Fréttatíminn - 22.05.2015, Síða 36
BUXNADAGAR
20% afsláttur af öllum buxum - gildir fimmtudag til mánudags
ESPRIT · SMÁRALIND
S temningin var rosa góð. Það var æðis-legt að vera þarna í höllinni,“ segir Jóna G. Kolbrúnardóttir söngnemi sem bú-
sett er í Vínarborg.
Jóna var meðal áhorfenda í höllinni á báðum
undanúrslitakvöldunum í Eurovision í vikunni
og í dag, föstudag, verður hún í salnum þegar
dómararennslið fer fram. Með í för eru bróðir
Jónu, Jóhann G. Kolbrúnarson, og mágkona,
Aldís Sveinsdóttir.
„Þetta var hálf óraunverulegt á fyrra undan-
úrslitakvöldinu. Eftir að hafa horft á Euro-
vision í sjónvarpinu í mörg ár var maður smá
tíma að fatta að maður væri í alvöru þarna í
salnum,“ sagði Jóna þegar Fréttatíminn ræddi
við hana á miðvikudag. Þegar blaðið fór í
prentun í gær lá ekki fyrir hvort Ísland hefði
komist áfram.
Hvaða lag er í uppáhaldi hjá þér eftir að hafa
verið viðstödd fyrra undanúrslitakvöldið?
„Ég verð að segja Belgía. Þetta er 22 ára
strákur sem syngur og lagið er frekar töff, það
er ekki þetta týpíska Eurovision-lag. Reyndar
ruglar maður svolítið lögunum saman, þau eru
svo lík. Þetta var allt komið í sósu hjá manni!“
Jóna kveðst ekki vera sérlegur aðdáandi
keppninnar, hún fylgist bara með eins og flest-
ir Íslendingar. „Hins vegar er Aldís mágkona
mín rosalegur Eurovision-fan. Hún fór líka á
keppnina í Kaupmannahöfn í fyrra, en systir
hennar býr þar.“
Jóna kvaðst vera spennt fyrir undanúrslita-
kvöldinu á fimmtudag. Hún væri búin að hitta
nokkra Íslendinga sem ætluðu að fara og bjóst
við því að fá smá gæsahúð þegar María stigi
á svið.
Jóna leggur stund á nám í klassískum söng í
Vín. Hún segir að mikið sé af ungum Íslend-
ingum í námi þar í borg, fimm aðrir eru í sama
Hálf óraunverulegt að fylgjast
með Eurovision í salnum
Jóna G. Kol-
brúnardóttir
er í söngnámi
í Vín. Hún var
í salnum á
báðum undan-
úrslitakvöldum
Eurovision
í vikunni og
verður viðstödd
dómararennslið
í dag ásamt
bróður sínum
og mágkonu.
Jóna heldur
með Belgíu í
keppninni.
Jóna G. Kol-
brúnardóttir tók
því fegins hendi
þegar Jóhann
bróðir hennar og
Aldís mágkona
boðuðu komu sína
til Vínar meðan á
Eurovision stendur.
Mágkonan er við-
stödd keppnina
annað árið í röð.
námi og hún og fleiri á svipuðu reki.
Jóna er hins vegar sú eina af þeim
ákvað að fara á Eurovision.
Jóna segir jafnframt að það fari
ekki framhjá nokkrum manni að
Euroviosion fari fram í Vín þessa
vikuna. „Það er mikið af Eurovision-
nördum á ferðinni með fána og trefla
og Eurovision-bakpoka. Þó þetta
sé kannski ekki úti um alla borg þá
sér maður þetta víða, til að mynda á
merktum leigubílum. Svo þegar mað-
ur nálgast sjálft Eurovision-þorpið þá
er allt þakið í merkingum.“ -hdm
Reyndar ruglar maður
svolítið lögunum sam-
an, þau eru svo lík.
36 eurovision Helgin 22.-24. maí 2015