Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 38
„Miðað við lífsstíl fólks í dag er skyn- samlegt að aðstoða líkamann við þetta ferli til að gera það enn skilvirkara og hreinsa líkamann þegar þess er þörf.“ heilsa Helgin 10.-12. apríl 201538 Hreinsun fyrir líkamann H eilsuhótel Íslands er staðsett á Ásbrú í Reykja-nesbæ, en það er einstakt svæði þar sem verið er að byggja upp nýtt heilsuþorp. Heilsuhótel- ið er námskeiðs- og afþreyingarhótel og geta einstak- lingar, fyrirtæki og félög nýtt sér þjónustu hótelsins, sem er opið allan ársins hring. Ásdís Ragna Einars- dóttir útskrifaðist með BSc-gráðu í grasalækning- um árið 2005 frá University of East London. Hún sér meðal annars um að halda fyrirlestra á Heilsuhótelinu og nýtir þar þekkingu sína og reynslu til að stuðla að bættri heilsu hótelgesta. „Hlutverk mitt er að fræða gesti um áhrif mataræðis á heilsuna. Sjálf hef ég oft orðið vitni af því að fæðan okkar er yfirleitt besta með- ferðarúrræðið og einnig öflugur fyrirbyggjandi þáttur í tengslum við líðan og einkenni fólks.“ Heilsueflandi fróðleikur Eitt af markmiðum Heilsuhótelsins, að sögn Ásdísar Rögnu, er að miðla heilsueflandi fróðleik og hvetja fólk áfram til breytinga með því að tileinka sér betri lífsvenjur. „Við bjóðum upp á fræðslu og fyrirlestra úr ýmsum áttum sem miðla fjölbreyttu heilsutengdu efni til gestanna.“ Að sögn Ásdísar Rögnu hentar meðferð á Heilsuhótelinu flestu fólki, en ófrískum konum og fólki sem glímir við illviðráðanlega króníska líkam- lega eða geðræna sjúkdóma er ekki ráðlagt að dvelja þar. „Einnig er varhugarvert að fara í slíka hreins- un fyrir þá sem eru á miklum lyfjum og eins þá sem glíma við insúlínháða sykursýki. Reynt er að meta það í einstaka tilfellum hvort meðferðin henti viðkomandi eða ekki,“ segir Ásdís Ragna. Dvölin stendur yfir í tvær vikur, mögulega 7-10 daga ef fólk hefur komið áður. Auk þess er boðið upp á helgardvöl frá föstu- degi til sunnudags. Hreinsunin hefur jákvæð áhrif Það er stundum sagt að bæði þurfi að hvíla og hreinsa líkama og sál. En hvernig hreinsar maður líkamann af óæskilegum efnum? Ásdís Ragna segir að hreinsun líkamans sé náttúrulegt afeitrunarferli sem sé alltaf í gangi. „Miðað við lífsstíl fólks í dag er skynsamlegt að aðstoða líkamann við þetta ferli til að gera það enn skilvirkara og hreinsa líkamann þegar þess er þörf. Það sem hægir á afeitrun líkamans er til dæm- is streita, óæskileg aukaefni í fæðu og umhverfinu, hreyfingarleysi, ofát, lyf og sjúkdómar.“ Ásdís segir þá aðferð að hreinsa líkamann með náttúrulegri og hreinni fæðu oft veita líkamanum hvíld frá ofáti og streitu, aðferð sem hefur verið beitt frá örófi alda um allan heim. „Eftir að hafa kynnt mér ítarlega hvaða áhrif þetta hefur og upplifað hversu vel fólki líður eftir meðferðina á þessum þremur árum sem ég hef starfað sem fyrirlesari á Heilsuhótelinu þá er það klárt mál Námskeiðin á Heilsuhóteli Íslands henta flestum mjög vel. Þar er heilsutengdum fróðleik meðal annars miðlað í formi fyrirlestra. Líkaminn er hreinsaður með náttúrulegri og hreinni fæðu og hann fær hvíld frá amstri dagsins og streitu. að þessi hreinsun hefur í för með sér jákvæða líðan og oftar en ekki bættar lífsvenjur sem fylgja fólki áfram eftir að heim er komið.“ Góðar lífsvenjur lykill að góðri heilsu Fæðutegundir úr jurtaríkinu inni- halda að sögn Ásdísar Rögnu virk náttúruefni sem hafa líffræðilega mikla virkni á starfsemi líkamans. „Því er aðaláherslan lögð á að neyta þessarar fæðu til að hafa áhrif á að koma jafnvægi á líkamann og bæta almenna líffærastarfsemi. Maturinn sem við leggjum okkur til munns getur ýmist haft góð eða slæm áhrif á okkur. Algengt er að fólk átti sig ekki á samhengi þess hvað það borð- ar eða gerir daglega og hvernig því líður. Góð heilsa er ekki eingöngu að vera laus við sjúkdóma heldur að upplifa vellíðan, orku og hreysti í daglegu lífi.“ Samhliða hreinsuninni er gjarnan mælt með því að gestir nýti sér böð, nudd og fleira sem er í boði á hótelinu sem styðja við afeitr- unarferlið og auka vellíðan. Ásdís Ragna miðlar fróðleik sín- um um allt sem viðkemur heilsu, næringu, uppskriftum og lækningar- jurtum á facebook-síðu sinni, www. facebook.com/grasalaeknir.is. Nán- ari upplýsingar starfsemi Heilsuhót- elsins og næstu námskeið má nálgast á heimasíðunni www.heilsuhotel.is Unnið í samstarfi við Heilsuhótel Íslands Ásdís Ragna Einarsdóttir grasa- læknir fræðir gesti Heilsuhótelsins um áhrif mataræðis á heilsuna. „Ég hef orðið vitni að því í starfi mínu hér að fæðan okkar er yfirleitt besta með- ferðarúrræðið og einnig öflugur fyrir- byggjandi þáttur í tengslum við líðan og einkenni fólks.“ FYRIRLESARAR OG KENNARAR Heilsunámskeið Haust Vetur Sími 512 8040 | www.heilsuhotel.is | heilsa@heilsuhotel.is Heilsuhótel Íslands | Lindarbraut 634 | 235 Reykjanesbær Hjúkrunarfræðingur BSc heilsuvísindi Yogakennari Ásdís Ragna Einarsdóttir Grasalæknir Heilsa, hvíld og gleði Vigdís Steinþórsdóttir Chad Keilen Kristín Stefánsdóttir 2. - 26. september, Heilsunámskeið , 2 vikur Frábært tækifæri, enn laust. *Staðfestingargjald 40.000.- Flest stéttarfélög og fyrirtæki styrkja þátttakendur 2. -16. janúar, pantið tímanlega vinsæll tími Sumar 1.-15. maí, H ilsunámsk ið, 2 vikur rábært, enn laust. Haust 2.-16. október pantið tímanlega, vinsæll tími
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.