Fréttatíminn - 10.04.2015, Síða 26
hagsmunasambönd, ekki aðeins hjá
almenningi eða höfðingjum heldur
hjá kirkjunnar mönnum. Bókin var
tilnefnd til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna og seldist upp en
Steinunn fann hana nýverið á forn-
bókasölu. „Jón Arason biskup átti
sex börn með fylgikonum sínum og
var þannig að brjóta gegn einum
helsta lagabálki kaþólsku kirkjunn-
ar. Jón Arason fórnaði, sem þekkt
er, lífi sínu fyrir baráttuna gegn því
að kaþólskt regluboð væri aflagt á
Íslandi en braut gegn því á veiga-
mikinn hátt Hann ættleiddi fjögur
af þessum börnum sínum, þar á
meðal Þórunni Jónsdóttur sem átti
Grundarstólinn fræga sem stendur
á Þjóðminjasafninu. Þegar Þórunn
er 14 ára gömul gefur Jón hana syni
Brands príors við Skriðuklaustur
sem sáttargjörð.“
Hagsmunahjónabönd tíðkuð-
ust lengst af hjá valdamiklum fjöl-
skyldum og það voru valdaaðilar
sem börðust hvað hatrammast
gegn boðun kaþólsku kirkjunnar
um einkvæni sem og skírlífi kirkj-
unnar manna. „Rannsóknir sýna
að hagsmunasambönd tíðkuðust
lengst meðal fólks í áhrifastöðum
enda var mest í húfi hjá þeim og að
almenningur hafi verið fyrri til að
fylgja lögum um einkvæni. Þetta
var staðan um alla Evrópu en ekki
aðeins á Íslandi. Segja má að það
hafi hér áður verið regla frekar en
undantekning að kirkjunnar menn
hafi átt konur og börn, en þeir gift-
ust ekki heldur voru þær kallaðar
fylgikonur,“ segir hún.
Sængað fyrir opnum tjöldum
Steinunn undrast að þrátt fyrir að
fjölskyldumynstrið á miðöldum hafi
verið á þá leið að höfðingjar áttu
margar konur þá hafi það ekki fest
sig í þeirri mynd sem við höfum af
miðöldum á Íslandi. „Ef þú horfir á
bíómynd sem á að gerast á þessum
tíma þá er það alltaf kjarnafjölskyld-
an sem birtist okkur, maður, kona
og börn, en það var alls ekki raun-
in,“ segir hún og veltir upp hvort
það sé einhvers konar höfðingja-
dýrkun sem geri að verkum að okk-
ur finnist óþægilegt að hugsa um
nafntogaða forfeður okkar á þann
hátt að þeir hafi tekið sér ungar
stúlkur sem eiginkonur í valdatafli.
„Fram að siðaskiptum tíðkaðist
einnig að eftir brúðkaupið þurftu
hjónin að sænga fyrir opnum tjöld-
um. Þarna erum við meðal annars
að tala um ungar stelpur sem voru
gefnar vinum feðra sinna,“ segir
hún og tekur upp aðra bók af skrif-
borðinu: „Ástarsaga Íslendinga að
fornu“ eftir Gunnar Karlsson sem
kom út fyrir tveimur árum. „Þarna
skrifar hann gegn málf lutningi
Ingu Huldar án þess þó að vitna í
hana, sem og doktor Auði Magnús-
dóttur sem hefur skrifað á sama
hátt. Ég tek frekar undir með þeim
Stúlkur voru
notaðar sem
peð í valda-
tafli.
Við uppgröftinn á
Skriðuklaustri árið
2011. Ríflega 130
manns komu að
verkefninu sem stóð
í áratug. Mynd/Gísli
Kristjánsson
Könnunarskurðurtekinn við Helgafell á Snæfellsnesi 2014. Frá vinstri: Hermann
Jakob Hjartarson, Hrafnhildur Helga Halldórsdóttir og Helga Jónsdóttir. Mynd/Stein-
unn Kristjánsdóttir
en það er ljóst að þetta er hitamál
innan sagnfræðinnar.“
Steinunn bendir á að hún sé ekki
að reyna að koma höggi á minn-
ingu Snorra Sturlusonar eða Sturlu
Þórðarsonar heldur einungis benda
á að þeir hafi verið börn síns tíma.
„Við gagnrýnum önnur trúarbrögð
þar sem stúlkur eru gefnar ungar í
hjónabönd en það er svo ótrúlega
stutt síðan við gerðum þetta sjálf,“
segir hún. „Ég er viss um að marg-
ar konur tóku þátt í þessu af fúsum
og frjálsum vilja, því þetta var hin
ríkjandi samfélagsgerð, en það
breytir því ekki að klausturlíf var
notað sem undankomuleið. Fræði-
menn um alla Evrópu eru sammála
um það. Guðrún Ósvífursdóttir var
alls gefin fjórum sinnum, stundum
ósátt við ráðahaginn, og á endanum
gerðist hún einsetukona. Eftir að
hafa verið gefin aftur og aftur not-
aði hún þessa friðhelgi.“ Steinunn
hefur ritað fræðigrein um þessi mál
í fræðiritið Sögu sem kemur út í vor.
„Þetta er ritrýnt rit og ég er mjög
ánægð með að greinin verði birt
þar,“ segir hún.
Stórmerkileg kirkjuklukka
Steinunn rekur áhuga sinn á forn-
leifum aftur til æskunnar en talið
var að við sveitabæinn sem hún ólst
upp á svæði fornmunahaugur. „Ég
er frá bæ á sunnanverðum Vest-
fjörðum, Breiðalæk á Barðaströnd.
Þar fyrir neðan stóð hóllinn Gellis-
hóll sem talinn var geyma heiðna
gröf. Ég reyndar gróf í hann seinna
þegar ég var orðinn fornleifafræð-
ingur og þá kom í ljós að þetta var
ekki fornminjahaugur, heldur sigl-
ingamerki fyrir Hagavaðal. Ég veit
satt að segja ekki af hverju ég fylgdi
eftir þeirri hugmynd að gerast forn-
leifafræðingur en ég er mjög ánægð
með að ég gerði það, ég hef verið
heppin með verkefni og mér hefur
gengið vel. Ég held að það sé for-
vitnin sem hefur drifið mig áfram.
Ég var ekki sérlega sterk í sögu í
skóla og var áhugasamari um það
sem stóð á spássíunni og neðan-
máls. Það sem skilur að sagnfræði
og fornleifafræði er að við erum í
smáatriðunum. Sagnfræði og ritað-
ar heimildir gefa myndina í stórum
dráttum, um lagabálka og hvernig
hlutirnir áttu að vera. Raunveru-
leikinn og hversdagslífið er í forn-
leifunum.“
Auk kennslunnar vinnur Stein-
unn nú að víðtækri fornleifarann-
sókn sem miðar að því að skrá minj-
ar allra klaustra sem rekin voru á
Íslandi á kaþólskum tíma, á árunum
1000 til 1550. Stóra markmiðið er að
skoða áhrif klaustranna og umsvif í
íslensku miðaldasamfélagi. Rann-
sóknin er unnin fyrir fjárframlög
frá Rannsóknasjóði Íslands, Rann-
sóknasjóði Háskóla Íslands og sam-
starfsaðilum. Starfsmaður verk-
efnisins er Vala Gunnarsdóttir
safnafræðingur og saman eru þær
Steinunn nú að fara yfir loftmyndir,
lesa ritaðar heimildir og undirbúa
rústaleit. Þær leita einnig gamalla
muna úr klaustrunum en sumir
þeirra hafa ratað í kirkjur. „Vala
er þegar búin að finna afskaplega
merkilega kirkjuklukku sem er í
Helgafellskirkju og er sennilega
sú eina sem til er í heiminum. Hún
er merkt Katrínu af Aragon, fyrstu
eiginkonu Hinriks áttunda Eng-
landskonungs. Við höfum verið í
sambandi við sérfræðinga um allan
heim og svo virðist sem allar svona
klukkur hafi verið bræddar upp,
nema þessi sem hefur orðið eftir í
Helgafellskirkju,“ segir Steinunn
sem hlakkar til sumarsins þegar
frekari rannsóknir verða gerðar.
„Þetta verður gríðarlega spenn-
andi.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
26 viðtal Helgin 10.-12. apríl 2014