Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.04.2015, Side 62

Fréttatíminn - 10.04.2015, Side 62
Óttar Norðfjörð situr sveittur við að skrifa kvikmynda- handrit. Í bakgrunni New York árið 2044? Mynd/Pétur Antonsson  Bíó óttar Norðfjörð með tímaflakkstrylli í smíðum Það er ekkert íslenskt við þessa bíómynd Rithöfundurinn Óttar Norð- fjörð hefur undanfarið unnið að kvikmyndahandriti ásamt kvikmyndargerðarmanninum Davíð Ólafssyni. Myndin sem ber heitið Causality er spennu- mynd þar sem notast er við tímaflakk á mjög eðlisfræðileg- um grundvelli. „Þetta er vísindatryllir,“ segir Óttar Norðfjörð. „Ég var búinn að vera með þessa hugmynd í kollinum í þrjú til fjögur ár, um eðlisfræðing sem kannar möguleika tímaflakks til þess að finna morðingja fjölskyldu sinnar,“ segir Óttar. „Ég bar þessa hugmynd undir Davíð sem kom svo inn í þetta með mér. Sagan gerist í New York og það er ekkert íslenskt við þessa mynd,“ segir Óttar. „Enda erum við að reyna við erlenda fram- leiðsluaðila og erlent fjármagn,“ segir Óttar. „Við förum á kvikmyndahá- tíðina í Cannes í næsta mánuði þar sem handritið verður kynnt og við reynum að freista þeirra sem gætu haft áhuga,“ segir Óttar. „Þetta er langt ferli og við erum á byrjunarreit, en þetta er spennandi.“ Hönnuðurinn Pétur Atli Ant- onsson hefur teiknað nokkrar myndir af mögulegu útliti myndarinnar og segir Óttar að þær ættu að hjálpa til við kynninguna. „Myndin gerist í New York á okkar tímum og árið 2044 og þessar myndir eru mjög skemmtilegar, og sýna mjög góða mynd af því sem við erum að skapa,“ segir Óttar Norðfjörð handritshöfundur. -hf  tóNlist Ása BergliNd gefur út plötu með tóNum og trix Þjóðþekktir popparar syngja með ellismellum í Þorlákshöfn Tónar og trix er tónlistarhópur eldri borgara í Þorlákshöfn sem hefur unnið saman síðan vorið 2007. Þá stóð upphaflega til að halda tveggja vikna námskeið fyrir eldri borgara í Þorlákshöfn, þar sem unnið var með tónlist á skapandi hátt. Það var lokaverkefni stjórnanda hópsins, Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, í námi við Listaháskóla Íslands. Verkefnið gekk vonum framar og nú hefur hópurinn ráðist í gerð hljómplötu sem kemur út í vor, og naut hópurinn liðsinnis nokk- urra af frægustu söngvurum landsins við gerð plötunnar. t ónar og trix er tónlistarhópur eldri borgara sem er í músíkalskri ævin-týraför. Þau hafa undanfarna mánuði unnið hörðum höndum að því að æfa og taka upp plötu með aldeilis frábærum tónlistar- mönnum sem fyrirhugað er að komi út í maí. Stjórnandi hópsins, Ása Berglind Hjálmars- dóttir, segir starfið vera ævintýralegt og ótrúlega skemmtilegt. „Þetta byrjaði nú bara sem útskriftarverkefnið mitt úr Listaháskól- anum og nú, átta árum síðar, erum við að gera plötu,“ segir Ása. „Á síðustu vortónleikum vorum við að taka þekkt íslensk dægurlög í „Latin“ útgáfum og hugmyndin að plötu kom upp. Það hefur svo gengið alveg rosalega vel, hópurinn er svo jákvæður og það er mikil spenna í Þorláks- höfn fyrir þessu öllu saman,“ segir Ása. Í Tónum og trix eru 20 eldri borgarar og segir Ása þau oft halda að hún sé ekki með öllum mjalla þegar hún ber upp sumar hug- myndirnar við þau. „Þau eru svo hæversk og yndisleg, og oft þarf ég að stappa í þau stálinu og segja þeim að þau geti þetta alveg,“ segir Ása. „Þau koma sjálfum sér á óvart í hvert sinn þrátt fyrir að þeirra fyrstu viðbrögð séu oft á þá leið að þau halda að þau geti þetta ekki.“ Eins og gefur að skilja með fólk sem kom- ið er á besta aldur þá hafa einhverjir fallið frá á þeim átta árum sem félagsskapurinn hefur starfað. „Það er bara eins og gengur,“ segir Ása. „Þeir meðlimir eru þó svo sannarlega með okkur í anda, við finnum fyrir því.“ Á plötunni sem kemur út í vor koma nokkrir gestasöngvarar við sögu, og eru það engir aukvisar. „Við fengum Jónas Sigurðs- son, Kristjönu Stefánsdóttur, Unnstein Manúel, Sigtrygg Baldursson og Sölku Sól til þess að syngja,“ segir Ása. „Þau tóku öll ótrúlega vel í þetta og voru mjög jákvæð. Það er mikil spenna í hópnum að fá að hitta þessar stjörnur, þar sem þau hittust aldrei á upptökutímanum,“ segir Ása. Söfnun fyrir framleiðslu plötunnar er á Karolina Fund og hægt er að leggja verk- efninu lið þar. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Það er mikið fjör í Tónum og trix og fyrsta plata ellismellanna er væntanleg í vor. Þau njóta aðstoðar þekktra poppara á plötunni, svo sem Jónasar Sig, Kristjönu Stefáns, Unnsteins í Retro Stefson, Sölku Sólar og Sigtryggs Baldurssonar. ... ævin- týralegt og ótrúlega skemmti- legt. Ein ákvörðun getur öllu breytt www.allraheill.is Stúdentaleikhúsið frumsýnir MIG í kvöld, föstudagskvöld. Verkið fjallar um sjálfs- mynd ungs fólks á Íslandi.  leikhús stúdeNtaleikhúsið frumsýNir mig Sjálfsmynd ungs fólks mismunandi MIG fjallar um þig, mig, okkur og alla hina, segir í kynningartexta leikhússins og segir Vilhelm Þór Neto, formaður Stúdentaleikhúss- ins og einn leikara sýningarinnar, verkið taka á sjálfsmynd ungs fólks. „Þetta er byggt á sögum allra leikaranna,“ segir Vilhelm Þór. „Við skrifuðum þetta saman í samstarfi við Öddu Rut leikstjóra. Vinnan hófst á fimm daga nám- skeiði leikhússins sem var í haust, en það er fastur liður hjá okkur að halda slík námskeið þar sem nýir meðlimir bætast við hópinn,“ segir Vilhelm. „Sjálfsmynd ungs fólks á Íslandi er margbreytileg og gaman að sjá hvað það er sem mótar okkur af því samfélagi sem við búum í,“ segir Vilhelm. „Það er alltaf mikið talað um að Ísland sé best í heimi, en ef maður fer að skoða það nán- ar, þá er það kannski ekkert best,“ segir Vilhelm. Í sýningunni eru 18 leikarar og einn tónlistarmaður og öll komu þau að sköpun verksins. „Hópurinn er mjög fjölbreyttur,“ segir Vilhelm. „Bæði fólk sem hefur verið í nokkrum sýningum áður, en einnig fólk sem aldrei hefur sýnt með okkur. Undirbún- ingurinn hófst nánast um leið og námskeiðinu lauk og það fer mikil vinna í þetta, þar sem þetta er áhugaleikhús,“ segir Vilhelm. Stúdentaleikhúsið hefur í vetur unnið hörðum höndum að því að leikhúsvæða nýtt húsnæði leik- félagsins að Strandgötu 75 í Hafn- arfirði þar sem MIG verður sýnt. Þar má nú finna kaffihús ásamt lifandi skólastofu. „Við erum búin að setja tíu sýningar á dagskrá og bætum svo við ef vel gengur,“ segir Vilhelm Þór Neto, leikari og formaður Stúdentaleikhússins. Allar nánari upplýsingar um sýninguna má finna á Facebook síðu Stúdentaleikhússins. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is 62 dægurmál Helgin 10.-12. apríl 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.