Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.04.2015, Side 44

Fréttatíminn - 10.04.2015, Side 44
M eðal vara sem eru fáan-legar í vefversluninni eru sængurföt, leikföng, barnaföt og handklæði. Vörurnar eru framleiddar úr lífrænt ræktuðu hráefni og er skemmtilegri nútíma hönnun blandað saman við klass- íska hönnun. „Við erum sífellt að fjölga vöruflokkum, en við val á vörum höfum við alltaf umhverfið og samfélagið í huga. Til að full- vissa okkur og viðskiptavini okkar um uppruna og innihald eru flestar vörur Mena vottaðar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, til dæmis GOTS, sem er aðþjóðlegur staðall fyrir lífræna vefnaðarvöru,“ segir Margrét, en umhverfismeðvitund hennar hefur aukist jafnt og þétt á síðastliðnum 20 árum. „Hjá okkur snýst þetta fyrst og fremst um að hafa val, að geta keypt vörur úr líf- rænt ræktuðu hráefni sem eru unn- ar án skaðlegra efna og í mannúð- legu vinnuumhverfi.“ Þær Guðrún kynntust fyrir þremur árum í Dan- mörku í gegnum sambýlismenn sína. Síðustu jól hittust þær svo aft- ur í matarboði. „Það vildi til að við vorum á svipuðum stað í lífinu og gátum báðar hent okkur út í þetta af fullum krafti,“ segir Margrét. Margir góðir kostir við net- verslun Margrét og Guðrún leitast við að bjóða vörur sínar til sölu á sambæri- legu verði og gerist erlendis. „ Net ið ger i r okkur betur kleift að gera það, þar sem fastur kostnað- ur við rekstur- inn er lægri en e l l a . Auk þess skynjum við að fólk vill frek- ar nýta tíma sinn með fjölskyldu eða fyrir áhugamálin. Netversl- unarformið býður auk þess upp á að margir smáir aðilar komi inn á markaðinn sem skilar sér í auknu vöruúrvali, eykur samkeppi og ger- ir þar með markaðinn fjölbreyttari og skemmtilegri,“ segir Margrét. Hjá Mena er viðskiptavinum boðin heims - ending þeim að kostn- aðarlausu ef versl- að fyrir ákveðna upphæð. Úr stórfyrirtækjum í eigin rekstur Margrét og Guðrún eru báðar að feta sig í þessu nýja umhverfi, en þær störfuðu báðar í stórum fyrirtækj- um. „Guðrún var í fjármáladeildinni hjá IBM í Danmörku og ég starfaði hjá Íslandsbanka í eignastýringu og áhættustýringu,“ segir Margrét. Þær ákváðu að breyta til þar sem áhuga- svið þeirra beggja var farið að teygja sig í aðra átt. „Þá er ekkert annað að gera en að láta slag standa og fylgja hjartanu og vorum við báðar svo heppnar að vera í að- stöðu til þess.“ Áhugasamir geta kynnt sér vöruúrvalið á www.mena.is, en Margrét og Guðrún munu á næstunni auka vöruúrvalið og halda áfram að benda á kosti þess að velja vörur sem unnar eru í sátt og samlyndi við samfélagið og náttúruna. Guðrún Marta Jóhannsdóttir og Margrét Ólöf Ólafsdóttir opnuðu nýverið netverslunina Mena. Um er að ræða nú- tímalega netverslun með umhverfisvænar og hágæða vörur fyrir börn, nýbakaðar mæður og heimilið. Ný netverslun með áherslu á umhverfisvænar vörur Margrét Ólöf Ólafsdóttir og Guðrún Marta Jóhanns- dóttir sögðu báðar upp störfum sínum hjá stórum fyrirtækjum og hafa nú opnað netverslunina mena.is, sem selur um- hverfisvænar vörur fyrir börn, nýbakaðar mæður og heimilið. Mynd/Hari 44 heimili og hönnun Helgin 10.-12. apríl 2015 Gaman Ferðir fljúga með WOW air Frá:: hjá Gaman Ferðum! Verð á mann miðað við 2 fullorðna og 1 barn yngri en 7 ára.* Bókunartímabil frá 1. júní 2015. Innifalið er flug með sköttum, gisting í 7 nætur með hálfu fæði og 20 kg taska báðar leiðir. Tenerife Las Palmeras **** 99.900 kr. *Verð á mann frá 119.600 kr. miðað við 2 fullorðna. Sumarið er komið í sölu Verð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn yngri en 7 ára.* Bókunartímabil frá 1. júní 2015. Innifalið er flug með sköttum, gisting í 7 nætur með hálfu fæði og 20 kg taska báðar leiðir. Tenerife Costa Adeje Palace **** *Verð á mann frá 126.500 kr. miðað við 2 fullorðna. 103.900 kr.Frá: Frá: Frá: Verð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn yngri en 12 ára.* Bókunartímabil frá 1. júní 2015. Innifalið er flug með sköttum, gisting í 7 nætur með hálfu fæði og 20 kg taska báðar leiðir. Alicante Albir Playa hotel **** 95.900 kr. *Verð á mann frá 115.900 kr. miðað við 2 fullorðna. www.gaman.is / gaman@gaman.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.