemur fram að þá hafi Sturla Þórðarson, af ætt Sturlunga, gefið 13 ára dóttur sína syni Gissur- ar Þorvaldssonar Haukdælings sem sáttargjörð milli ættanna. Stúlkur voru notaðar svona sem peð í valda- tafli,“ segir hún. Vissulega hafi synir einnig verið gefnir en hún telur þetta hafa verið þungbærara fyrir stúlkurnar þar sem þær voru að jafnaði yngri og jafnvel gefnar vinum feðra sinna. Biskup braut gegn lögum kaþólsku kirkj- unnar Við uppgröftinn á Skriðu fundust tvær grafir sem báru öll merki þess að væru grafir yfirmanna í klaustri, svonefndra príora, en það sem kom Stein- unni á óvart var að þeir voru grafnir með konum og börnum, eins og um fjölskyldur hefði verið að ræða en eðli málsins samkvæmt hefðu príorar átt að vera einlífir eins og munkar. „Ég gekk á milli fræðimanna og spurði hvernig á því gæti staðið að príor væri grafinn með konu en enginn gat svarað því. Síðan fann ég allt um málið í þessari bók,“ segir hún og tekur upp bókina „Fjarri hlýju hjónasængur – Öðruvísi Íslandssaga“ eftir Ingu Huld Hákonar- dóttir – bók sem kom út árið 1992 og fjallaði um Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræð- ingur er hér við Grundarstólinn á Þjóðminjasafn- inu en hann var í eigu Þórunnar, dóttur Jóns Ara- sonar biskups, sem gaf hana 14 ára gamla í hjónaband til að mynda sættir við annan kirkjunnar mann. Mynd/Hari Við uppgröftinn á Skriðuklaustri árið 2011. Um 300 beinagrindur voru grafnar upp og rannsakaðar. Mynd/Gísli Kristjánsson Mamma mín grefur fólk upp úr jörðini. 24 viðtal Helgin 10.-12. apríl 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.