Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 10.04.2015, Blaðsíða 56
K vikmyndin Blóðberg segir frá fjölskylduföður sem bjargar samlöndum sínum með skrif- um á sjálfshjálparbókum á meðan móðirin bjargar fólki á spítalanum þar sem hún vinnur sem hjúkrunarfræð- ingur. En hvorugt þeirra hefur kjark til að bjarga sjálfu sér. Undir óað- finnanlegu yfirborðinu liggur gamalt leyndarmál sem einn daginn bankar upp á, og þá breytist allt. Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikur eitt aðal- hlutverkanna og segir tökurnar hafi gengið vonum framar og góð orka hafi verið til staðar. „Við tókum bróðurpartinn upp í ágúst á síðasta ári, og svo líka í janúar síðastliðnum,“ segir Þórunn. „Mér finnst svo langt síðan við byrjuðum að ég var nánast búin að gleyma plottinu þegar ég sá svo myndina þegar hún var forsýnd um síðustu helgi,“ segir Þórunn en Blóðberg var forsýnd á Stöð 2 um páskana. „Ég sá svo eigin- lega ekkert af myndinni þar sem dótt- ir mín krafðist mikillar athygli þegar myndin var í gangi. Mér leist samt vel á það sem ég sá,“ segir Þórunn. „Hlutverkið var merkilega auðvelt, enda er Björn Hlynur frábær leik- stjóri sem lætur manni líða vel,“ segir Þórunn sem segir Blóðberg sína stærstu kvikmyndarullu til þessa. „Ég lék lítið hlutverk í Málmhausi, en þetta er það stærsta. Ég fór svo beint úr tökunum á myndinni yfir í tökur á Stelpunum, svo það má segja að ég hafi skólast ágætlega í kvikmyndaleik á stuttum tíma,“ segir Þórunn. „Það var gaman að fá að leika á móti Hilmi Jenssyni sem er bekkjarbróðir minn úr Leiklistar- skólanum og það var skemmtilegt að fylgjast með því að Hilmar Jónsson og Harpa Arnardóttir, sem leika í myndinni, eru líka bekkjarsystkin úr skólanum og maður fann að samband bekkjarsystkina er oft ansi magnað,“ segir Þórunn. „Það voru alveg sömu neistar í gangi. Það hjálpar mikið að leika á móti fólki sem stendur manni nærri, fyrir vikið hafði maður engar áhyggjur. Maður kynnist mörgum í þessum bransa og það er mikilvægt að rétta orkan sé til staðar í samleiknum,“ segir Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem er fastráðin í Borgarleikhúsinu. „Ég er í Billy Elliot og Beint í æð, svo þetta eru ansi margar sýningar á viku. En þegar það er svona gaman þá mætir maður með bros á vör í vinn- una.“ Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is  KviKmyndir Þórunn ArnA Kristjánsdóttir leiKur í BlóðBergi Dóttirin truflaði forsýn- inguna Kvikmyndin Blóðberg verður frumsýnd í kvöld í Sambíóunum. Kvikmyndin, sem framleidd er af Vest- urporti og leikstýrt af Birni Hlyni Haraldssyni, segir sögu af hefðbundinni ís- lenskri fjölskyldu í úthverfi Reykjavíkur. Ein leikkona myndarinnar, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, segir aðdragandann hafi verið langan en tökuferlið yndis- legt í alla staði. Hlutverkið var merkilega auðvelt, enda er Björn Hlynur frábær leikstjóri sem lætur manni líða vel. Ég var búin að gleyma plottinu þegar ég loksins sá myndina, segir Þórunn Arna Kristjáns- dóttir leikkona. Ljósmynd/Hari  reyKjAvíK KviKmyndAhátíð um helginA Stuttar og fræðandi myndir í Bíó Paradís Kvikmyndahátíðin Reykjavík Shorts & Docs hefur verið haldin á ári hverju síðan 2001 og dagskráin jafnan mjög fjölbreytt. Um helgina er hátíðin haldin í 15. skiptið og fjölmargar áhugaverðar stutt- og heimildamyndir á boðstólum í Bíó Paradís. Óskarsverðlaunamyndin CitizenFour, um uppljóstrarann Edward Snowden, er ein heimilda- mynda hátíðarinnar og mun leik- stjóri hennar, Laura Poitras, verða viðstödd sýningu myndarinnar og verður með námskeið í heimilda- myndagerð á hátíðinni. Sumé – The Sound of Revolution er fyrsta grænlenska heimilda- myndin í fullri lengd en hún fjallar um grænlensku rokkhljómsveitina Sumé sem gerði garðinn frægan á 8. áratuginum á Grænlandi og víðar í Evrópu. Myndin gerir hljómsveitinni góð skil en varpar einnig ljósi á grænlenskt samfélag þá og nú. Heimildamyndin Bannað að vera fáviti (No Idiots Allowed) er opn- unarmynd hátíðarinnar í ár. Einu sinni á ári fyllist Neskaupstaður af þungarokkurum sem mæta á Eistnaflug, einu hreinræktuðu þungarokkshátíð landsins. Þó að hátíðin, sem nú er haldin í tíunda sinn, sé lítil á alþjóðlega vísu hafa margar af stærstu þungarokk- ssveitum heims spilað fyrir gesti hátíðarinnar. Fjöldi annarra stutt- og heim- ildamynda verða sýndar á hátíð- inni. Upplýsingar um allar myndir hátíðarinnar og sýningartíma má finna á www.shortsdocsfest.com Miðasala á myndir hátíðarinnar fer fram í Bíó Paradís. Hátíðin stendur fram á sunnudag. -hf 56 menning Helgin 10.-12. apríl 2015 DUBLIN flug f rá 9.999 kr. BARCELONA flug f rá 19.999 kr. RÓM flug f rá 18.999 kr. MÍL ANÓ flug f rá 18.999 kr. KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS Gerðu verðsamanburð, það borgar s ig! ÚLLEN, DÚLLEN DOFF! AMSTERDAM flug f rá 12.999 kr. maí 2015 jú l í - september 2015 maí - jú l í 2015 jún í - jú l í 2015 jún í 2015 *999 kr. bókunargjald leggst ofan á hverja bókun og töskugjald er ekki innifalið nema annað sé tekið fram. * * * * *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.