Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 48
Helgin 10.-12. apríl 201548 tíska
F rá því ég man eftir mér hef ég haft áhuga á förðun, tísku og andlitum,“ segir Helga
Kristjánsdóttir förðunarfræðingur.
„Ég fylgdist með móður minni taka
sig til fyrir vinnuna sína á Alþingi
með stjörnur í augunum,“ segir
hún en Aðalheiður Birgisdóttir,
móðir hennar, vann lengi á skrif-
stofum Alþingis. „Hún notaði svo
fallega og sterka liti og umbúðirnar
– maður minn! Þessar snyrtivörur
voru keyptar í útlöndum og voru í
gylltum umbúðum, YSL. Þetta var
á miðjum níunda áratuginum og
hárspreyið var heldur ekki sparað í
permanentað hárið. Það kom aldrei
neitt annað til greina en að vinna í
tískubransanum, á einn eða annan
hátt,“ segir hún.
Helga starfar sem tískublaðamað-
ur, förðunarmeistari og stílisti hjá
tímaritinu Vikunni. „Ég sé sem sagt
um að gera forsíðufyrirsæturnar
okkar sérstaklega fínar, farða þær
og greiði og sé um að allt heildarút-
lit smelli saman. Það mætti því vel
segja að ég sé í draumastarfinu mínu
þar sem ég samtvinna mín allra
stærstu áhugamál sem er tíska og
förðun og skrif.“ Hún er gift Magn-
úsi Þór Ásgeirssyni, markaðsstjóra
Riverwatcher og Body Pump-þjálf-
ara og saman eiga þau fimm börn;
Magneu Ástu, Ásgeir Snæ, Júlíu
Heiði, Jórunni Ósk og Birtu Maríu.
Helga viðurkennir að hún hafi,
eins og flestir, lenti í ýmsum tísku-
slysum í gegnum tíðina. „Mín
stærstu mistök voru þau að ég
ákvað að plokka Brooke Shields-leg-
ar augabrúnir mínar í örmjó strik í
anda Pamelu Anderson. Slæm hug-
mynd og eitthvað sem ég sé eftir á
hverjum degi þegar ég farða mig,“
segir hún.
Helga er frekar nýlega farin að
taka að sér förðun utan hefðbund-
innar vinnu hjá Vikunni og opnaði
á dögunum sérstaka Facebook-
síðu til að halda utan um það starf:
„Make up by Helga.“ Hún segir ekk-
ert jafn skemmtilegt og gefandi, og
að farða konur – sérstaklega þær
sem aldrei hafa verið farðaðar af
fagmanneskju og hreinlega ljóma
þegar hún er búin. „Það gefur mér
virkilega mikið, og þeim líka að
sjálfsögðu. Síðan er brúðkaupstím-
inn auðvitað fram undan og það er
æðislegt að fá að taka þátt í þeim
stóra degi í lífi fólks og mikilvægt
að vanda vel til verka,“ segir hún.
Spurð um bestu förðunarráðin
fyrir íslenskar konur segir Helga
mikilvægt að fá aðstoð við að velja
réttan farða og réttan lit á farða þeg-
ar kemur að tóni húðar og húðgerð.
„Í sumum tilfellum er minna meira,“
segir hún og tekur fram að það sé
nokkuð sem hún sjálf þurfi reglu-
lega að minna sig á. „Ekki velja
farða með fullri þekju ef húð þín
þarfnast þess ekki. Og mundu að
blanda vel, augnskugga og skygg-
ingar allar. Og síðast en ekki síst,
ekki nota of dökkan og áberandi lit
í augabrúnir. Náttúrulegt er alltaf
fallegast í þeim efnum,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Gerir for-
síðustúlk-
urnar enn
flottari
Helga Kristjánsdóttir förðu-
narfræðingur hefur haft
áhuga förðun og tísku frá því
hún var lítil stelpa. Hún segir
lesendum Fréttatímans frá
uppáhalds förðunarvörunum.
Helga Krist-
jánsdóttir
sem tísku-
blaðamaður,
förðunar-
meistari og
stílisti hjá
tímaritinu
Vikunni.
Mynd/Aldís Páls
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Túnikur
kr 5.990
Tökum upp nýjar vörur daglega
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi lindesign.is
Ferming
TILBOÐ
7.990 8.990 9.990
100%
PIMA BÓMULL
RÚMFÖT
20 GERÐIR
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-16
50% VORafsláttur
Kjóll á 6.450 kr.
Verð áður 12.900 kr.
Einn litur
Stærð S - XXL
(36 - 46)
af vel völdum vörum
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Fræðslu- og
myndakvöld
Ferðafélag Íslands stendur fyrir fræðslu- og myndakvöldi
nk. miðvikudag, 15. apríl, kl. 20:00 í sal FÍ.
Hreyfiseðill á Íslandi – ávísun á hreyfingu
Auður Ólafsdóttir sjúkraþjálfari og varaformaður SÍBS.
„The Biggest Winner“ og Bakskóli FÍ
Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ og Steinunn Leifsdóttir
íþróttakennari fara yfir hugmyndafræðina að baki „The Biggest
winner“og Bakskóla FÍ.
Frá horfinni tíð
Sigurður Guðjhonsen, kortagerðamaður fer yfir myndir úr safni föður
síns Einars Þ. G. sem lengi var framkvæmdastjóri FÍ.
Aðgangseyrir kr. 600, innifalið kaffi og kleinur
Allir velkomnir!
Hreyfiseðill á
Íslandi - Kyn
ning á verke
fnum
- Frá horfinni
tíð -
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
TÚNIKA
Stærðir 16-26
verð: 8.990 kr
VERTU VELKOMIN Í VERSLUN OKKAR
AÐ FÁKAFENI 9 EÐA PANTAÐU Á
WWW.CURVY.IS
NÝ SENDING MEÐ
FLOTTUM VORVÖRUM