Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 58
58 matur & vín Helgin 22.-24. maí 2015
Í sland er mjög mikilvægur markaður fyrir okkur og það er gaman að koma hingað,“ segir
Rocio Osborne, sérlegur sendiherra
hinna góðkunnu Montecillo-vína frá
Rioja-héraðinu á Spáni.
Rocio hefur dvalist hér á landi
síðustu daga við að kynna Monte-
cillo-vínin og á fimmtudag heimsótti
hún til dæmis Gallery Restaurant á
Hótel Holti. Þar gátu gestir komist í
sérvalda matar- og vínpörun sem ku
hafa verið ansi mögnuð.
Vörumerkið eitt af þjóðartákn-
um Spánar
Rocio er af Osborne-fjölskyldunni
sem er einn stærsti og virtasti vín-
framleiðandi Spánar. Íslendingar
þekkja vel sérrí og brandí frá Os-
borne en Osborne keypti Monte-
cillo-vínhúsið á áttunda áratugnum.
Montecillo er þriðja elsta vínhús
Rioja-héraðsins og rekur sögu sína
aftur til 1874.
Osborne-fjölskyldan lætur sér
ekki duga að framleiða vín því hún er
einn stærsti framleiðandi hráskinku
á Spáni og rekur auk þess nokkur
veitingahús undir sama nafni; Cinco
Jotas. Vörumerki Osborne er naut
og þykir það sterkt að jafnvel er talað
um það sem eitt af þjóðartáknum
Spánverja.
Rocio er af sjöttu kynslóð Os-
borne-fjölskyldunnar en alls eru
nú um 600 afkomendur fyrsta ætt-
leggjarins og átta kynslóðir. Rocio
er reyndar aðeins ein af þremur úr
Osborne-fjölskyldunni sem starfa hjá
fyrirtækinu.
„Þegar ég var ráðin til starfa árið
2006 hafði ekki komið nýr starfs-
maður úr fjölskyldunni í 20 ár. Það
var ákveðið á níunda áratugnum að
ekki væri við hæfi að fjölskyldumeð-
limir störfuðu hjá Osborne nema í
æðstu stjórnunarstöðum. En svo var
ákveðið að taka inn einn af yngri
kynslóðinni og eftir ráðningarferli
með utanaðkomandi aðilum fékk
ég djobbið. Það hefur bæði kosti og
ókosti að þessi háttur sé hafður á.
Það er til dæmis mikið atvinnuleysi
á Spáni og það snertir marga í fjöl-
skyldunni,“ segir Rocio sem lærði
lögfræði og fjármálafræði og starfaði
til að mynda í London áður en hún
hóf störf hjá Osborne.
„En ég ólst náttúrlega upp hjá
fyrirtækinu, ég ólst upp í feluleik á
milli sérrítunnanna með frændsystk-
inum mínum,“ segir hún.
Styrkur okkar að gera vel
þroskuð vín
Það þykir einkennandi fyrir vín frá
Rioja-héraðinu að þau fá að þrosk-
ast vel. Þau eru ekki seld við fyrsta
mögulega tækifæri heldur liggja á
eikartunnum og síðar á flösku þar til
þau þykja tilbúin til neyslu. Gran Re-
serva vín eru til dæmis geymd í tvö
ár á tunnu og þrjú ár á flösku áður en
þau fara á markað.
Rocio Osborne hefur starfað hjá fjölskyldufyrirtækinu í tæpan áratug.
Hún heimsótti Ísland í fyrsta sinn í vikunni og kynnti Montecillo-vínin fyrir
áhugasömum. Ljósmynd/Hari
Ólst upp í feluleik á milli sérrítunna
Rocio Osborne er sérlegur sendiherra Montecillo-vínanna frá Rioja-héraðinu. Montecillo er þriðja
elsta vínhúsið þar um slóðir og vínin hafa notið mikilla vinsælda hér á landi um árabil. Rocio var hér
á landi í vikunni.